26.02.1976
Neðri deild: 70. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2250 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)

168. mál, flugvallagjald

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Það var svo sannarlega ekki mín meining að halda hér uppi neinu málþófi til þess að koma í veg fyrir afgreiðslu þessara frv. og allra síst frv. sem miðar að því að jafna olíukostnað.

En hér er tekið til 3. umr. viðstöðulaust frv. til l. um flugvallagjald. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því að í nál. frá minni hl. fjh.- og viðskn. á þskj. 377 segir svo, með leyfi forseta:

„Við undirritaðir“ — þar er átt við hv. þm. Gylfa Þ. Gíslason og hv. þm. Lúðvík Jósepsson sem skrifar undir nál. ásamt Gylfa Þ. Gíslasyni — „erum andvígir því, að ríkissjóður innheimti flugvallagjald af innanlandsflugi. Í samræmi við það leggjum við til að 3. gr. falli niður. Verði sú till. samþykkt munum við flytja brtt. við aðrar greinar frv. til samræmis við það við 3. umr.“

Þessir tveir hv. þm. segja sem sagt að ef 3. gr. verði samþ., eins og nú hefur verið gert, þá muni þeir flytja brtt., og með því að taka málið nú til afgreiðslu að þeim báðum fjarstöddum finnst mér vera farið aftan að þessum tveimur ágætu hv. þm. (Gripið fram í: Hvar eru þeir? Er Lúðvík að semja?)

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að fara að karpa við Framkvæmdastofnunina á þessum fundi, en í upphafi fundarins var þess getið að hv. 2. þm. Austurl., Lúðvík Jósepsson, sæi sér ekki fært að koma á þennan fund vegna veikinda.

Ég vil þess vegna fara þess á leit við hæstv. forseta að 3. umr. um þetta mál verði ekki lokið fyrr en þessir tveir hv. þm. hafa átt þess kost að leggja fram áður boðaðar brtt. sinar um málið.