01.03.1976
Efri deild: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2258 í B-deild Alþingistíðinda. (1854)

180. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Þetta ákvæði eða ákvörðun um þetta efni er algjörlega óbreytt frá því sem er í núgildandi lögum nema að því er varðar fjárhæðina. Þess vegna gilda áfram alveg sömu skilyrði fyrir þessari sektarheimild og er eftir núgildandi lögum. Kjósi hlutaðeigandi að vísa máli til dómstóla og ekki fallast á þetta, þá er það opinn vegur, þannig að það er ekki nein breyting á efni ákvæðisins nema að því er varðar fjárhæðina.

Auðvitað geta menn haft skiptar skoðanir á því hvort slík heimild sem þessi sé heppileg eða ekki. Ég held að hún sé heppileg, vegna þess að með þessum hætti fæst miklu skjótari úrlausn en ella um þessi tiltölulega einföldu mál. En í flestum tilfellum er það svo að þarna er um að tefla að það er enginn vafi sem getur leikið á hvort maðurinn er brotlegur eða ekki. Þá er honum auðvitað fyrir bestu að játa brot sitt og greiða sína sekt heldur en að fara að standa í málrekstri út af því, sem gæti tekið langan tíma fyrst að vísu, en mundi enda á þá leið að hann yrði fyrir miklu meiri útgjöldum. Eins og ég sagði áðan, þá er ekki vafi á því að þessi aðferð hefur létt miklu verki af dómstólum, og ég vil segja það, að þessi mál eru í flestum tilfellum svo einföld og þess háttar að það er algjör óþarfi að vera að fara með þau til dómstóla. Dómstólar hafa nóg að gera við önnur stærri, veigameiri og alvarlegri mál.

Ég get ekki fallist á þau orð sem hv. þm. Albert Guðmundsson lét falla um störf lögreglumanna almennt. Ég held að starf þeirra sé allt annað og miklu meira en hann vildi vera láta, sem sagt að setja upp skilti eða segja við borgarana: Þetta skaltu þola eða annars. — Ég held að þetta sé mikið vanmat á störfum lögreglumanna. Auðvitað er starf lögreglumanna fyrst og fremst hér eins og annars staðar að stemma stigu við lögbrotum og koma í veg fyrir að lögbrot séu framin. Það er ekki vafi á því að með almennu eftirliti vinna þeir mjög að því, t.d. í umferðarmálum, og auðvitað verður því ekki á móti mælt að í umferðarmálum vinna lögreglumenn mjög mikið verk.

En því miður verða lögreglumenn líka að sinna öðrum og æði-óskyldum störfum. Þeir verða t.d. að skerast í leikinn þegar drykkjumenn valda óspektum á almannafæri eða eru líklegir til þess að fara sér eða öðrum að voða. Hitt er víst, að þau eru líka ófá tilfellin þar sem lögreglumenn eru kvaddir inn á heimili að beiðni hlutaðeigandi til þess að skakka leikinn vegna drykkjuskapar og uppivöðslu manna þar, kannske stundum húsráðanda sjálfs. Það eru vissulega óskemmtileg tilfelli. En ég býst við því að menn hefðu gott af að kynna sér skýrslur lögreglunnar þar að lútandi, og ef þeir athuguðu önnur þau brot, sem stafa af meðferð áfengis, þá gæti farið svo að á menn færu að renna tvær grímur um það hvort rétt væri upp gerður ríkisreikningurinn, að telja það allt til nettó-ágóða sem fæst af áfengissölu ríkisins. Ég er á því að þegar öll kurl kæmu til grafar og það væri metið sem það kostar að halda þessari áfengisveislu hér á landi gangandi, þá mundi hliðin verða neikvæð, ekki aðeins vegna þess mikla löggæslukostnaðar sem þetta hefur í för með sér, heldur vegna þeirra alvarlegu og tilfinnanlegu afbrota sem framin eru í ölæði, þeirra óskaplegu slysa sem ölóðir menn valda á sér og öðrum vegna alls þess fjölda lækna sem verður að vera bundinn við að sinna slysum sem af þessu hljótast, vegna þess feiknarlega eignatjóns sem þessir menn valda og vátryggingarfélög verða að bæta, og ofan á þetta hleðst með mörgu móti. Auðvitað verður að harma að lögreglumenn geti ekki komið í veg fyrir öll þvílík brot. En ég held að það standi tæpast í mannlegu valdi.

Hitt er víst, að lögreglumenn þurfa að hafa afskipti af mörgum málum og þeir sinna þeim, að ég hygg, yfirleitt þannig að þeir gera það af stillingu, en þó með festu og koma þannig fram á allan hátt sem góðum löggæslumönnum sæmir, enda hefur verið kappkostað að bæta menntun löggæslumanna hér að undanförnu. En hitt er annað mál, að það má í þessu efni alltaf gera betur, og það er vissulega þörf á fleiri löggæslumönnum.

Það hefur borið á því að undanförnu að það hafi verið kvartað, jafnvel hér á hv. Alþ., yfir slælegri löggæslu. Ég held að það hafi æðimikið staðið á hv. Alþ. að veita fjárveitingar í þessu skyni. Þar af leiðandi er það að þeir eru æðimargir þeir stjörnumerktu, sem svo hafa verið kallaðir, sem eru löggæslumenn. Það stafar af því að hlutaðeigandi lögreglustjórar hafa blátt áfram neyðst til að ráða lögreglumenn án þess að hafa haft nægjanlegar heimildir fyrir hendi. Nú er það komið undir og á ábyrgð hv. fjvn. meðal annars hversu margir af þessum stjörnumerktu mönnum eiga að lifa áfram eða ekki. Það er vel líklegt að það heyrist kvartanir frá ýmsum lögreglustjórum ef mikið kveður að því að felld séu niður störf á þessu sviði, og ég verð að segja það, að það væri í litlu samræmi við aðrar þær raddir sem hafa komið fram á Alþ. um meðferð lögreglumála og dómsmála.