01.03.1976
Efri deild: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2260 í B-deild Alþingistíðinda. (1855)
180. mál, meðferð opinberra mála
Oddur Ólafsson:
Herra forseti. Mig langar aðeins til að taka undir þau orð hæstv. dómsmrh. að það væri ekki allt nettó-ágóði sem stæði í fjárl. um gróðann af áfengissölu ríkisins. Í því sambandi og í samræmi við það umtal, sem hefur orðið um það hver breyting varð á framkomu fólks í þessu landi þegar lokað var áfengisverslunum hér nú í verkfallinu, þá langar mig fyrst og fremst til að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir það frumkvæði og í öðru lagi til að benda hæstv. ráðh. á að á síðasta Alþ. var vísað til ríkisstj. frv., sem gerði ráð fyrir því, að nokkru af tekjum — örlitlu þó — af tekjum Áfengisverslunar ríkisins yrði varið til þess að sinna þeim málum sem nú þykir mest vanta, þ.e.a.s. meiri áróðri gegn drykkjuskap og sérstakri slysavarðstofu fyrir drykkjusjúklinga. Ég held að það sé núna, eins og á stendur í okkar þjóðfélagi, fullkomin ástæða til að taka það til athugunar hvort ekki væri rétt að líta aftur á þetta frv. Því var vísað til ríkisstj. eins og ég sagði, og ég fyrir mitt leyti verð að segja að mig langar mikið til að vita hvort ekki er ástæða til að eitthvað verði gert í fjármögnun til aukinna áfengisvarna.