01.03.1976
Efri deild: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2261 í B-deild Alþingistíðinda. (1857)

180. mál, meðferð opinberra mála

Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti: Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið. Mín orð almennt um lögreglumenn voru sprottin af þeim ummælum sem hv. 12. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, lét falla á þá lund, að manni gat skilist, að lögreglumenn fengjust helst ekki við annað en að setja upp skilti og ógna mönnum með einhverjum bönnum eða boðum. Ég held nú að þetta hafi leiðrést og hann fallist á það nú í sinni síðari ræðu að lögreglumenn fengjust við margt fleira. Að sjálfsögðu er ekki hægt að koma í veg fyrir það, að hvort tveggja geti komið til greina, að lögreglumaður sekti fyrir brot á umferðarlögum og stöðumælavörður sekti fyrir brot. (Gripið fram í.) Já, já, jafnvel það, ef maður er skjótur í ferðum og hefur lagt ranglega við stöðumæli. Stöðumælasektirnar eru allt annars eðlis. Ég hygg að það sé Reykjavíkurborg sem hefur sett upp stöðumælana og stendur fyrir því að innheimta gjald fyrir stöðumæla og þá líka sektir ef lagt er of lengi á því stæði sem úthlutað er. A.m.k. var það svo í upphafi að það var borgarstjórnin og borgarsjóður sem umferðarmálastjórn Reykjavíkur sem stóð fyrir því að setja ákvæði um þetta. (Gripið fram í.) Já, ég þori nú ekki að segja um hvernig því er háttað með brot og stöðumælasekt. Ég er þetta hamingjusamari en hv. 12. þm. Reykv. að ég hef ekki lent í þessu. En auðvitað getur hvaða maður sem er lent í því að fá stöðumælasekt og maður fær enga slaufu á sakavottorðið fyrir það.

En ég vil geta þess, ég gleymdi því áðan, vegna þess að hv. þm. var að telja hæpið að það ætti að veita lögreglumönnum þessa heimild, að auk þess sem það gildir nú, sem ég áðan sagði, að það er í engu breytt hinum efnislegu ákvæðum um þetta og hann getur alltaf óskað eftir því að þetta fari til dómstóla, þá er það auk þess svo að saksóknari gefur út ákveðnar leiðbeiningar um þessar sektargreiðslur til handa lögreglumönnum. Ef þetta frv. verður að lögum og sektirnar verða hækkaðar svo sem þar segir, þá mun hann gefa út nýja leiðbeiningaskrá um þetta, þannig að það verða nokkurs konar taxtar útbúnir af saksóknara sem lögreglumenn hafa í höndum varðandi þessi brot.

En til þess að menn geti gert sér ofurlítið í hugarlund hvernig þessu mundi öllu reiða af, ef þetta ætti allt að fara til dómstóla og sæta dómstólameðferð, þá vil ég geta þess, að á s.l. ári voru þess háttar mál, sem lögreglumenn og lögreglustjóri afgreiddu, sektir fyrir brot á lögreglusamþykkt og brot á umferðarlögum, 7160 að tölu, og þarna eru ekki taldar með stöðumælasektir og stöðumælabrot.

Ég er þeirrar skoðunar að skilti séu til mikils öryggis í umferðinni og umferðin væri miklu hættulegri ef þeim væri ekki til að dreifa. Það er hægt að segja að það sé óttalega leiðinlegt með öll þessi boð eða bönn. En ég held bara að við komumst ekki hjá því í lífinu að hlíta því að við verðum að sætta okkur við ýmis boð eða bönn, ekki bara boðorðin í sinni gömlu og góðu mynd, heldur kemur ýmislegt annað til og sumt sem lífið og nýir lífshættir kalla á. Það getur ekki verið allt frjálst þannig að hver og einn megi gera allt sem hann vill eða fara fram hverju sem hann vill. Ef það væru afnumin öll boð eða bönn yrði náttúrlega miklu einfaldara fyrir dómstóla eða lögreglu. Þeir þyrftu ekkert að vera að snúast í því að fást við mál af því tagi. Það yrði þá væntanlega réttur frumskógarins sem réði lögum í landi, þ.e.a.s. sá sterkasti kæmist helst leiðar sinnar, svo að maður haldi sig við umferðina. Ég held nú að það hafi ekki verið það, sem hv. 12. þm. Reykv. átti við, heldur hitt, að honum hafi verið eitthvað sérstaklega þungt í skapi einmitt þessa stundina vegna þess að hann hafi orðið var við einhver boð eða bönn sem komið hafi illa við einhvern. En þannig er það nú með boð eða bönn, að þau geta alltaf komið misjafnlega við, en menn verða að sætta sig við þau samt sem áður.