01.03.1976
Neðri deild: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (1875)
28. mál, kafarastörf
Frsm. (Ellert B. Schram):
Herra forseti. Efni þessa frv. er, að setja lög um kafarastörf. Lög um þessi störf hafa ekki verið fyrir hendi fram að þessu og er talin þörf á því að fastákveða í lögum hvaða skilyrðum viðkomandi þurfi að fullnægja til þess að fá að stunda slík störf í atvinnuskyni.
Allshn. hefur leitað umsagna þriggja aðila, þ.e.a.s. Félags ísl. kafara, öryggismálastjóra og Siglingamálastofnunar ríkisins. Allir þessir aðilar hafa mælt með samþykkt frv.
Gert er ráð fyrir í því frv. að Siglingamálastofnun ríkisins hafi eftirlit með því að reglum sé fullnægt, og í umsögn sinni hefur Siglingamálastofnunin lagt áherslu á það að jafnframt samþykkt frv. þyrfti að bæta við starfslið þeirrar stofnunar. Allshn. telur það vera álitamál. en þrátt fyrir að eitthvað þurfi að bæta við starfslið stofnunarinnar, þá sé engu að síður nauðsynlegt að samþ. þetta frv. Þá verður að skoða málefni Siglingamálastofnunar sérstaklega þegar þar að kemur.
Mál þetta er að mati n. nauðsynlegt og mælir hún því með samþykkt frv. Þess má geta að í Félagi ísl. kafara munu vera um 30 einstaklingar, en aðeins um 6 menn sem stunda kafarastörf sem atvinnu og leggja þeir mikla áherslu á nú sem áður að frv. verði samþ. sem lög.
Allshn. mælir með frv., sem fyrr segir, en leggur til að tvær breyt. verði gerðar á því. Breyt. á 6. gr. frv. er fyrst og fremst breyt. á orðalagi, þannig að sú gr. sé betur og skýrar orðuð. Er ekki ástæða til að skýra það frekar. Hin breyt. er á 3. gr., þar sem segir að hver sá, er stunda vill köfun, skuli fullnægja eftirtöldum skilyrðum, þ. á m. að hann sé fullra 16 ára. N. leggur til að þetta aldursmark sé hækkað í 20 ár, telur þetta vera áhættusamt starf og erfitt og því eðlilegt að gera kröfu til þess að kafarar hafi náð þessum aldri.
Í frv. eru, eins og fyrr segir, skýrð þau skilyrði, sem fullnægja þarf, og jafnframt gert ráð fyrir að settar séu reglur um útbúnað tækja, eftirlit, ábyrgð o.s.frv., sem ég mun ekki lýsa hér. Fyrir hönd allshn. lýsi ég því yfir, að n. mælir með samþykkt þessa frv. með þeim breyt., sem ég hef gert grein fyrir.