01.03.1976
Neðri deild: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2286 í B-deild Alþingistíðinda. (1885)
164. mál, almenn hegningarlög
Dómsmrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Frv. það til breytinga á atmennum hegningarlögum, sem hér er lagt fyrir hv. Nd., fjallar um breytingu á allmörgum gr. almennra hegningarlaga.
Frv. er samið af svokallaðri hegningarlaganefnd, sem nú vinnur að endurskoðun á ýmsum þáttum hegningarlaga. Í þessari hegningarlaganefnd sitja sérfróðir menn í refsiréttarfræðum. Ég hef talið rétt að leggja frv. fram eins og það kom frá henni, enda verð ég að játa að ég er ekki neinu sérfræðingur í þeim fræðum. En ég get hins vegar sagt það, að mér persónulega finnst sumt í þessu frv. orka tvímælis.
Veigamestu breytingarnar eru varðandi sektarákvæði, sem fjallað er um í 4.–7. gr. frv., og um rangan framburð, sem fjallað er um í 12.–15. gr. þessa frv. En auk þess fjallar frv. um nokkrar minni háttar lagfæringar og breytingar sem ég mun aðeins víkja hér að á eftir.
Í 50. gr. hegningarlaganna er kveðið á um hver skuli vera lágmarks- og hámarksupphæð sektar. Segir þar nú að ekki megi gera manni á hendur lægri sekt en 4. kr. og ekki hærri en 30. þús. kr., nema sérstök lagaheimild sé fyrir því að ákveða sekt hærri eða lægri. Þetta ákvæði hefur staðið óbreytt frá setningu hegningarlaganna 1940, en með l. nr. 14 frá 1948 var svo fyrir mælt að þar sem fésektir eru ákveðnar í lögum án tillits til núgildandi verðlags skuli lágmark þeirra og hámark breytast eftir vísitölu sem kaupgjald er greitt eftir á hverjum tíma. Þar sem ekki hefur verið um að ræða samfelldan útreikning á slíkri vísitölu kaupgjalds hefur dómstólum reynst örðugt að reikna út sektarfjárhæðir í samræmi við framangreint ákvæði. Er því lagt til nú að hegningarlagagr. verði breytt þannig að felld verði niður lágmarkssekt, en hámarkssekt 4 milljónir. Miðast sú fjárhæð við útreikning sem gerður hefur verið á þróun vísitölu vöru og þjónustu frá árinu 1939 til byrjunar nóv. 1975. Ekki er þá tekið tillit til þeirrar kaupmáttaraukningar sem orðið hefur á tímabilinu, þannig að ætla má að 1 millj. kr. sektarhámark í dag sé síst hærra en 30 þús. kr. hámarkið var 1939.
Sektarmörk þau, sem greind eru í þessari gr. hegningarlaganna, ákveða ekki einungis sektir sem fjallað er um í hinum almennu hegningarlögum, heldur einnig sektir sem greindar eru í sérrefsilögum og ekki er tilgreint hámark eða lágmark á í viðkomandi lögum. Þau sérrefsilög, sem kveða á um tiltekið sektarlágmark eða hámark, halda hins vegar gildi sínu, en ljóst er að þörf er á breyt. á slíkum ákvæðum, sérstaklega í eldri lögum.
Það, sem leikmanni gæti sjálfsagt dottið í hug í þessu sambandi, er hvort það sé nauðsynlegt að ákveða hámark sektar í lögum, hvort það sé ekki hægt að láta það vera algjörlega á valdi dómstóla, þannig að þeir geti metið hæfilega sekt hverju sinni eftir því sem þeir telja við eiga. Frá því sjónarmiði hefði getað komið til greina að fella niður sektarhámarkið eins og sektarlágmarkið. Þetta mun hins vegar stangast á „teoríu“ refsiréttarfræðinga sem telja að það verði að vera tiltekið í lögum hámark fyrir þeirri refsingu sem dæma má. Ekki vil ég vefengja að það sé rétt, þó að mér sýnist að hitt gæti út af fyrir sig komið til greina, að fela dómstólunum vald til þess að dæma þær sektir sem þeir teldu við eiga í hverju falli, án þess að þetta væri bundið við ákveðið hámark eða lágmark.
Fljótt á litið virðist þetta hámark, sem þarna er sett, 4 millj. æðimikið. En það samsvarar þó, eins og ég var að segja, ekki nema 30 þús. kr. 1939. Og sannleikurinn er sá að sum þeirra brota, sem framin eru í dag og varða fjárhagsmisferli, geta leikið á svo háum fjárhæðum að það gæti hugsanlega komið fyrir tilfelli þar sem ekki þætti óeðlilegt að hægt væri að dæma hærri sekt en þetta. En þetta eru að sjálfsögðu atriði sem sú n., sem fær frv. til meðferðar, tekur til nánari athugunar.
Enn fremur er í frv. þessu lagt til að nokkrar aðrar breyt. verði gerðar á sektarákvæðum hegningarlaganna, svo sem á 49. gr., þar sem lagt er til að heimilað verði að dæma fésekt jafnframt refsivist þegar ákærði hefur aflað sér eða öðrum fjárvinnings með brotinu eða það hefur vakað fyrir honum. Þetta er nýmæli og það tel ég til bóta tvímælalaust.
Í 7. gr. þessa frv. er lagt til að staðfest verði sú dómvenja, sem myndast hefur, að sé maður sektaður fyrir háttsemi, sem honum sé ósaknæm, þá skuli vararefsing ekki ákveðin.
Í 12. gr. frv. er lagt til að 142. gr. verði breytt þannig að felld verði niður lágmarksrefsing, sem nú eru 3 mánuðir, fyrir rangan framburð fyrir rétti eða stjórnvaldi sem heimild hefur til heitfestingar. Sömuleiðis er lagt til að felld verði niður 2. málsgr. sem fjallar um aukna refsingu við heitfestri skýrslu, en þar er nú kveðið á um allt að 8 ára fangelsi fyrir slíkt athæfi.
Breytingar þær, sem lagt er til að gerðar verði á 143., 145. og 148. gr., sem allar fjalla um rangan framburð, eru einungis gerðar til samræmis við breytingu sem lagt er til að gerð verði á 142. gr. Þau rök, sem færð eru fram fyrir þeirri breytingu sem hér er lagt til að gerð sé, eru samræmi við breytingar sem gerðar hafa verið á hinum Norðurlöndunum á samsvarandi refsiákvæði í lögum þeirra landa. Að sjálfsögðu er æskilegt að það gæti sem mest samræmis í refsilöggjöf landa sem eiga mikið saman að sælda eins og Norðurlöndin. En þó má vafasamt telja að það eigi að taka allt eftir þeim í þessum efnum fremur en öðrum. En þessi ákvæði kemur n., sem frv. fær til meðferðar, að sjálfsögðu til með að skoða einnig.
Það má segja, að aðrar brtt., sem felast í þessu frv. séu minni háttar og kannske geti þær sumar orkað tvímælis. Í 1. gr. er lagt til, að niður verði felld nokkur ákvæði, svo sem viðurlög við banni um neyslu áfengis, um mætingu hjá lögreglu fyrir þá sem dæmdir hafa verið fyrir auðgunarbrot, eða það má skylda þá til þess að mæta og láta fylgjast með sér, að lýsa refsiverða háttsemi sem fólgin er í að valda hættu á sýkingu af kynsjúkdómi, sem sagt að fella niður þessi ákvæði. Allt er þetta víst gert eftir erlendri fyrirmynd og eftir því sem ákveðið hefur verið í hegningarlögum nágrannalanda okkar og er því vonandi allt til bóta.
Í tl. gr. er lagt til að auknir verði möguleikar á að dæma í fleiri tegundir refsinga í sama dómi, svo sem að hafa dóm að hluta óskilorðsbundinn og að hluta skilorðsbundinn, dæma óskilorðsbundna fésekt í tengslum við skilorðsdóm og þannig almennt að skapa dómstólum aukna möguleika á vali refsinga. Þarna tel ég vera farið inn á alveg rétta braut.
Þá eru ýmis önnur minni háttar ákvæði, sem er gerð grein fyrir í athugas. með frv. sem hegningarlaganefnd hefur samið, og ég sé ekki ástæðu til. herra forseli, að fara rekja þau ákvæði nánar. Það eru að nokkru leyti lagatæknileg atriði sem mundi taka of langan tíma að fara út í hér að ræða í hv. d. En ég vænti þess sem sagt að sú hv. n., sem fær þetta frv. til meðferðar, taki það til nákvæmrar athugunar. Ég vil svo leyfa mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. allshn.