02.03.1976
Sameinað þing: 59. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2295 í B-deild Alþingistíðinda. (1893)

178. mál, veiting prestakalla

Gunnlaugur Finnsson:

Herra forseti. Þær umr., sem hér hafa átt sér stað til þessa, hafa beinst meira að almennum umr. um prestkosningar heldur en raunverulega viðhorfum gagnvart þáltill., nema þá því aðeins að það sé hörð afstaða sumra ræðumanna að engar breytingar verði hér gerðar á.

Það er út af fyrir sig mál að ræða málefni kirkjunnar og veitingu prestakalla á víðari grundvelli, svo sem hér hefur verið komið inn á, og ég vil í því sambandi aðeins leggja hér orð í belg.

Mig langar þá til að koma fyrst að lokaorðum hv. þm. Jónasar Árnasonar varðandi skrípamynd af lýðræðinu, hvort hér er um að ræða skrípamynd af lýðræðinn eða eigi, þar sem talað er um prestkosningar og samanburð á þeim og kosningum til Alþingis eða til sveitarstjórna. Hér er einn meginmunur á. Við skulum segja sem svo að það hafi farið fram prestkosningar í mínu prestakalli þegar ég var tvítugur, og við skulum segja sem svo að viðkomandi prestur eigi langan embættisferil og sitji í 40 ár. Þá á ég ekki kost á því að neyta atkvæðisréttar míns í lýðræðisþjóðfélagi fyrr en ég er sextugur. Það er þetta atriði sem er um að ræða og það er það atriði líka, hvort þessir menn einir íslenskra embættismanna eiga að byggja lífstarf sitt á síendurteknum kosningum, ef við þokum þessu í þá átt að presta skuli kjósa með vissu árabili.

Kirkjuþingið er orðið um 20 ára gömul stofnun. Ef lítið er á lögin um Kirkjuþing og hvers eðlis það á að vera og er, þá á það að vera ráðgjafandi stofnun fyrir Alþ. á svipaðan hátt og Búnaðarþing og Fiskiþing, enda þótt þau þing tvö starfi á atvinnulegum grundvelli, en kirkjuþing aftur á móti á kirkjulegum grundvelli. En meginhlutverk Kirkjuþings er að hafa frumkvæði og gefa umsagnir nm þau löggjafaratriði sem hér er fjallað um á Alþ. varðandi kirkjuna. Ég held satt að segja að það sé ekki alveg hneisulaust fyrir hv. Alþ. hve fá mál, sem hafa verið afgr. á Kirkjuþingi síðan 1957, hafa verið tekin hér til meðferðar og afgreiðslu. Að vísu voru afgr. hér lög um nýja skipan prestakalla, ég man ekki glöggt hvenær, af því ég sló ekki upp á því, ég hygg fyrir um það bil 10 árum. Þar var að sjálfsögðu gert ráð fyrir því, miðað við breytt þjóðfélag, að prestsembætti yrðu lögð niður, prestum fækkað vegna þess að miðað við breyttar aðstæður gátu þeir nú sinnt stærri svæðum en áður og þar að auki víða fækkað fólki. Í samræmi við það var líka breytt skipan prófastsdæma í landinu og prófastarnir urðu mun færri en áður var. En þrátt fyrir ítrekuð tilmæli Kirkjuþings, svo sem hv. frsm. kom að, um endurskoðun á þessum lögum hefur ekki fengist af hálfu Alþ. það mál tekið fyrir af neinni alvöru og afgr. Þar var þetta mál mjög vel undirbúið og var leitað umsagna allra héraðsfunda og ég þori nokkurn veginn að fullyrða að öllum sóknarnefndum í landinu hafi verið skrifað og beðið umsagna þeirra um málið.

Viðhorf prestanna sjálfra hefur breyst. Það hafa verið mjög skiptar skoðanir þeirra á meðal um það hvort halda ætti í hið eldra form, þ.e. núgildandi form, eða taka upp nýtt form. En þeim hefur sífellt fækkað sem vilja halda í gamla formið. Hér er ekki aðeins um það að ræða hvort prestar þurfa að leggja út í orrahríð, deilur og annað því um líkt. Ég tel að margar prestkosningar hafi farið fram með fullum drengskap og án þess að frambjóðendur hafi átt í orðakasti miklu eða baktali varðandi sína meðframbjóðendur. En það er annað atriði sem menn í prestastétt hafa áhyggjur af og það sérstaklega á hinum fjölmennari stöðum, þar kostar þetta ærna fjármuni. Þetta fer e.t.v. að vera spurning um það hvort á bak við þá stendur fjármagn, hvort þeir geta fjármagnað slíkar kosningar, hvort við erum að hverfa til þess sem gerist með stærri þjóðum, að það er spurt fyrst um peningana og síðan um manninn. (Gripið fram í.) Alþm. hafa miklu fremur komist áfram vegna þess að þar standa heilir flokkar að baki þeim og ég hygg að þar sé ekki um sambærilega hluti að ræða. Og prestar hafa tekið á sig, a.m.k. á stærri stöðum og fjölbýlli stöðunum tiltölulega meiri kostnað heldur en þeir sem hafa lagt sig í alþingiskosningar, og það hefur sýnt sig að þar eru á vettvangi menn, sem ekki hafa sterkan fjárhagslegan bakhjarl.

Hvað sem segja má um afstöðu prestanna sjálfra sem eru starfandi, þá er hitt eindregið, ég hef ekki heyrt eina einustu rödd þeirra manna, sem nýlega eru komnir í prestsembætti eða eru að læra til prests — ekki einu einustu rödd, sem vill viðhalda núverandi fyrirkomulagi. Þess vegna er spurning um það hvort ungir menn vilja leita á þessi mið og hvort þeim er gert mögulegt að taka upp þennan starfa. En þá komum við að sjálfsögðu að því mati hvort viðhalda á þessu starfi eða ekki. En það er önnur saga og það ætla ég ekki að ræða á þessum stað og nú í þessari umr.

Spurningin er sú, hvort Alþ. fellst á það á þessu stigi að skipuð sé n. til þess að gera tilraun til að gera breyt. til sátta á gildandi lögum eða að þoka því frv., sem lagt var fram á þinginu 1973–1974, í átt til — ja, við skulum segja lýðræðislegra forms, að það geti náðst samstaða um skynsamlegar breytingar.

Ég lýsi þeirri skoðun minni eindregið að Alþ. geti ekki skotið sér undan því að gera þetta. Og ég vil taka það fram í leiðinni að ef einhverjar slíkar breyt. næðust, þá tel ég að það þurfi að athuga um skipan sóknarnefnda. Það hefur enda verið lagt fram í Ed. frv. þar að lútandi og þá kemur til mats á því hvort eigi að ákveða lágmarksfjölda sóknarnefndarmanna, hvort eigi að ákveða eftir hvaða leiðum sóknarnefndarmenn og safnaðarfulltrúar vinna við ákvörðun um ráðningu prests, t.d. með skoðanakönnunum, hvort á þann veg er hægt að tryggja þátttöku almennings varðandi val á presti. En ég hygg að allar þessar breytingar verði mjög til bóta frá því fyrirkomulagi sem nú er.