02.03.1976
Sameinað þing: 59. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2296 í B-deild Alþingistíðinda. (1894)

178. mál, veiting prestakalla

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Till. sú til þál., sem hér er til umr., gerir ráð fyrir að Alþ. kjósi 7 manna nefnd sem hafi það verkefni að endurskoða lög um veitingu prestakalla. Í till. er ekki gert ráð fyrir öðru. En í grg. og af því, sem ég heyrði í framsöguræðu hv. 1. flm. þáltill., er hér komið inn á mál sem ég vil strax fyrir mitt leyti lýsa yfir að ég er algjörlega andvígur, breytingu í þá átt sem hér er gert ráð fyrir, því að ég skil það a.m.k. svo á grg. að það sé meiningin að breyta þessu til þeirrar áttar sem frv. hafa legið hér frammi á Alþ. að ég hygg tvívegis.

Í því frv., sem hv. 4. þm. Vestf. vitnaði til, held ég að ég muni það rétt að þar var gert ráð fyrir að færa þetta vald á hendur 5–7 manna sóknarnefndar, að velja prest. (Gripið fram í.) Auðvitað, það má vera breytilegt. Það má vel vera að þessum hv. þm. nægi 14 menn til þess að velja fyrir 1000 manna byggðarlag. Ég er andvígur slíku. Ég vil í þessu tilviki segja það, að ég lít á prest öðrum augum en t.d. lögregluþjón eða lækni eða eitthvað slíkt. Ég vil hafa meiri áhrif til þess að velja mér sálusorgara heldur en ég hef til þess að ákvarða hvaða tiltekinn einstaklingur gegnir lögregluþjónsstarfi eða einhverju álíka á þeim stað sem ég bý á. Ég legg þetta svo sannarlega ekki að jöfnu.

En einmitt í þessu formi held ég að ég muni rétt að frv. var sem var hér til umr. á Alþ. síðast. Og það er rétt, held ég, að Kirkjuþing hafi lagt blessun yfir það og stutt það eindregið að þessu yrði breytt í þetta form. Ég er algjörlega andvígur slíku. Ég held að sú þjónusta, sem prestar veita, sé þess eðlis og eigi að vera þess eðlis að sóknarbörn almennt eigi að fá að taka þátt í því að velja sér slíka menn. Ég a.m.k. lít svo á og ég fagna því svo sannarlega að hv. þm. Jónas Árnason virðist vera mér alveg sammála í þessum efnum, þó að ég hafi kannske ekki reiknað með því að ég ætti eftir að heyra það hér á Alþ. að þeir góðu vinir, hv. þm. Stefán Jónsson og Jónas Árnason, yrðu svo algjörlega ósammála í einu máli eins og hér ber raun vitni. En nú hefur það gerst.

Hv. þm. Stefán Jónsson sagði áðan að hann teldi að það ætti að leggja prestsembættið niður hreint og beint, og hann vill sýnilega ganga enn þá lengra en grunnurinn að þeirri þáltill., sem hann er hér meðflm. að, gerir ráð fyrir. Hann sagði líka að hann gæti vel unnt prestum þess að þeim gæfist kostur á að komast í embætti án þess að vera dregnir eftir göturæsunum. Hvað á hv. þm. við með þessu? Ég fyrir mitt leyti skil það ekki. Ég hef tekið þátt í tvennum alþingiskosningum og ég vil ekki viðurkenna fyrir mitt leyti að ég hafi verið dreginn eftir göturæsum til þess að geta tekið þátt í lýðræðislegum kosningum. Það er ekkert hér um að ræða annað. Hér er um lýðræðislegar kosningar að ræða. (Gripið fram í.) Það er líklega. Það hlýtur að vera. Það er þá á þeim stað á landinu sem ég þekki ekki a.m.k. Það er rétt hjá hæstv. utanrrh.

Hv. þm. Stefán Jónsson sagði líka að hann gæti vel unnt prestum þess að þeir yrðu kosnir eftir þeirri kosningaleið sem hér væri gert ráð fyrir. Ég sé ekki að það sé í þessari þáltill. gert í raun og veru ráð fyrir neinni kosningaleið. Hér er í raun og veru, skilst mér, eftir því sem grg gerir ráð fyrir og af því sem mér hefur skilist á stuðningsmönnum breytingar í þá átt sem hér er um að ræða, gert ráð fyrir beinni skipun, þ.e.a.s. það verði einn einstaklingur í landinu sem skikkar þennan og þennan klerk til þess að hjóna þessum og þessum, og ég vil ekki sætta mig við það.

Ég vildi sem sagt taka þetta fram strax við 1. umr. þessarar þáltill. Þó að ég sjái ekki að hún geri í raun og veru neina eindregna grein fyrir því hvað hv, flm. vilja í raun og veru, þá sýnist mér að hún sé byggð á því sem hér hefur legið fyrir í þeim frv. sem fyrir þinginu hafa legið nú tvívegis. Það er í þá átt að þrengja a.m.k. ef ekki algjörlega koma í veg fyrir lýðræðisleg vinnubrögð í sambandi við val á prestum, og því er ég andvígur.