02.03.1976
Sameinað þing: 59. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2312 í B-deild Alþingistíðinda. (1905)

178. mál, veiting prestakalla

Flm. (Ingiberg J. Hannesson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð, einkum í tilefni af orðum hv. 9. landsk. þm. þar sem hann talaði um að prestar ættu að beita sér í þá átt að hafa bætandi áhrif á stuðningsfólk sitt í sambandi við prestkosningar. Auðvitað dreg ég það ekki í efa að prestar reyni eftir mætti að gera sínu stuðningsfólki ljóst að því beri að fara að þessu af hógværð og stillingu og réttum leikreglum, og ég veit mörg dæmi um að prestar hafa í lengstu lög staðið á móti því t.d. að opna kosningaskrifstofu í sambandi við svona kosningu, sem er nú orðið þó nokkuð algengt, en þrýstingur stuðningsmanna þeirra hefur orðið þess valdandi að þeir hafa orðið að láta undan og setja upp þá aðstöðu sem var sigurvænlegust fyrir þann hóp til þess að geta unnið kosninguna.

Eins og hefur verið getið um áður er búið að kanna þetta mál mjög rækilega meðal fólksins í landinu. Hv. þm. hlýtur að vera ljóst eð þeir, sem sitja í sóknarnefnd, og safnaðarfulltrúar vita nokkurn veginn vilja fólksins í þessum efnum eins og mörgum öðrum því að það eru haldnir safnaðarfundir a.m.k. einu sinni á ári í hverri sókn og sums staðar oftar á ári þar sem ýmis málefni eru rædd. Þetta mál var sent öllum sóknarnefndum til umsagnar á sínum tíma og safnaðarfulltrúarnir hafa að sjálfsögðu túlkað þau sjónarmið sem fram komu á hinum almennu safnaðarfundum. Ef þm. gera sér það ekki almennt ljóst, þá eru héraðsfundir þær stofnanir þar sem saman koma safnaðarfulltrúar viðkomandi prófastsdæmis ásamt prestum og prófasti til þess að ræða ýmis kirkjunnar málefni, — koma saman einu sinni á ári í þessu skyni. Og þetta mál var lagt fyrir alla héraðsfundi á landinu, í öllum prófastsdæmunum, og fékk jákvæðar undirtektir víðast hvar, — ekki þori ég nú að segja að það hafi verið alls staðar, en víðast hvar var það svo. Þess vegna tel ég ekki þörf á því að fara að láta kjósa um þetta í kirkjum landsins á meðal kirkjugesta. Það mætti þá alveg eins hafa þjóðaratkvgr.hreint og beint um málið.

Ég mun ekki vinna að því við kirkjuyfirvöld eða prestastétt að breyta framkvæmd prestkosninga í betri átt nema það sé sýnilegt að þessu fyrirkomulagi verði ekki breytt. Þá veit ég að ég og aðrir reynum að sjálfsögðu að hafa góð áhrif á það eins og unnt er. En ég vil beita mér fyrir því fyrst og fremst að afnema þetta fyrirbirgði. Og ég verð að trúa því að hv. þm. hafi nægilega mikla víðsýni til að horfast í augu við þetta án þess að láta þröngsýn sjónarmið binda sig um of. Við þurfum auðvitað að vera íhaldssamir að vissu marki í ýmsum efnum og halda því, sem gott er, og hljótum að gera það. En þarna hafa komið fram svo margir hnökrar og svo margir þættir sem eru blettur á fyrirkomulagi prestkosninganna að við hljótum að líta á þetta svolítið nánar og gera tillögur um að breyta þarna um. Á hvern hátt þær till. verða er auðvitað í valdi þeirrar n., sem verður kosin, ef þáltill. verður samþykkt. Og ég held að það sé ekkert hættuspil að kjósa þessa n. Hún skilar sjálfsagt sínu áliti og við verðum svo að sæta því hvert það verður.