02.03.1976
Sameinað þing: 59. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2314 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)

178. mál, veiting prestakalla

Jónas Árnason:

Herra forseti. Hv. 6. þm. Reykv., Geirþrúður Il. Bernhöft, ég hygg að hún hafi ekki komist þannig að orði að við værum eingöngu að heimta, „altmuligmand“ sem presta úti í dreifbýlinu. Hins vegar taldi hún að það væri kannske ýmislegt þýðingarmeira í fari presta heldur en geta gert við mótora og annað slíkt. Við megum ekki snúa út úr orðum hennar. Þetta vildi ég segja út af því sem hv. þm. Páll Pétursson var að segja hér áðan. Að öðru leyti tek ég algjörlega undir það sem hann sagði fyrr á þessum fundi. Ég held að hvert það starf, sem unnið er af trúmennsku, samviskusemi og góðum hug, hvort heldur um er að ræða lærða eða leika, trúmenn eða trúleysingja, það sé hinn sanni boðskapur fagnaðarerindisins. Og þetta er okkur afskaplega mikils virði úti í dreifbýlinu.

En það hefur verið sagt hér á móti prestkosningum að þær séu ólýðræðislegar, og eitt af mörgu, sem hefur verið tínt til marks um þetta, er að presturinn sé kosinn til ótiltekins tíma og geti setið, ef hann sjálfur vill, meðan honum endist örendið. Söfnuðurinn getur ekkert við því gert. Þetta er að vísu rétt. En það stæði ekki á mér að styðja það, ef flutt yrði hér frv. um að stiga enn þá lengra í lýðræðisátt og kveða svo á að prestar skuli aðeins kosnir til fjögurra eða fimm ára. En sérstaklega vildi ég styðja það og beini því til hv. þm., hvort þeir væru ekki fáanlegir einhverjir til þess að flytja það mál hér fram að slík ákvæði verði látin gilda um mann sem situr í embætti biskups, jafnvaldamiklu embætti og það er, jafnáhrifamiklu, til góðs að sjálfsögðu, en sagan kennir okkur líka að mikil völd í slíkum embættum hafa oft leiti til ills. Ég tel það sjálfsagt að maður eins og biskup sé aðeins kosinn til 4–5 ára.