03.03.1976
Efri deild: 69. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (1928)
158. mál, vátryggingariðgjöld fiskiskipa
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég var því miður ekki staddur á nefndarfundi þegar fjallað var um þetta mál og því olli frómt frá sagt gleymska. Ég tel enga ástæðu til þess að amast við hugmyndinni um form á innheimtu sem hér er ráð fyrir gert, og af hálfu Alþb. verður ekki tafið fyrir afgreiðslu þessa máls hér í deildinni.