03.11.1975
Neðri deild: 12. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 335 í B-deild Alþingistíðinda. (195)
34. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Eyjólfur K. Jónsson):
Herra forseti. Það er auðvitað rétt sem síðasti ræðumaður sagði, að það má deila um skilning á þessari ákveðnu grein í bókhaldslögunum, þ. e. a. s. ;í. tölul. 2. gr. Ég lít svo á að löggjafinn hafi vísvitandi sleppt orðinu stjórnmálaflokkur í upptalningunni og þess vegna meira en orki það tvímælis, það a. m. k. orkar ekki tvímælis hver vilji löggjafans var. Hann hefði örugglega nefnt stjórnmálaflokka þegar hann telur upp öll möguleg félög önnur ef hann hefði ætlast til þess að þeir væru bókhaldsskyldir. En eins og í grg. með því frv., sem rætt verður hér á eftir, segir, þá er það flutt til að taka af öll tvímæli og skal ég ekki orðlengja það frekar.