04.03.1976
Neðri deild: 73. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2375 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)
158. mál, vátryggingariðgjöld fiskiskipa
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég held að það séu ekki nokkrar líkur á því að þetta 5% gjald nægi fyrir meðalbátinn og þá, sem eru fyrir neðan meðallag í afla, til greiðslu vátryggingariðgjalda. Þá á ég við dekkbáta og allt til togara.
Ég held að það sé ekkert áhorfsmál að með breytingu á sjóðakerfinu er lagt til að lækka tekjur Tryggingasjóðsins um helming, en þýðir í raun og veru mun meira í reynd vegna hækkandi vátryggingarverðs á fiskiskipaflotanum, svo að ég gæti trúað því að það, sem greitt verður í gegnum Tryggingasjóðinn, fari aldrei yfir 40% af heildargreiðslu iðgjaldanna, það sé algjört hámark.
Í sambandi við að það sé tekið of mikið af mönnum með þessum hætti, þá er ákaflega erfitt að ákvarða það fyrir fram. Þetta er nákvæmlega sama reglan og hefur verið í gildi í sambandi við Stofnfjársjóðinn. Þar er ekki gerður neinn greinarmunur á. Farið hafa 10% af aflaandvirði eða 15% nú upp á siðkastið í gegnum Stofnfjársjóðinn, alveg jafnt hvort viðkomandi skip hafa skuldað Fiskveiðasjóði eða öðrum stofnlánasjóðum. Menn hafa svo fengið þetta endurgreitt eftir ákveðnum, vissum reglum.
Ég hygg að það séu allir bátar tryggðir, meira að segja eru tryggðir opnir bátar. Ef menn eiga báta, þó að þeir séu opnir, þá finnst mér það lítil hyggindi hjá hverjum manni að tryggja ekki sínar eigur, og það á ekki að vera til fyrirstöðu að það eigi að sleppa þeim sem hafa eigur sínar ótryggðar. Það voru líka til menn sem tryggðu ekki sjálfa sig og hefur verið reynt að ná til þeirra á þennan hátt og voru allir sammála um.
Ég sé ekkert á móti því að Landssamband ísl. útvegsmanna taki við þessum greiðslum. Ég kæri mig ekki um að Tryggingasjóður fiskiskipa taki þessi umsvif öll á sig. Það kostar töluvert fé og töluverða fyrirhöfn. Ef Landssamband ísl. útvegsmanna lýsir yfir að það skuli taka þetta að sér, og þá verður að standa mánaðarlega í skilum við tryggingarfélag viðkomandi báts. Það er alveg rétt, það eru ekki líkt því allir minni bátar félagsbundnir í þeim samtökum, en eigi að siður, samkv. þessu frv. er skylda LÍÚ að koma þeim iðgjöldum áleiðis og vinna það fyrir ekki neitt. Það á að fá vexti af innistæðum á þankareikningi fyrir sína fyrirhöfn, og ég hygg að það sé nokkuð vel sloppið.
Enn fremur vil ég minna á að í 5. gr. frv. segir að sjútvrn. geli selt nánari reglur um framkvæmd laga þessara. Þá er auðvitað hægt, ef það kemur í ljós að einhverjir agnúar eru í framkvæmd, að setja fyllri og ákveðnari reglur. Best hefði verið ef hægt hefði verið, eins og frv. gerir ráð fyrir, að skylda viðskiptabankana til þess að halda eftir 5% af aflaandvirði. Þá hefði það auðvitað verið best og fyrirhafnarminnst, að víðskiptabankarnir hefðu tekið á sig þessa kvöð. En það þykir nokkuð djarft að leggja stórfellt skrifstofuhald á ákveðnar stofnanir, að gera það fyrir ekki neitt, og þegar heildarsamtök útvegsins vilja sjálf og bjóðast til að annast þennan þátt málsins, þá gátum við í sjútvrn. ekki sett okkur upp á móti því og vildum ekki setja okkur upp á móti því. Þetta er ástæðan fyrir því að farið er inn á þessar brautir. En hitt er alveg rétt, eins og hv. síðasti ræðumaður gat um, það má hafa framkvæmdina með ýmsu móti. En ég sé ekki að framkvæmdin geti orðið einfaldari og ódýrari í senn heldur en sú sem frv. gerir ráð fyrir.