04.03.1976
Neðri deild: 73. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2378 í B-deild Alþingistíðinda. (1983)
143. mál, flokkun og mat ullar
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. á þskj. 304 var flutt í Ed. og fór í gegnum þá d. án breytinga með shlj. atkv. Ég tel samt rétt, af því að hér er um verulegt mál að ræða, að gera þessari hv. d. einnig grein fyrir málinu.
Árið 1972 skipaði landbrh. n. til þess að gera till. um flokkun og mat og meðferð á ull og gærum. Í n. voru dr. Stefán Aðalsteinsson, sem var formaður hermar, Agnar Tryggvason framkvæmdastjóri, Ingi Tryggvason núv. alþm., Ragnar Ólafsson forstjóri á Akureyri og Sveinn Hallgrímsson sauðfjárræktarráðunautur. Frv. þetta er árangur af störfum þeirrar nefndar.
Lög um mat ullar eru úrelt, enda eru þau að stofni til frá 1933 og með breyt. sem gerðar voru voríð 1947 og eru því miðaðar við heimaþvott á ull. Lagaákvæði skortir til að láta flokka alla ull frá framleiðendum, en oft hefur hún verið keypt án flokkunar þegar mikil samkeppni hefur verið um ullarkaupin. Þessi verslunarmáti hefur ýtt undir þann hugsunarhátt að mikið ullarmagn sé aðalkeppikefli, en minna hvatt til þess að auka gæði ullarinnar.
Á síðari árum hefur ullariðnaður stóraukist í landinu. Meginuppistaðan í iðnaðarútflutningi okkar fyrir utan stóriðju, ál og kísilgúr, er ullariðnaður og gærur. Vegna lækkandi verðs á ull til bænda hefur gæðum ullarinnar stórhrakað. Mikið hefur skort á að ull komi öll til skila og oft laklega hirt. Rannsóknastofnun landbúnaðarins telur að á þeim búum, sem eru í hennar þjónustu, komi 2.2 kg að meðaltali eftir hverja vetrarfóðraða kind. Miðað við það ættu a.m.k. að vera á landinu um 2 kg eftir hverja kind eða mer 10% minna en þekkst hefur á búum hjá Rannsóknastofnuninni. Árið 1972 var innlagt ullarmagn 1400 tonn, en hefði átt að vera samkv. þessari formúlu 1572 tonn. Til innleggs vantar því um 11 % eða 172 tonn. Árið 1973 var innleggsmagnið minna þrátt fyrir fjölgun fjár um 5.4%. Innlegg var þá 1438 tonn, en hefði átt að vera 1657 tonn. Vantar því um 219 tonn eða 13%. Ullarverð til bænda þyrfti að vera hærra. Í skýrslu um eflingu ullariðnaðar og skinna frá Iðnþróunarstofnuninni er einmitt vakin athygli á þessu. Á árinu 1974 nam ullarútflutningur 1573.8 millj. kr., en á árinu 1975 var hann rúmir 2 milljarðar eða aukningin var 547 millj. kr. og voru þá landbúnaðarvörur um 8% af útfluttum vörum íslendinga. Í þessum tölum er m.a. tekið tillit til þess sem selt var í gegnum Íslenskan markað og í Rammagerðinni þar sem eingöngu er um íslenskar vörur að ræða að því er ullarvörur varðar. Það ber því mikla nauðsyn til að efla ullarframleiðslu og gæði ullarinnar.
Ég hef nú nýlega lagt fyrir ríkisstj. athugun á því að hækka verð ullarinnar með tilfærslu á milli niðurgreiðslna á kjöti og ull, með því að hækka verð ullarinnar, en lækka aftur verð á kjöti. Það mál er nú til athugunar hjá hæstv. ríkisstj. og ég geri mér vonir um að fá þar jákvæðar undirtektir, enda mundi þessi leið, ef valin yrði, verða hagkvæmari og kosta minni niðurgreiðslur en að öðrum kosti er og spara bæði niðurgreiðslur og útflutningsuppbætur. það er talið að það ætti að vera tiltölulega auðvelt að sjö- til áttfalda ullariðnað hér á landi, og með fjórföldun á framleiðslu á ull og gærum sem iðnaðarvörum hér ætti að vera hægt að ná svipuðum gjaldeyristekjum og með álframleiðslunni. Ég vil vekja athygli á að hér er því um stórmál að ræða. Það, sem skortir nú á, auk þess að ullin er illa hirt af sauðfénu, er að um 20% af henni fer í lakari gæðaflokk en ástæða er til að ætla að þyrfti að fara.
Árið 1974 voru flutt inn 203 tonn af hreinni ull, sem svarar til 300–350 tonna af óhreinni ull. Mikið er hægt að bæta ullarframleiðsluna og auka hana með bættri aðferð og umhirðu. Vetrarrúningur gefur betra hráefni fyrir ullariðnaðinn og kefst einnig betra fóðurs hjá bændum og góðra útihúsa. Þessa ull þarf að greiða hærra verði til bænda ef þeir eiga að skila henni á þessum árstíma.
Verðlagning og flokkun á ull er virkasta leiðin til þess að efla og bæta ullarframleiðsluna og með því að efla þann iðnað sem okkur er gagnlegur og vænlegur til gjaldeyrisöflunar. Breyting frá núverandi flokkunaraðferðum er að bændum er ætlað að flokka ullina. Með því ættu þeir að gera sér betri grein fyrir nauðsyn þess að hafa ullarmeðferðina betri en að öðrum kosti er. Gert er ráð fyrir flokkun á ull við móttöku, en nú er hún eingöngu flokkuð hjá ullarþvottastöðvum eftir að hún hefur oft og tíðum legið þar um langan tíma.
Yfirullarmatsmenn skulu vera 4 á landinu með ákveðin svæði, og formaður skal skipaður af rn. sérstaklega. Þetta er mjög líkt fyrirkomulag og er með kjötmatið. Kostnaður við kjötmatið á sl. ári var rúm milljón kr., en kostnaður við ullarmat um 100 þús.
Með þessum orðum hef ég, herra forseti, gert grein fyrir þessu frv. Ég vil endurtaka það, að brýna nauðsyn ber til að koma þessum málum í fast horf og flokka ullina til gæðamats á þann hátt, sem hér er lagt til, og ganga í það að ull verði betur hirt en nú er gert. Hér er um hagsmunamál fyrir framleiðendur að ræða og fyrir þjóðarbúið í heild því að ullin er að verða verulegur útflutningur. Í ullariðnaði og skinna er um veruleg verðmæti að ræða sem við megum ekki glata.
Ég legg til, herra forseti, að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. landbn. Ég leyfi mér að vona að þessi hv. d. verði eins hröð í afgreiðslu á þessu máli og reyndin varð í l.d. og það þurfti því ekki að vera til tafar þegar líður að þinglokum, heldur geti það orðið afgreitt sem fyrst.