04.03.1976
Neðri deild: 73. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (1988)

172. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Það hefur varla farið fram hjá nokkrum manni að um langt skeið hefur athygli þjóðarinnar beinst að framkvæmd dómsmála í landinu í ríkari mæli en oftast áður. Það mun einnig vera flestum ljóst að tilefni þessa er án efa að upp hefur komist um stórfelld smyglmál sem virðast gefa tilefni til að ætla að hér kunni að starfa skipulagðir hringar afbrotamanna, enn fremur að upp hefur komist um mjög alvarleg afbrot sem virðast vera tengd þessum smyglmálum og í þriðja lagi að upp hefur komist um fjármálaóreiðu og skattalagabrot hjá fyrirtækjum og einstaklingum sem einnig virðast vera tengd þessum sömu smyglmálum.

Nú er það svo að við íslendingar höfum lengi lifað í þeirri sælu og góða trú að þjóðfélag okkar væri að mestu laust við ýmsar tegundir stórafbrota og glæpa sem ekki eru óalgengar í öðrum löndum. En þróun undanfarinna ára og þá alveg sérstaklega nú nýlega þau mál, sem ég nefndi, hafa orðið til þess að marga hefur sett hljóða og menn hafa velt því fyrir sér hvort þessi gamli skilningur okkar sé ekki á misskilningi byggður.

Hæstv. dómsmrh. gerði mjög skýra grein fyrir því í framsöguræðu sinni hverjar breytingar hafa orðið á þjóðfélagi okkar á síðustu áratugum og að þessar breytingar hafa því miður haft í för með sér stórfellda aukningu á margvíslegum tegundum afbrota. Það er því von að margir hugsandi menn spyrji hvort það kerfi, sem dugði okkur í fortíðinni og allt fram undir síðustu áratugi á dómsmálasviðinu, dugi við núverandi aðstæður. Menn spyrja hvort þetta kerfi valdi, þótt ýmsar endurbætur hafi verið á því gerðar, verkefnum eins og þeim sem nú krefjast úrlausnar, ef mögulegt er skjótrar og afgerandi úrlausnar.

Ég vil taka það fram, af því að hæstv. ráðh. sá sérstaka ástæðu til að nefna að það hefðu líka verið framin afbrot síðasta áratug, að ég vil ekki ræða þetta mál í neinu samhengi við, hvaða ríkisstj. hafa setið hér á landi, og held að það hafi ekki áhrif á þetta mál sem úrslitum ráða. Enn fremur vil ég benda á sama vandamál er fyrir hendi í nálega öllum nágrannaríkjum okkar, hvernig sem stjórnarfar þeirra er, þ. á m. í bestu lýðræðisríkjum, mörgum þeim sem eru stórum betur búin að lögregluliði og öðru slíku starfsliði heldur en við höfum verið. Það er svo alvarlegt ástand í þessum efnum að orðin „lög og réttur, friður og öryggi einstaklinganna“ eru orðin kosningaslagorð í löndum ekki langt frá okkur, þannig að sennilega er rétt og óhjákvæmilegt, ekki síst með tilliti til nútímasamgangna, að líta á hin stórvaxandi vandamát á þessu sviði hér á landi í samhengi við það sem því miður hefur gerst einnig í öðrum löndum.

Það hefur lengi verið ljóst, sérstaklega lærðum mönnum, en leikum líka, að á dómskerfi okkar eru ýmsir alvarlegir gallar sem margir hverjir eru arfur frá löngu liðnum tímum. Þetta er sérstaklega í sambandi við það að dómsvald og framkvæmdavald er ekki fullkomlega aðskilið. Hér eru enn í dag einstaklingar sem bæði eru lögreglustjórar, eiga síðan að dæma í þeim málum sem eru rannsökuð undir stjórn þeirra, en hafa þar að auki umfangsmikla stjórnsýslu fyrir þjóðfélagið. Þetta var e.t.v. eðlilegt á sínum tíma, bæði af því að menn hugsuðu á annan hátt um réttarfarsmál og einnig af því að þjóðfélag okkar er smátt, við verðum að gæta kostnaðar og höfum því verið seinir til þess að skipta þessum verkefnum sem þó í mörgum atvikum eiga mjög illa saman.

Gagnrýni á dómsmálakerfið hefur verið margþætt. Oftast heyrist þó talað um hinn mikla seinagang mála, bæði í rannsóknum og ekki síst fyrir dómurum, sem hér á landi hefur verið, að vísu landlæg plága um allar jarðir, en mjög slæm hér. Þarf ég ekki að útmála ferkar hversu slæmt það er, ef alvarleg mál dragast. En það er líka mjög hvimleitt og dýrt fyrir einstaklinga, sem þurfa að leita réttar síns í smærri málum er geta verið þýðingarmikil fyrir þá, að þurfa að bíða árum eða, jafnvel áratugum saman eftir úrlausn.

Þá er algengt að heyra þá gagnrýni að hér á landi sé hart gengið fram í því og af miklum dugnaði að koma upp um smáafbrot og oft afbrot ungs fólks sem í fyrsta skipti leiðist út á slíka óheillabraut, nöfn slíkra manna og kvenna séu jafnvel birt, en stórlaxarnir sleppi. Það kann að vera nokkurt ábyrgðarleysi að sletta slíkum palladómum eins og þessu, að stórlaxarnir sleppi, og. ég vil taka það fram að ég er sammála hæstv. dómsmrh. um það að oft er talað af takmarkaðri þekkingu um þessi mál. En almannarómur af slíku tagi getur engu að síður verið hættulegur, af því að hann grefur undan tiltrú fólksins á dómsmálakrefinu og því þjóðfélagi sem það býr í. Ég hygg, að þessi hugmynd, sem er svo algeng og við heyrum svo oft í daglegu lífi, að litla fólkið verði að taka út refsingu og sé dæmt, en stórlaxarnir sleppi, standi að verulegu leyti í sambandi við það, sem hæstv. ráðh. einnig minntist á, að fjárhagsleg afbrot af ýmsu tagi hafa farið stórkostlega vaxandi. Það er kannske ekki síst í sambandi við þá hluti sem fólki finnst það sjá fyrir sér framferði fjársterkra einstaklinga er hljóti að brjóta í bága við lög, t.d. skattalög, án þess að þeir þurfi nokkurn tíma að svara fyrir það, hvað þá að taka út refsingar og þetta sé það sem veldur því að hugmyndin um, að stórlaxarnir sleppi í íslensku réttarfari, er jafnútbreidd og raun ber vitni.

Kunnugt er hversu ófullkomnu fangelsiskostur okkar íslendinga er. Nú vil ég taka það fram, að ég hef samúð með skoðunum þeirra manna sem hafa látið í ljós að fangelsi séu óskemmtilegar stofnanir og það séu miklu þyngri refsingar heldur en flestir gera sér grein fyrir að loka menn inni, þó að það sé ekki í mikinn fjölda ára. Þrátt fyrir þetta hygg ég að það sé óhjákvæmilegt að sjálfstætt nútímaþjóðfélag verði að hafa nokkurn fangelsiskost. Og sérstaklega hefur það verið gagnrýnt, að minni hyggju með miklum rétti, að í þessum litlu og ófullkomnu fangelsum okkar er stundum blandað saman allforhertum, gömlum afbrotamönnum, sem hafa átt í útistöðum við þjóðfélagið mestalla sina ævi, og ungum og kannske lítt hörðnuðum,unglingum sem — verða fyrir þeirri ógæfu að brjóta lög og hljóta dóm í fyrsta skipti. Það er kunnugt að dómsmrh. hafa um nokkurt árabil íhugað þessi mál og látið vinna ýmiss konar undirbúningsvinnu, en þetta hefur verið eins og hálfgert feimnismál. Ég hygg, að a.m.k. svo langt aftur sem ég þekki til hafi fangelsismál sjaldan eða aldrei fengið neinar undirtektir hér á hv. Alþ. Er það vafalaust rétt, sem oft er fært fram okkur alþm. til gagnrýni, að við séum áhugasamari um að draga fé í einhverjar framkvæmdir í kjördæmum okkar sem við getum hælt okkur af til að reyna að vinna fylgi, en láta fram hjá okkur fara stofnanir eða óhjákvæmileg útgjöld, sem snerta þjóðfélagið allt og verða aldrei til þess að neinn maður vinni fyrir það atkv.

Í sambandi við lagasetningu og lög, sem eiga að vera undirstaða þjóðfélags okkar, er það gömul viska að ekki þýðir að setja lög sem ekki finna hljómgrunn í réttlætistilfinningu alls þorra landsmanna. Það er ógæfa þegar löggjafinn telur óhjákvæmilegt að setja lög sem fólkið síðan ber ekki almenna virðingu fyrir og eru brotin í stórum stíl. Hér á landi er nokkuð af slíkum lögum, og má þar nefna tvo flokka: lög, sem fjalla um smygi, annars vegar og lög, sem fjalla um skattamál, hins vegar. Það er eðlilegt að smygl sé vandamál í litlu eylandi — þar sem siglingar til og fá eru miklar og flug nú orðið mikið, en þjóðfélagsaðstæður hafa valdið því að t.d. áfengi og tóbak er selt af ríkinu á mjög háu verði. Skapast því óhjákvæmilega möguleikar fyrir allmikinn gróða af smygli, jafnvel þó að smyglararnir standi sig vel í samkeppni um verð á móti ríkinu. Mun ekki ofsögum af því sagt að allur almenningur lítur mildum augum á smyglmál almennt, telur að dálítið smygl af hendi sjómanna, flugmanna og hinna gífurlega mörgu ferðamanna sé ekki nema gott og gilt. Hitt er annað mál, að þetta — getur orðið að mjög alvarlegri þjóðfélagsmeinsemd ef smyglið verður, eins og Pétur heitinn Benediktsson orðaði það, að starfsemi „bófahringa“ og þær upphæðir, sem veitt er í þeirri starfsemi, verða svo stórar að menn seilast til hinna svívirðilegustu afbrota-til þess að reyna að hindra, að upp komist.

Ég vil taka undir það með hæstv. ráðh., að þróunin í þessum málum öllum hefur verið mjög til hins verra hér á landi eins og í nágrannalöndum okkar og það er rík ástæða til að dómsmálakerfinu sé breytt til þess að það verði vel undir það búið að mæta þessari auknu afbrotaöldu og halda uppi lögum og reglu með skaplegum hætti. Umbætur hafa vissulega verið gerðar á dómsmálunum, eins og öllum er kunnugt, t.d. þegar embætti saksóknara ríkisins var sett upp, sem var mjög merkilegt skref, með því að setja upp fíknilyfjadómstólinn og ýmsu fleiru. Skilningur,á þörfum slíkra umbóta kom að sjálfsögðu fram þegar skipaðar voru nefndir til þess að endurskoða þessi lög á árinu 1972 af hæstv. núv. og þáv. dómsmrh., en frv. þau, sem hér liggja fyrir, munu öll vera samin af þeim nefndum.

Ég tel að það sé mjög tímabært að frv.,það, sem við nú ræðum, kemur fram. Ég vil taka undir þá skoðun að samþykkt þess muni reynast stórt spor í rétta átt á þessari braut. Þó að margir einstaklingar vinni vel á sviðum lögreglu- og tollamála hér á landi tel ég ástæðu til að styrkja þessa sveit, ekki síst með því, sem er sérstaklega nefnt í grg., bókhaldsrannsóknum og öðru slíku til þess að þessar stofnanir þurfi ekki að stöðvast algerlega ef þær fá í hendur vitlaust og vanrækt bókhald fyrirtækis, eins og við höfum því miður heyrt dæmi um.

Það er algert grundvallaratriði fyrir farsæla þróun þjóðfélags okkar að hér ríki fullkomin tiltrú einstaklinganna til ríkisvaldsins, og sú tiltrú verður að vera undanbragðalausttraust á því, að réttarfar sé eins fullkomið og hægt er að hafa það og mál fái skjóta og góða rannsókn og síðan dóm eftir efnum og ástæðum, án þess að þau dragist eða nokkur geti fundið tilefni til að halda fram að ekki gangi sömu lög yfir alla einstaklinga. Þegar þróunin verður á þá lund sem hefur verið lýst, að stórfelld aukning svo til allra tegunda afbrota gengur yfir þjóðina og hér fer að bera bæði á afbrotahringum og stórafbrotum af því tagi sem við höfum blessunarlega talið okkur laus við til skamms tíma, er ástæða til að ætla að ef ekki verður spyrnt við fótum geti tiltrú einstaklinganna á ríkisvaldinu, þjóðfélaginu og réttarkerfinu minnkað.

Við höfum sparað okkur kostnað af dómskerfinu á liðnum tímum vegna þess að fólkið hefur ekki fundið eins ríka þörf fyrir það og ég tel að sé fyrir hendi í dag. En þegar þróunin verður á þessa lund og ástæða er til að óttast um tiltrú almennings á réttarkerfinu, þá tel ég að það sé tvímælalaus skylda Alþ. að láta ekki standa á þeim fjármunum sem að bestu manna yfirsýn eru nauðsynlegir til þess að ráða bætur á kerfinu, svo að það geti valdið þessum auknu verkefnum.

Ég vil að lokum taka undir það sem hæstv. ráðh. sagði, að jafnframt því sem við höldum áfram að þróa og bæta réttarkerfið skulum við hafa í huga að við viljum öll búa við jafnrétti og réttarríki, en við viljum ekki fá yfir okkur neins konar lögregluríki.