04.03.1976
Neðri deild: 73. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2389 í B-deild Alþingistíðinda. (1989)

172. mál, rannsóknarlögregla ríkisins

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Mér finnst rétt að segja örfá orð um þetta frv. nú þegar við þessa umr.

Með lögum skal land byggja. Þau orð eru lögð í munn Njáli hinum spakvitra á Bergþórshvoli, og þar er þau fyrst að finna í íslenskum heimildum, að ég ætla, en voru áður alþekkt í norrænni löggjöf. Þessi orð hafa öldum saman verið yfirskrift og markmið í löggæslu- og réttarfarsmálum okkar íslendinga.

Hæstv. dómsmrh. hefur nú reifað þetta frv. allítarlega og skýrt frá því að það á sér langan aðdraganda. Hann vék m.a. að frv., sem lagt var fyrir Alþ. árið 1948 um meðferð opinberra mála og á þeim tíma var samið af hinum færustu mönnum, en náði ekki fram að ganga nema að hluta. Þannig hefur þróunin verið í þessum málum. Þau taka yfirleitt ekki stökkbreytingum, en hafa þróast eftir því sem byggðin hefur eflst, fólki fjölgað á höfuðborgarsvæðinu og öðrum aðstæðum.

Án þess að ég ætli að fara að þakka mér eitthvað í þessu frv. sem ég fagna, þá vil ég þó aðeins minnast á það að hinn 17. apríl 1968, eins og raunar er bent á í grg., samþykkti Alþ. að fela ríkisstj. að undirbúa breytta skipan á yfirstjórn lögreglunnar í Reykjavík, þannig að bæði hin almenna lögregla og rannsóknarlögregla heyri framvegis undir lögreglustjóra. Þetta var ályktað samkv. till. til þál. sem ég hafði flutt um þetta efni.

Það var svo borið fram frv. samkv. þessari ályktun á Alþ. 1969–1970, einnig samið af hinum hæfustu mönnum á þessu sviði, en náði ekki fram að ganga. Mér finnst rétt að vitna í grg. þessa frv., því að þar eru tekin upp atriði sem ég gerði að meginmáli í mínum rökstuðningi á sínum tíma. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Aðalatriðið, sem í frv. felst, er að yfirsakadómarinn í Reykjavík verður eigi lengur yfirmaður rannsóknarlögreglunnar í Reykjavík svo sem nú er. Er þar með stigið spor í þá átt að aðskilja dómsvald í opinberum málum og lögreglustjórn þó að eigi þyki fært að stiga það skref til fulls. Tæplega verður um það deilt að rétt sé að fylgja fordæmi annarra þjóða um slíkan aðskilnað. Vísast um þetta til þess sem tekið var upp hér að framan úr grg. með frv. frá 1948.“

Þetta kemur nákvæmlega heim við minn rökstuðning og mitt álit á þessum málum sem styðst við nokkra reynslu.

Ég hef jafnan talið að lögreglan ætti að vinna sem mest í einni heild, en vera þó skipt í deildir skipaðar sérhæfðum mönnum sem annist hin mestu viðfangsefni hvers tíma. Og að því er vikið í grg. á bls. 5, þar sem bent er á að eðlilegt sé að lögreglan hafi með höndum rannsóknir í ávana- og fíkniefnamálum. Gæti sérstök deild innan rannsóknarlögreglu ríkisins haft þau mál með höndum. Skapaðist þá möguleiki til þess að unnt yrði að leggja niður stofnun þá sem nú annast rannsókn þeirra mála.

Ég man eftir því að þegar lög voru sett um sérstakan dómara í fíkniefnamálum, þá benti ég einmitt á þetta atriði, að í staðinn fyrir nýtt embætti, sérdómstól, og setja á stofn sérstakan aðila, sem færi með þessi mál, væri eðlilegra að fela þetta verkefni almennum dómstólum og sérhæfðum lögreglumönnum. Ég verð því einnig að fagna þessu atriði frv. Frv. er að vísu ekki nákvæmlega eins og ég hafði gert mér í hugarlund á árunum 1967–1968, en það er ofureðlilegt, því að þróun þessara mála hefur orðið svo ör að hún kallar á breytta skipan svo til með hverju ári sem líður. Við þurfum ekki að fara ýkjalangt aftur í tímann til þeirra tíma þegar nánast engin afbrot voru framin hér á landi eða a.m.k. hin stærri afbrot voru mjög fátið. En einnig að þessu leyti höfum við þróast áfram með öðrum menningarþjóðum og höfum þess vegna við ýmis viðfangsefni að fást í dag sem voru nánast óþekkt fyrir nokkrum árum eða áratugum.

Þetta frv. verður að sjálfsögðu að skoða vandlega og senda það ýmsum aðilum til umsagnar. Svo er með allar breytingar á löggjöf í þessum efnum. En það er samið af hæfum og reyndum mönnum, það bendir á leiðir og breytt skipulag sem líklegt er til að bæta réttarkerfið og samræma það kröfum tímans.