10.10.1975
Sameinað þing: 1. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2 í B-deild Alþingistíðinda. (2)
Forseti Íslands setur þingið
Forseti Íslanda (Kristján Eldjárn) :
Hinn 16. f. m. var gefið út svofellt bréf:
„Forseti Íslands gjörir kunnugt:
Ég hef ákveðið samkv. till. forsrh., að Alþingi skuli koma saman til fundar föstudaginn 10. okt. 1975.
Um leið og ég birti þetta, er öllum, sem setu eiga á Alþingi, boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur, og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni, sem hefst kl. 13.30.
Gjört í Reykjavík, 16. september 1975.
Kristján Eldjárn.
Geir Hallgrímsson.
Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar föstudaginn 10. október 1975:“
Samkv. bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að Alþingi Íslendinga er sett.
Ég býð alla alþm. velkomna til þingstarfa. Landsmönnum öllum er ljóst að þegar þetta þing kemur saman eru fram undan brýn úrlausnarefni í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar og sú spurning er mönnum rík í huga hvernig vér berumst af í áframhaldandi baráttu vorri fyrir fullum yfirráðum yfir hafsvæðunum kringum land vort. Af þessum sökum hygg ég að ekki sé ofmælt að allur þorri landsmanna gefi því meiri gaum nú en oft endranær að Alþingi kemur saman og tekur til starfa. Ég þykist þess því fullviss að ég mæli fyrir munn mikils fjölda manna um allar landsins byggðir, þegar ég nú læt í ljós þá ósk og von að störf Alþingis og ríkisstj. verði gifturík og leiði til góðs farnaðar fyrir land og þjóð. — Að mæltum þeim orðum bið ég þingheim allan að minnast fósturjarðarinnar með því að rísa úr sætum.
[Þingmenn risu úr sætum og forsætisráðherra, Geir Hallgrímsson, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.“ — Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.]
Samkv. 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Guðlaug Gíslason, 3. þm. Suðurl., að ganga til forsetastóls.
Forseti íslands tók sér sæti í þingsalnum, en aldursforseti gekk til forsetastóls og tók við fundarstjórn.