09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2446 í B-deild Alþingistíðinda. (2035)

176. mál, atvinnuleysistryggingar

Fyrirspyrjandi (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram við hæstv. heilbr: og trmrh. eftirfarandi fsp.

„Hvað hefur ríkisstj. gert til þess að framkvæma könnun um það á hvern hátt megi veita öllum konum í landinu fæðingarorlof sem um ræðir í ákvæði til bráðabirgða í l. nr. 56 1975 um breyt. á l. nr. 57 27. apríl 1973, um atvinnuleysistryggingar (fæðingarorlof).“

3. febrúar s.l. svaraði hæstv. heilbrrh. þessari fsp. sem hv. þm. Axel Jónsson hafði lagt fram snemma á þessu þingi. Ég leyfi mér að bera þessa fsp. aftur fram þar sem mér fannst hæstv. ráðh. ekki hafa gert lagalega skyldu sína í þessu máli, þ.e.a.s. að láta kanna hvaða valkostir eru fyrir hendi til að allar konur í landinu geti hlotið fæðingarorlof. Þessi könnun átti að fara fram fyrir 1. jan. 1976, en í svari hæstv. ráðh. kom fram að ekkert væri farið að kanna þetta mál þrátt fyrir bein lagafyrirmæli að það skyldi gert. Í umr. um þessa fsp. 3. febr. s.l. kom ekki fram hvað mikill hluti kvenna býr við það öryggi að verða þeirra hlunninda aðnjótandi að fá fæðingarorlof og hvað stór hluti býr við öryggisleysi að þessu leyti. Ég veit ekki til þess að gerð hafi verið athugun á því hvað slíkt mundi kosta t.d. fyrir almannatryggingakerfið, ef að því væri horfið að þær yrðu látnar bera kostnað af fæðingarorlofi þeirra kvenna sem engar slíkar greiðslur fá nú.

Þó að miklir fjárhagsörðugleikar hrjái okkar þjóðfélag nú, þá réttlætir það ekki að mismuna konum á þennan hátt, því að eins og þessi mál standa nú get ég ekki betur séð en að þær konur, sem eru í mestri þörf fyrir fæðingarorlof, fái það ekki. Það væri líka hægt að hugsa sér að ná þessu marki í áföngum á einhverju árabili, t.d. á þremur árum, fyrsta árið fengju þær konur, sem nú fá ekkert fæðingarorlof, greiðslu í einn mánuð, á öðru ári tvo mánuði og þriðja árinu fengju þær fullt fæðingarorlof eða greiðslu í þrjá mánuði. En umfram allt, það þýðir ekki að samþ. lög hér á hv. Alþ. ef þeim er svo ekki framfylgt. Því skora ég á hæstv. heilbrrh. að láta þessa könnun fara fram nú þegar og gera hv. alþm. grein fyrir niðurstöðum hennar strax og þær liggja fyrir. Þá fyrst er grundvöllur fyrir því að gera ákveðnar till. um lausn þessa máls, en fyrr ekki.