09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2447 í B-deild Alþingistíðinda. (2036)
176. mál, atvinnuleysistryggingar
Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég leyfði mér að skrifa hæstv. forseta Sþ. bréf varðandi þessa fsp. og í því bréfi segir að vegna þessarar fsp. leyfi ég mér að benda á að ég svaraði fsp. um sama efni á 43. fundi í Sþ. hinn 3. febr. 1976. Fyrirspyrjandi var þá Axel Jónsson alþm. Ég leyfi mér að vísa til svars við fyrrgreindri fsp., eins og það birtist í Alþt. frá 3. febr., 12. hefti 1975–1976, dálki 1666–1667. Ég tel óeðlilegt að fsp. berist um sama efni eiginlega fund eftir fund. Ég tel það ósamboðið vinnubrögðum og virðingu Alþ. að leyfa slík vinnubrögð. Einhver þriðji þm. getur svo aftur tekið þessa fsp. upp í næstu viku, ef honum líkar ekki umr. sem fram fóru, og þannig má halda áfram. Þannig má fara með fleiri fsp.
Nú ætla ég ekki að tala meira um þetta efni, en koma inn á það sem hv. fyrirspyrjandi — núv. fyrirspyrjandi — sagði að ég lýsti því yfir við þessar umr., eins og sjá má í Alþt. sem ég vitnaði til, að ríkisstj. hefði ekki við afgreiðslu fjárl. treyst sér til að taka inn í till. fæðingarorlof fyrir allar konur í landinu. Það var fyrst og fremst ákvörðun um að endurskoða lög um almannatryggingar. Sú endurskoðunarhefnd hefur þegar hafið starf, eins og fram kom í þessum umr. Hitt er svo annað mál, að mér hefur ekki líkað alls kostar vel að það hefur ekki verið nógu mikill hraði á þeirri endurskoðun. En þetta mál verður ekki að mínum dómi, hvað sem líður lagafyrirmælum, tekið upp og framkvæmt eitt og sér, ef við þurfum að stíga svo aftur skref aftur á bak í ýmsum öðrum liðum trygginganna. Þetta verður allt að skoða í einu lagi, eins og sú breyt. á atvinnuleysistryggingalögunum, sem samþ. var á s.l. ári, varð að bíða framkvæmda til 1. jan. 1976. Hitt er alveg hárrétt hjá hv. fyrirspyrjanda, að skv. lögunum átti að gera þessa könnun.
En við skulum ekki líta á þetta eina mál, heldur marga tugi mála, þar sem kannanir hefur átt að gera. af stjórnvöldum og þær hafa ekki verið inntar af hendi á tilskildum tíma. Þetta eru ástæðurnar fyrir því að þessi könnun hefur ekki átt sér stað. Könnunin er ákaflega lítils virði og hún verður sængurkonunum, sem ekkert fá af fæðingarorlofi atvinnuleysistrygginganna, ekki að nokkru gagni. Aðalatriðið er hvernig á að framkvæma og afla fjár til þess að að greiða þessa fæðingarstyrki.
Ég er algjörlega sammála hv. fyrirspyrjanda í því að það er ranglátt að allar konur í landinu njóti ekki styrks með sama hætti. En það var samþ. á s.l. ári, frv. um breyt. á atvinnuleysistryggingalögunum, og það kom til framkvæmda í janúarmánuði. Það voru erfiðar fæðingarhríðir að koma þeirri reglugerð áleiðis. Sú reglugerð fæddist ekki á einum og sama degi. En þar vorum við í heilbr.- og trmrn. að framfylgja landslögum. En þetta atriði hvað varðar könnunina verður að bíða heildarendurskoðunar á almannatryggingalögunum. Ég hef beðið formann þeirrar n. að taka upp í heildarendurskoðunina þetta mál allt í heild og það fyrir alllöngu.