09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2449 í B-deild Alþingistíðinda. (2040)

159. mál, sjálfvirkt símkerfi um sveitir landsins

Fyrirspyrjandi (Ingiberg J. Hannesson):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram á þskj. 340 fsp. til hæstv. samgrh., svo hljóðandi:

„Hefur verið gerð tímaáætlun um dreifingu sjálfvirka símakerfisins um sveitir landsins?“ Að undanförnu hafa átt sér stað hér á Alþ. nokkrar umr. um símamál og þá þjónustu sem landsmenn ætlast til að síminn veiti úti um hinar dreifðu byggðir landsins. Enn fremur hafa orðið hér umr. um þann aðstöðumun sem ríkir í þessum efnum milli þéttbýlissvæða og hinna dreifðu byggðarlaga. Það er því e.t.v. að sumra áliti að bera í bakkafullan lækinn að innleiða hér enn umr. um þessi mál. Ég álít þó að þessi fsp. snúist um sérstakt svið þessara mála, sem er dreifing sjálfvirka símakerfisins um sveitir landsins, þau byggðarlög einmitt sem verða að mörgu leyti afskipt hvað þjónustu snertir af hálfu hins opinbera og er það að mörgu leyti að vonum, svo erfitt og kostnaðarsamt sem það tíðum er að veita þar þá þjónustu sem sambærileg getur kallast miðað við hinar fjölmennari byggðir.

Það er augljóst mál að lega landsins og aðstæður allar skapa óhjákvæmilega aðstöðumun sem erfitt er að ráða við. En ef við eigum að byggja þetta strjálbýla land, þá verða þeir, sem í dreifbýlinu búa, að gera þá kröfu að sinnt sé um hagsmuni þeirra til jafns við hagsmuni þéttbýlisins, að svo miklu leyti sem kostur er, þó auðvitað sé aldrei hægt að uppræta þann mun að fullu.

Í öllum samskiptum manna hefur síminn sitt mikla gildi, og við, sem búum úti á landi, þurfum á þjónustu hans að halda engu síður en íbúar á höfuðborgarsvæðinu og öðrum þéttbýlisstöðum landsins. Það er því ekki að ástæðulausn að við íhugum öðru hvoru þá spurningu, hvenær við verðum þeirra þæginda aðnjótandi að fá sjálfvirkan síma inn á sveitaheimilin og komumst þannig í snertingu við umheiminn á mun áþreifanlegri hátt en raun er á í dag, þar sem sveitasímstöðvar eru yfirleitt opnar frá 4 og upp í 8–10 tíma á dag, en algengast mun vera í sveitum 4–6 tímar. Utan þess tíma er okkur illmögulegt að ná sambandi við önnur byggðarlög, nema til komi hjálpsemi og skilningur þess fólks sem við stöðvarnar vinnur.

Mörgum þeim, sem þekkja sveitasímann, er auðvitað ljóst að með tilkomu sjálfvirks síma í sveitir landsins er trúlega útilokaður sá möguleiki, sem þekkist í dag víða, að geta notfært sér það að hlera símtöl náungans og fylgjast með viðburðum líðandi stundar með því að taka upp tólið og hlusta. Þetta þekkjum við úr sveitunum og finnst raunar ekkert athugavert. I.g er þess því fullviss að svolítil eftirsjá mundi mörgum þykja að því að missa sveitasímann og komast þannig úr snertingu við umræðuefni nágrannanna. En ég er líka jafnviss um að þessi tilhögun hlýtur að hverfa og — gamanlaust — þá liggur það auðvitað ljóst fyrir að sjálfvirkur sími er það sem koma skal og tengir hinar dreifðu byggðir saman og skapar meira öryggi í öllum samskiptum manna. En til þess að svo geti orðið verður auðvitað að gera áætlanir sem geta staðist og eru til þess að auka á öryggið, en ekki draga úr því. Á ég þá við þá staðreynd, sem stundum hefur komið í ljós eftir að búið var að setja upp sjálfvirkan síma í einhverju þorpinu, að eftir það var illmögulegt að ná sambandi við fjarlæg byggðarlög af því að álagið var of mikið og línurnar of fáar. En í þessu er ég auðvitað leikmaður og þarna hljóta þeir ráðum að ráða sem betur kunna, og árangurinn verður að vera í samræmi við það.

Eins og við vitum dreifist sjálfvirkur sími hægt og bítandi um byggðir landsins. Þar sitja auðvitað þéttbýliskjarnarnir í fyrirrúmi, en sveitirnar á hakanum, og jafnóðum og þéttbýlið eykst á höfuðborgarsvæðinu og víðar þar sem gott er undir bú, þá eru settar upp stöðvar til að koma til móts við fólkið sem þar býr. Þetta er auðvitað gott og blessað og raunar eðlilegt þegar horft er á tekjurnar sem strax koma þarna til baka þar sem notendurnir eru nógu margir. En þá er von að einhver spyrji: Hvers á sveitafólkið að gjalda? Hvað er orðið um hina margumtöluðu byggðastefnu? Ég veit að hæstv. samgrh. skilur þetta manna best þar sem hann þekkir það af reynslu að búa við þetta símakerfi í sveitum landsins. Ef engin tímaáætlun hefur verið gerð um uppbyggingu og dreifingu sjálfvirka símans um sveitirnar, þá er ekki vonum seinna að farið verði að hugsa að því. En sé þessi áætlun til. þá væri fróðlegt að fá að sjá hana eða heyra og er þá tilgangi þessarar fsp. náð.

Niðurstaða þessara orða minna er því þessi: Því verður varla unað af dreifbýlisfólki í sveitum landsins að einhver happa- og glappaaðferð sé viðhöfð í sambandi við dreifingu sjálfvirka símans í sveitunum. Dreifbýlisfólk hefur lagt þann skilning í orðið byggðastefna að stjórnvöld vilji stuðla að byggð sem víðast á landinu og jafna aðstöðumun svo sem kostur er. Þess vegna er þess óskað að einnig á þessu sviði sé unnið markvisst að því að jafna muninn og skapa sem flestum jafnréttisaðstöðu, að svo miklu leyti sem slíkt er unnt í landinu.