09.03.1976
Sameinað þing: 60. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2454 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)

311. mál, bæklunarlækningadeild Landspítalans

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Bæklunarlækningadeild Landsspítalans tók til starfa árið 1972. Meðan á byggingu Landsspítalans stóð var upphaflega gert ráð fyrir því að bæklunarlækningadeild hefði til umráða sem svaraði tveim deildum, þ.e.a.s. 46 rúmum. Á byggingarstigi var þessari ákvörðun síðan breytt þannig að gert var ráð fyrir að bæklunarlækningadeildin hefði eina deild, 23 rúm, en jafnframt yrði stofnuð endurhæfingardeild með 23 rúmum. Þegar síðan bæklunarlækningadeildin tók til starfa var sú ákvörðun tekin af stjórnarnefnd að bæklunarlækningadeildin fengi til umráða auk 23 rúma á eigin deild 10 rúm á endurhæfingardeild og er svo enn. Að sjálfsögðu höfðu aðgerðir vegna bæklunarsjúkdóma farið fram á Landsspítala áður en deildin tók til starfa og deildin tók við allstórum biðlista frá skurðdeild strax við opnun. Mjög fljótlega sýndi sig að deildin hafði ekki við og biðlistar deildarinnar hafa aukist ár frá ári.

Á árinu 1973 gerði rn. till. um það til stjórnarnefndar að athuga möguleika á því að bæklunarlækningadeild fengi til umráða einnig rúm þau á endurhæfingardeild sem fyrr getur, en það var mat læknaráðs Landsspítala að jafnmikil og e.t.v. meiri þörf væri fyrir rúm fyrir endurhæfingu en viðbót við bæklunarlækningadeildina. Var því engin breyting gerð í þessu efni.

Það liggja fyrir skýrslur bæklunarlækningadeildar fyrir árið 1974, og sýnir sig við samanburð á árunum 1913 og 1974 að starfsemi deildarinnar er komin í mjög fastar skorður. Þannig voru legudagar á árinu 1974 13 629, en á árinu 1973 12 318. Fjöldi innlagðra sjúklinga var á árinu 1974 615 og nýting sjúkrarúma 100%.

Vegna stækkunar biðlista á bæklunarlækningadeild tók stjórnarnefnd ríkisspítalanna þetta mál upp á árinu 1974 og komst að þeirri niðurstöðu að ekki væru tök á því að auka rými deildarinnar innan Landsspítalans sjálfs nema það yrði svo mjög á kostnað annarrar starfsemi spítalans að ekki yrði við unað. Þá var leitað þess ráðs að ná samkomulagi við endurhæfingardeild á Reykjalundi um að ákveðin rúm þar yrðu til afnota fyrir bæklunarlækningadeild til framhaldsmeðferðar sjúklinga þannig að hægt yrði að útskrifa þá frá Landsspítala fyrr en ella hefði verið. Beint samkomulag hefur ekki verið gert um þessar ráðstafanir, en í reynd hefur þetta orðið svo að nokkru leyti og líklegt að ákveðið samkomulag náist um þetta innan ekki langs tíma.

Þegar till. var gerð að staðli fyrir vistunarrýmisþörf hinna ýmsu sérgreina, þá var gert ráð fyrir því að fyrir bæklunarlækningar þyrfti 36 rúm miðað við 100 þús. íbúa eða um 75 rúm fyrir allt landið, eins og háttar hér í dag. Eru þá böru, sem þurfa aðgerða við, ekki talin með þar sem þau vistast á barnadeildum. Á þrem stórum sjúkrahúsum í Reykjavík má gera ráð fyrir að nú séu um 60 sjúkrarúm fyrir bæklunar-lækningar, þar með talin slys. Nokkrir slíkir sjúklingar vistast að jafnaði á sjúkrahúsum utan Reykjavíkur, enda þótt sérfræðingar séu þar ekki starfandi, svo að gera má ráð fyrir að það vanti um 10 sjúkrarúm á landinu öllu til þess að fullnægja þeim staðli sem ég gat hér um. Margir telja þó þessar tölur of lágar og benda á vaxandi slysatíðni, sérstaklega umferðarslysa, sem taka upp rúm bæklunarlækningadeilda, svo og aukna möguleika til skurðaðgerða í bæklunarlækningum sem hafa þróast á síðustu árum, og hafa jafnvel gengið svo langt að telja a'ð í stað 36 rúma miðað við 100 þús. íbúa þurfi 50 rúm. Miðað við þann staðal vantar hér í Reykjavík um 30 sjúkrarúm til þess að fullnægja þörf.

Í bæklunarlækningum eins og allri annarri læknisfræði þá eru það bráðu sjúkdómarnir sem hafa forgang og eru þar slysin langstærsti hópurinn. Því er það svo að þeir sjúklingar, sem hafa langvarandi sjúkdóma, þurfa að bíða lengst og dæmi eru til þess að sjúklingar þurfi að bíða mánuðum, jafnvel árum saman eftir skurðaðgerð við slíkum meinum.

Þetta er að sjálfsögðu ekkert einsdæmi hér á landi og heldur ekkert einsdæmi í sambandi við skurðaðgerðir, hvorki hér á landi né annars staðar. Biðlistar eru á öllum sjúkrahúsum og sjúkradeilum, misstórir að vísu eftir því hvers konar starfsemi er rekin. Biðlistar sjúkrahúsanna í Reykjavík eru þó mun stærri en sjúkrahúsa utan Reykjavíkur, enda fer meginhluti sérhæfðrar læknisþjónustu og skurðaðgerða fram í Reykjavík. Biðlisti bæklunarlækningadeildar hefur verið mjög nálægt eins árs umsetningu deildarinnar. Fjöldi innlagðra sjúklinga var á árinu 1974 615, en biðlisti í lok ársins 1974 708, en í lok ársins 1973 614.

Til samanburðar má geta þess að biðlisti handlæknisdeildarinnar var í árslok 1975 1056 sjúklingar, þar af vegna skapnaðarlækninga 392 sjúklingar, en sérstök deild vegna skapnaðarlækninga tekur til starfa á Landsspítala nú alveg á næstunni með 12 rúmum. Sá biðlisti, sem skapnaðarlækningadeild tekur við þegar hún tekur til starfa, er því hlutfallslega ekki minni en sá sem er á bæklunarlækningadeild í dag.

Þessar upplýsingar sýna að ástand á bæklunarlækningadeild er mjög svipað því sem er á öðrum skurðdeildum Landsspítalans í dag og er tæplega að vænta breytinga á því fyrr en nýjar sjúkradeildir rísa á Landsspítala eða við aðra spítala í Reykjavík sem geta tekið þessa sjúklinga til meðferðar.

Með byggingu nýrra sjúkrahúsa annars staðar á landinu á að draga úr eftirspurn eftir spítalaplássum hér í höfuðborginni og þá eiga að skapast möguleikar til stækkunar þeirra deilda sem verst eru settar, eins og bæklunarlækningadeildarinnar.