10.03.1976
Neðri deild: 75. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2493 í B-deild Alþingistíðinda. (2074)
192. mál, jafnrétti kvenna og karla
Sigurlaug Bjarnadóttir:
Hæstv. forseti. Ég kem nú hér upp í ræðustól aðallega til þess að láta í ljós ánægju mína yfir því, að þetta frv. er komið hér fram, og tjá þakkir mínar til hæstv. félmrh. sem hefur átt frumkvæði um samningu þess og einhvern þátt í því jafnframt. Það er enginn vafi á því að hér eru mörg merk nýmæli á ferðinni. Sumt af því er raunar endurbót á fyrri löggjöf, eins og ákvæðið um Jafnstöðuráð sem hét áður jafnlaunaráð, og ég vil meina að það sé einn merkasti þátturinn í þessu frv. hvað raunhæfar umbætur á högum kvenna í atvinnulífinu snertir. Fyrri hluti frv. hefur einnig mjög margt jákvætt og nauðsynlegt að geyma. Vil ég þá sérstaklega nefna 2. gr. um jafna möguleika karla og kvenna til atvinnu og menntunar. Ég vil nefna 3. gr. sem segir í rauninni flest það sem þarf að segja í þessu máli til þess að réttlæti sé fullnægt, en hún kveður svo á að atvinnurekendum sé óheimilt að mismuna starfsfólki eftir kynferði. Sérstaklega vil ég einnig nefna 6. gr. um að konur og karlar hjá sama atvinnurekenda skuli njóta sömu möguleika til framhaldsstarfsþjálfunar og til að sækja námskeið o.s.frv. Einnig 7. gr. tel ég sjálfsagða, og raunar eru skólar landsins farnir að vakna til meðvitundar um að þarna þurfi að verða breyting á í skólanámi. Það eru hins vegar einnig þarna í fyrri hluta frv. ákvæði sem ég er ekki alveg jafnsannfærð um að eigi ótvíræðan rétt á sér. Ég geri ráð fyrir að þessar greinar — þá á ég við 4. gr., 5. gr. og 8. gr. — hljóti að koma til frekari athugunar í þeirri hv. n., sem um frv. mun fjalla, og mér kæmi ekki á óvart þó að kæmu fram einhverjar athugasemdir við þessar sérstöku greinar.
Ég vil nefna fyrst 4. gr. Raunar er búið að túlka þetta allt mjög vel og skýra í framsöguerindi og af þeim ræðumönnum sem hér hafa talað áður. 4. gr. hljóðar þannig að starf, sem auglýst er laust til umsagnar, skal standa opið jafnt konum sem körlum og í slíkri auglýsingu er óheimilt að gefa til kynna að fremur sé óskað starfsmanns af öðru kyninu en hinu. Þetta lítur út fyrir að vera svo sem gott og blessað. En eins og staða okkar í þessum málum er nú er ég ekki viss um nema þetta kunni að hafa í för með sér vissa erfiðleika. Mér er t.d. ekki kunnugt um ef heilsugæslustöð eða heilsugæsluumdæmi þarf að auglýsa eftir ljósmóður, hvernig komist skal fram hjá því að þarna skuli auglýst eftir konu. Ég skal raunar ekki fullyrða um nema það séu einhverjir karlar í ljósmóðurstétt, mér vitanlega er það ekki. Mér dettur í hug saumaverkstæði sem þarf aukinn starfskraft í að sauma og þarf að fá saumakonu. Ég veit ekki hvernig þeir ætla að koma ósk sinni á framfæri: saumakarl kannske eða saumari eða eitthvað því um líkt. Ég tek þessi dæmi af handahófi. Ég játa að ég hef ekki kafað dýpra um önnur dæmi sem þarna kynnu að koma inn, en mér sýnist alla vega að þetta muni leiða til nokkurrar nýyrðasköpunar í íslensku máli. Það út af fyrir sig er kannske ekki til að amast við. En þarna er um smáhnökra að ræða sem ég tel ekki varða miklu um heild þessa máls, en mér finnst kannske að orki tvímælis að setja í lög.
Það var tekið hér fram af einhverjum ræðumanni hér að það gæti komið upp sú staða að atvinnurekandi gæti ekki hugsað sér að ráða konu því að hún væri svo hræðilega ljót. Ég gæti alveg eins ímyndað mér að það kæmi upp á hinn veginn, að kona eða karl, þurfi að ráða karl til starfa og karlinn gæti verið svo hræðilega ljótur að það væri ekki nokkur leið að horfa á hann í nágrenni við sig.
Einnig 5. gr. finnst mér full-afdráttarlaus til þess að hún sé ekki líkleg til að geta valdið árekstrum og sárindum og vandræðum sem við viljum öll stýra fram hjá, en þar er tekið fram að atvinnurekandi skuli veita skriflegar upplýsingar um hvaða menntun, starfsreynslu og aðra sérstaka hæfileika sá hefur til að bera er ráðinn var í starfið, og þessi réttur er jafn til handa konu og karli. Vissulega hefur starfsreynsla og menntun og aðrir sérstakir hæfileikar, sem eru tilteknir þarna, mikið að segja um hæfni starfsmanns. En þarna kemur fleira og raunar ótalmargt fleira til sem ekki er hægt að gefa fulla skýringu á, ýmislegt svo persónulegs eðlis að það kann að vera hverjum meðalmanni í stétt atvinnuveitenda ofraun að tjá sig um það. Ég er ekki víss um nema þarna sé höggvið fullnærri persónufrelsi einstaklinga og rétti einstaklinga til að taka persónulegar ákvarðanir sem við a.m.k. í Sjálfstfl. höfum hingað til viljað leggja mikið upp úr, svo fremi auðvitað að ekki sé hallað á annan einstakling með ákvörðun hins.
Varðandi 8. gr. er talað um að auglýsendum sé óheimilt að birta nokkrar þær auglýsingar í orðum eða myndum er orðið geta öðru kyninu til minnkunar eða lítilsvirðingar. Að sjálfsögðu — og ég hygg að við séum öll sammála um það — er þarna fyrst og fremst um það að ræða að almenns velsæmis sé gætt. Og ég verð að segja það sem mína meiningu, að ég held að við séum að gera lífið bragðdaufara og leiðinlegra ef það má ekki lengur bregða upp skopteikningu af konu, jafnvel þó að barmurinn sé í þrýstnara lagi, af karlmanni með meira en meðalstóra ístru og þar fram eftir götunum. Ég held að þetta geri okkur ekkert til, hvorki karli né konu, þó að jafnvel hjólbarði, svo hversdagslegur hlutur sem hjólbarði sé settur í samband við skopmynd af þessu tagi, hvort sem í hlut á karl eða kona. Við vitum það mætavel að maður grípur oft blað eða tímarit í hönd og getur fengið fullt eins mikla sálubót af því að hlæja að smellnum auglýsingum eins og læsilegu og snjöllu lesefni. Og ég spyr: Hver á að meta hvar á að draga mörkin þarna? Er hægt að framkvæma þessa lagagrein svo að í raun og veru sé mark á takandi?
Þessar greinar vil ég vænta að hv. þingnefnd taki sérstaklega til athugunar. Ég fyrir mitt leyti, — og þá er ég kannske full-íhaldssöm eða róttæk — hefði talið að þessar greinar allar, 4. gr., 5. gr. og 8. gr., mættu fara út úr frv., því að umfram allt verðum við að hafa auga á aðalatriðunum, en vera ekki að eltast við smáatriði. Ég held að ef hinar greinar frv. væru framkvæmdar eins og lögin gera ráð fyrir, þá væru þessar, sem ég tiltók, óþarfar.
Það hefur verið talað hér almennt um jafnrétti og jafnstöðu kvenna. Það er enginn vafi á því að bæði þessi lög og annað í umr. um þessi jafnréttismál, sem hafa verið mjög á döfinni að undanförnu, þá ekki síst á okkar nýliðna kvennaári, það felur í sér grundvallarbreytingar sem, eins og hér hefur réttilega verið bent á, verða ekki framkvæmdar með einu pennastriki eða lagaboði. Ég held að við þurfum að fara með nokkurri gát í áhuga okkar á að koma á hinni fullkomnu jafnstöðu, það geti verið óheillavænlegt að fara of geyst, við kunnum að missa jafnvægið og jafnvel tapa áttunum. Við skulum hafa í huga að t.d. kvennaársáform Sameinuðu þjóðanna tekur yfir 10 ár þess vegna kannske ástæða til að hafa í huga að það er hyggilegra að fara sér nokkuð hægt í að fastbinda í lögum atriði sem stríða á móti rótgrónum venjum gegnum margar kynslóðir sem erfitt verður að breyta með lagabókstaf einum saman. Hugsunarháttur og viðhorf manna eru margfalt erfiðari viðureignar til breytingar heldur en ótalmargar breytingar þótt grundvallarbreytingar séu. Við getum tekið breytta kennsluhætti og skólakerfi, gagngerar breytingar í atvinnuháttum, skuttogara í stað síðutogara og fjöldamargt annað. Þetta er nokkuð sem við framkvæmum eftir því sem við höfum hugvit og fjármagn til. En það þarf annað og meira til þess að gerbreyta rótgrónum og hefðbundnum viðhorfum í lífsviðhorfum manna.
Hv. 5. landsk. minntist á styttan vinnutíma sem hugsanlega lausn á þeim erfiðleikum, sem konur sérstaklega eiga við að stríða enn í dag, við að taka fullgildan og eðlilegan þátt í atvinnulífi okkar. Ég mæli því óhikað í gegn að stytta vinnudaginn almennt í 6 tíma á dag. Ég held að það hljóti að verða aðrar leiðir sem við leitum í þessu skyni, ekki aðeins til þess að konan geti verið lengur úti á vinnumarkaðinum, heldur að karlmennirnir þurfi að vera þar skemur. Þess vegna hef ég frá upphafi verið því mjög hlynnt og haft þá skoðun að þetta vandamál leystum við hvað best með sveigjanlegri vinnutíma en við eigum við að búa í dag, og ég veit raunar að þetta er atriði sem hefur í vaxandi mæli komið á dagskrá nú á okkar atvinnumarkaði. Ég vil líka minna í þessu sambandi á könnun sem getið var um í íslenskum dagblöðum og hafði farið fram í Noregi á s.l. ári, framkvæmd af norskri félagsmálastofnun, en hún gekk í þá átt einmitt að skipta vinnudeginum milli konu og karls, giftra hjóna. Það kom þannig út að þau beinlínis skiptu deginum til hálfs, konan vann helming dagsins úti og karlmaðurinn helming. Þetta hafði það í för með sér — og það var að sjálfsögðu eðlilegt — að tekjur heimilisins rýrnuðu. En sá hópur fólks, sem tilraun var gerð á í þessu tilliti, kom út mjög ánægður. Hin almenna niðurstaða fólksins, sem þessi tilraun var gerð á, var sú: Við berum minna úr býtum peningalega, en við fáum ýmislegt í staðinn sem ekki verður metið til peninga. — Þetta tel ég, ákaflega jákvæða niðurstöðu og gleðilega um leið.
Það eru nýafstaðnir hjá okkur viðtækir kjarasamningar þar sem við vorum að keppast við að ljá hinum verst settu í þjóðfélaginu, svokölluðum láglaunahópum, skaplegar úrbætur. Það fór nú eins og það fór, ekki meira en svo vel frekar en fyrri daginn. En þetta vekur upp hjá okkur hugleiðingar og vangaveltur hvernig vinnu almennings er í raun orðið háttað. Við tölum um það réttilega að 60 þús., jafnvel 60–70 þús. kr. laun á mánuði hrökkvi engan veginn fyrir framfæri fjölskyldu. Þetta er hárrétt. En ég veit ekki hvort það liggja tölur fyrir um það hve margar fjölskyldur, nema þá einstæðir foreldrar, ég veit að þeir eru þarna einir á báti, — hve margar fjölskyldur í raun og veru þurfa að framfleyta sér á þetta litlum launum, einfaldlega vegna þess að fyrirvinnurnar á íslenskum heimilum og ekki hvað síst í hinum stærri kaupstöðum eru yfirleitt orðnar tvær, þannig að í mörgum tilfellum er þarna um helmingi meiri tekjur að ræða en almennt er látið í veðri vaka. Dæmin eru svo vafalaust mörg um að það er aðeins ein fyrirvinna og með alls ófullnægjandi tekjur. En engu að síður væri athugunarefni einmitt þetta, hvað stór hópur það er raunverulega sem við þurfum að þessu leyti sérstaklega að greiða fyrir. Það er enginn vafi á því að hin hraðvaxandi sókn kvenna út í atvinnulífið sem við öll viljum styðja að og gera það mögulegt að þær eigi þarna val. hvort þær vinni á sínum heimilum eða fari út í atvinnulífið, — þessi stórfellda sókn hefur á margan hátt raskað okkar atvinnumarkaði. Þetta er atriði sem við skulum horfast í augu við af fullri hreinskilni. Nú eru meira en 50% allra íslenskra kvenna sem stunda vinnu utan heimilis.
Í einu Evrópulandi Frakklandi, veit ég til að hin sívaxandi ásókn kvenna út í atvinnulífið hefur leitt til offramboðs á vinnumarkaðinum í þeim mæli að frönskum húsmæðrum er boðin borgun fyrir að hypja sig af vinnumarkaðinum og heim til bús og barna. Auðvitað voru það konurnar sem var vísað heim fyrst, áður en hróflað var við karlmönnunum. Þetta leiðir hugann að því, sem raunar hefur oft verið fjallað um, hvort ekki væri tími til kominn að meta störf húsmæðra til peninga eitthvað á svipaðan hátt og gerist á almennum vinnumarkaði.
Ég vil ekki lengja þessar umr. meira, en ég vil aðeins segja það, að á meðan við erum að vinna að auknum mannréttindum í okkar þjóðfélagi, og þar tel ég að jafnstöðumál karla og kvenna heyri undir, þá skulum við umfram allt ekki hætta að vera manneskjuleg og einblína ekki um of á það sem við metum til peninga, heldur er það ótalmargt sem þarna kemur inn í myndina sem of oft er lítið fram hjá. Það hefur stundum verið talað um í hópi hörðustu kvenréttindakvenna að kveneðlið sem slíkt sé talið annars flokks, konur í okkar þjóðfélagi séu annars flokks verur. Af hverju? Af því að konur hafa til skamms tíma haldið sig innan veggja heimilisins. Ég tel að þarna sé ákaflega rangt á litið og illa farið ef gera á húsmóður- og móðurstarfið annars flokks starf í augum kvenna sem karla. Þar fyrir er ég heils hugar fylgjandi því að barnauppeldi og heimilisstörf færist margfalt meira en nú er yfir til karlsins. Ég held að honum væri þægð í því líka. En uppeldisstarf, sem unnið er á heimilunum, má ekki vanmeta, og þá tek ég heimilið fram yfir dagheimili og leikskóla, þó að ég sé alls hugar hlynnt þeim og vilji að við getum fjölgað þeim sem mest. Ég held raunar að konur séu almennt að gera sér grein fyrir því upp á nýtt, að það er ekkert minnkunarvert við að vera bara húsmóðir, hvað sem hver segir. Ég vil líka benda á — og kannske er þetta mín persónulega afstaða og sennilega talin ákaflega gamaldags og úrelt, en ég hef alltat ímyndað mér að það hlutverk, sem náttúran leggur konunni á herðar, að ganga með og ala upp börn, hafi beinlínis frá náttúrunnar hendi, áður en nokkrar þjóðfélagshefðir, venjur eða kreddur komu til, haft þau áhrif á sálarlíf hennar allt og lífsviðhorf, að það sé ekki alveg út í bláinn að tala um kveneðli annars vegar og eðli karlsins hins vegar. Jafnframt vil ég benda á það, að ég tel hörmulega rangsnúið mat og heimskulegt að stimpla þennan eðlismun sem annars flokks eðli. Þetta er atriði sem ég held að við þurfum að hugleiða í allri okkar viðleitni til þess að skapa sem mesta og heilbrigðasta jafnstöðu milli kynjanna, hvort sem er á heimilinu við heimilisstörfin eða úti í atvinnulífinu.