11.03.1976
Sameinað þing: 62. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2505 í B-deild Alþingistíðinda. (2083)

135. mál, fiskileit og tilraunaveiðar

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það er nú alllangt liðið frá því að hv. frsm. þessarar þáltill. talaði fyrir henni. Hann kom mjög viða við í sinni framsöguræðu og vil ég mjög gjarnan ræða lítillega um það sem hann ræddi þar um. En till, er þess efnis að Alþ. ályktar að skora á ríkisstj. að hún beiti sér fyrir því að skipuleg leit verði gerð að kolmanna og spærlingi á þessu ári, veiðiskip verði tekið á leigu í þessu skyni og hefji það jafnframt tilraunaveiðar, og enn fremur að hert verði á leit að tilraunaveiðum á loðnu síðari hluta sumars og næsta haust.

Ég held að það sé enginn vafi á að það hefur ekkert staðið á því að leita að spærlingi og kolmunna. Hins vegar er rétt að geta þess, að á árinu 1974 voru veidd 14100 tonn af spærlingi, en á árinu 1975 aðeins 4345 tonn. En það er örugglega ekki vegna þess að það hafi skort leit að spærlingi, heldur var mjölverð það lágt að skip og verksmiðjur sáu sér alls ekki fært að veiða þennan fisk nema með töluverðri fyrirgreiðslu. Það eru því fyrst og fremst markaðsmálin og söluverð á þessum afurðum sem gera það að verkum að þessar veiðar hafa dregist verulega saman. Veiði á kolmunna hefur svo að segja engin verið, var 118 tonn árið 1974 og 170 tonn á árinu 1375.

Það, sem um er að ræða einnig í sambandi við kolmunna eru auðvitað langvarandi rannsóknir á því hvernig er hægt að framleiða og auka verðmæti á þessum fiski. Og þá vil ég geta þess að á s.l. ári stóðu Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og Meitillinn hf. í Þorlákshöfn, saman að tilraunum með vinnslu á kolmunna og spærlingi til manneldis, haustið 1975. Kolmunninn var veiddur af rannsóknaskipinu Bjarna Sæmundssyni úti fyrir Austfjörðum í tveim leiðöngrum og fluttur ísaður í kassa til Þorlákshafnar, en spærlinginn veiddi báturinn Þorlákur í Þorlákshöfn skammt suður af Þorlákshöfn. Þessar tilraunir tókust vel, og ég held að það sé óhætt að segja að það eru meiri möguleikar á að vinna kolmunna til manneldis heldur en spærling. Það var reynt að styrkja þessar tilraunir. Fiskimálasjóður veitti Meitlinum hf. styrk að upphæð 1 millj. kr. til tilrauna til mjölvinnslu og manneldis á spærlingi og kolmunna. Enn fremur má geta þess að Fiskimálasjóður veitti 400 þús. kr. vegna tilrauna til frostþurrkunar. Nú hefur fyrirtækið Meitillinn hf. í Þorlákshöfn ákveðið að kaupa flökunarvél. Fyrirtækið sneri sér til sjútvrn. um að það reyndi að greiða fyrir því að það gæti keypt þessa flökunarvél, og ráðuneytið sendi þegar í stað meðmæli til þeirra fjárfestingarlánasjóða sem hér áttu hlut að máli.

Það má því af þessu sjá, að það hefur ekki staðið á stjórnvöldum að greiða fyrir þessum tilraunum. Hins vegar vitum við af langri reynslu að allar nýjar vinnsluaðferðir og vinnsla á nýjum tegundum fiska taks langan tíma. Það þarf að skapa markað fyrir þessar afurðir, og það er ekki gert á einum eða tveimur árum. Þá sögu þekkjum við flestir frá því að unnið var að undirbúningi á sölu frystra fiskafurða, að það tók langan tíma, mörg ár, að byggja þá markaði upp og fullkomna þá. Það var ekki farið í stórum stíl út í framleiðslu fyrr en búið var jafnhliða að byggja upp markað. Það er ekki nóg að fiska og vinna afurðirnar, það verður einnig að selja þær, og þetta verður að haldast í hendur. Ég tel sjálfsagt og eðlilegt að leit að spærlingi sé viðhöfð, en til þess þó aðeins að það sé öruggt að það teljist borga sig og standa undir rekstri báta að fara á þessar veiðar. Þá auðvitað á ekki að standa á Hafrannsóknastofnuninni að sjá um að leita að þessum fiski. Og sama er að segja um kolmunnann.

Nú er margt sem bendir til þess að það séu heldur betri söluhorfur en voru á s.l. ári. Það eru batamerki víða sem maður getur treyst á, þó að þau haldist kannske ekki í hendur við dýrtíðaraukninguna sem er í þessu blessaða landi. En það er erfitt að ná sama hraða í batamerkjum á viðskiptasviðinu hjá öðrum þjóðum og í hraða verðbólgunnar hér heima, þó að við sjáum sennilega ekki nokkra von um að ná frú Peron í Argentínu í þeim efnum. Þetta verður að haldast í hendur. Þegar við tölum um að leigja skip, leita að þessum fiski og hinum, þá verðum við auðvitað að ákveða í hvaða röð við tökum þessa fiskleit.

Ég fyrir mitt leyti tel alveg tvímælalaust að það, sem nú liggur langmest á að gera, er að setja kraft í það að leita að nýjum karfamiðum, því að það er hryggilegt til þess að vita að frá árinu 1974 hefur karfaveiðin minnkað mjög verulega eða úr 37 600 tonnum í 30 300 tonn. Hafrannsóknastofnunin leggur áherslu á leit að karfa, og ég er þeirri ákvörðun mjög sammála. Það er sú fiskleit sem ég vil leggja höfuðáherslu á. Hitt verður svo að ráðast, hvenær hægt er að hefja leit að þeim tveimur fisktegundum sem þessi þáltill. gerir fyrst og fremst ráð fyrir.

Í þessari till. er enn fremur lögð áhersla á leit og tilraunaveiðar á loðnu síðari hluta sumars og næsta haust. Það voru gerðar rannsóknir á loðnu fyrir Norðurlandi og leit að henni á s.l. sumri af Árna Friðrikssyni, skipi Hafrannsóknastofnunarinnar, og sömuleiðis voru skip sem hófu þar tilraunaveiðar. Þessar tilraunir gáfu því miður ákaflega lélega raun og það er fyrst og fremst því að kenna að hafís lá fyrir Norðurlandi á þessum tíma. Og mjög lágt verð á loðnuafurðum gerði það að verkum að þessi skip fóru illa út úr þessum veiðum. Jafnhliða voru töluverðir erfiðleikar á því fyrir skipin að losna við þennan afla, og þó alveg sérstaklega kom það í ljós að þeir, sem aflann áttu að kaupa, síldarverksmiðjur ríkisins, voru mjög andvígir því verðlagi, sem var á loðnunni. En þrátt fyrir það að þetta gaf ekki betri reynslu í fyrra, þá er sjálfsagt að halda þessum tilraunum áfram og taka þær upp í vaxandi mæli, enda hefur rn. fyrir löngu gert ráðstafanir til þess og rætt ítarlega við þá fiskifræðinga Hafrannsóknastofnunarinnar sem fyrst og fremst fara með þessi mál.

Fyrir röskum mánuði héldum við í sjútvrn. fund með fiskifræðingum um verkefni Hafrannsóknastofnunarinnar á þessu ári og þ. á m. varðandi leit að loðnu fyrir Norðurlandi. Í framhaldi af þeim viðræðum var gefin út reglugerð um loðnuveiðar 20. febr. þar sem bannað er að veiða smáloðnu minni en 12 cm að lengd sé hún verulegur hluti af loðnuafla fiskiskips. Þessi reglugerð var gefin út samkv. till. fiskifræðinga. Og það er mikil áhugi á því að þessar rannsóknir haldi áfram og það er áhugi á því hjá útgerðaraðilum að gera tilraunir með þessar loðnuveiðar. Hinu er ég á, að það er of dýrt og ekki fjármagn fyrir hendi að leigja veiðiskip að öllu leyti til þessara veiða. En það er sitt hvað hvort útgerðarmenn sjálfir hafa áhuga á þessum veiðum og það opinbera komi eitthvað til móts við þá, tryggi þeim ákveðið lágmark í sambandi við þessar veiðar og þá auðvitað með þeim hætti að þeir fái vissar bætur í gegnum Aflatryggingarsjóð, því að þetta geta ekki talist tilrannaveiðar þó að loðnuveiðar hafi litlar verið á þessu tiltekna svæði við Ísland.

Hv. frsm. þessarar till. minntist á ýmislegt fleira, en fram kemur í sjálfri tillgr. og m.a. rækjuveiðar á úthafinu, fór þar töluvert inn á rækjuveiðarnar og gat þess jafnframt að með rækjuveiði hafi ekki verið gerðar nema fábrotnar tilraunir hjá okkur íslendingum. Og það er rétt, þær hafa verið gerðar þó nokkuð margar, en mjög fábrotnar, á bátum frá 50–103–140 tonna og þá einstaka sinnum með smástyrk úr Fiskimálasjóði, en í flest skiptin á kostnað þeirra sem áhuga höfðu á því að kanna þessa veiði og rækjuverksmiðjur eiga.

Fyrir nokkrum mánuðum kom bréf frá danska utanrrn. til utanrrn. sem sendi það bréf til sjútvrn., þar sem danir fara þess á leit að íslendingar sendi ekki skip til rækjuveiða við Grænland vegna þess að vísindamenn telji að rækjustofninn þar þoli ekki þá miklu sókn sem er í rækjuna, og er talið að til þess að skerða ekki stofninn megi veiðarnar ekki fara yfir 17 þús. lestir. Ég sá fyrir nokkru í Fiskaren, að þar er skýrt frá því að 65 skip muni stunda rækjuveiðar við Grænland og veiða um 70 þús. lestir af rækju á ári eða meira en fjórum sinnum meira en stofninn þolir. Við sjáum á þessu hve gegndarlaus rányrkja á sér stað í rækjustofninn, og veiða erlendar þjóðir 3/4 af þessu magni. Norðmenn veiða einir 22 þús. tonn, spánverjar 20 þús. tonn, Sovétríkin 13 þús. tonn og danir 5 þús. tonn, en grænlendingar áætla að veiðar þeirra á þessu ári verði aðeins 10 þús. lestir. Við getum þrátt fyrir þetta farið í veiðar á rækju innan okkar 200 mílna og það finnst mér sjálfsagt að við íslendingar gerum. En hins vegar hljótum við að bera nokkurn kvíðboga fyrir þeirri gegndarlausu rányrkju sem þarna á sér stað. Það eru ein af okkar stærstu og sterkustu rökum að fiskveiðiþjóðir, sem eiga líf og afkomu sína undir fiskveiðum, eigi að færa landhelgi sína út. Ef grænlendingar færðu sina landhelgi út og reyndu að friða bæði miðin fyrir rækjuveiðum og annarri veiði, þá er um leið verið að tryggja okkar eigin afkomu þegar hafsvæðið á milli Íslands og Grænlands hefur verið friðað. Þá koma þessar þjóðir, sem nú stunda þarna rányrkju, ekki til með að moka þannig upp og eyðileggja fiskimiðin. Þetta er eitt af því sem ýtir undir það og hvetur þjóðir eins og okkur, sem eigum allt okkar undir fiskveiðum, að hvetja aðra til svipaðra aðgerða. Þær munu mjög treysta okkar fiskstofna og fiskigöngur, eins og göngu þorsks af Grænlandsmiðum til Íslands.

Ég ætla ekki að ræða þessa till. eða þær skoðanir sem komu fram hjá hv. flm. Ég hygg að ýmsir aðrir vilji svara þó nokkru af því sem kom fram hjá flm. till. í hans framsögu. En ég vildi aðeins láta koma fram hvað gert hefði verið í þessum málum, hvaða ástæður liggja til grundvallar því að spærlingsveiðin dróst svona saman. Ég tel að þær tilraunir, sem áttu sér stað á s.l. hausti varðandi framleiðslu á kolmunna til manneldis, haldi áfram. Ég fyrir mitt leyti tel sjálfsagt og skylt að standa við bakið á því fyrirtæki sem er að gera þessar tilraunir, þar sem er Meitillinn hf. í Þorlákshöfn, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins geri allt sem hægt er til þess að aðstoða við þessar tilraunir, og unnið verði þegar að því að byggja upp markað fyrir kolmunna til manneldis og leita markaða. En eins og ég sagði í upphafi máls míns, þá tekur þetta allt langan tíma. En á meðan verið er að byggja upp þessa hlið þurfum við ekki að leggja mjög mikla áherslu á leitina að þessum fiski, nema við ætlum að vinna hann til bræðslu, og eins og ég sagði áðan eru mun meiri möguleikar á því nú en voru á s.l. ári. En þá voru þeir nánast engir, þeir möguleikar, vegna þess lága verðs sem var á mjöli á s.l. ári.

Það þriðja, sem flm. minntist á og ég gerði einnig, var í sambandi við úthafsrækjuna. Þar hefur ekkert myndarlegt átak verið gert. Tek ég alveg undir hans orð að þar verðum við að gera myndarlegt átak. En við verðum líka að hafa í huga hvað er að gerast norðan við okkur í þessum efnum, eins og ég gerði að umræðuefni.