11.03.1976
Sameinað þing: 62. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2521 í B-deild Alþingistíðinda. (2086)
135. mál, fiskileit og tilraunaveiðar
Flm.(Tómas Árnason):
Herra forseti. Ég flutti talsvert ítarlega framsöguræðu fyrir þessari þáltill. um fiskileit og tilraunaveiðar og kom nokkuð víða við í mínu máli og raunar ræddi ég málið á breiðari grundvelli en till. sjálf er orðuð. Ég vil láta í ljós ánægju yfir því hversu miklar umr. hafa orðið um till. og með þann áhuga sem komið hefur fram hjá mörgum þm. varðandi þetta mál, og ég er í sjálfu sér ekki undrandi á þessu, vegna þess að hér er um að ræða að mínum dómi mjög stórt mál eða kannske öllu heldur hluta af mjög stóru máli, þar sem eru okkar fiskveiðar og möguleikar okkar til þess að fullnýta alla þá fiskstofna sem hægt er að veiða á íslandsmiðum.
Það liggur fyrir að flestir okkar helstu nytjafiskar tilheyra fiskstofnum sem eru ofveiddir. Þess vegna álít ég að á sama tíma sem við höfum lagt meginkapp á að færa fiskveiðilögsögu landsins út til þess að gera akkur kleift að nýta þá fiskstofna sjálfir sem veiddir eru á Íslandsmiðum, þá beri okkur að gera allt sem mögulegt er til þess að veiða þá fiskstofna, sem allir eru sammála um að ekki eru ofveiddir, í talsvert miklum mun meira mæli en gert er og gert hefur verið.
Ég kom sérstaklega inn á loðnuna og loðnuveiðarnar. Ég held að það sé samdóma álit fiskifræðinga að miklar líkur séu á því að hægt sé að lengja loðnuúthaldið til talsvert verulegra muna frá því sem nú er með því að veiða loðnu norður og norðvestur af landinu á sumrin, sérstaklega seinni part sumars og fram á haust. En til þess að við getum það þarf miklu meiri tilraunaveiðar en fram hafa farið til þessa. Það er t.d. vitað að hinum kraftmiklu göngum loðnunnar, sem ganga að Austurlandinu og suður fyrir landið og raunar stundum einnig vestur fyrir, en sérstaklega göngunum, sem ganga austur fyrir landið, fylgir ungloðna, sem verður eftir og snýr við aftur til norðlægra slóða. Það hefur ekki verið lagt í það mikið starf enn sem komið er að fylgja þessari loðnu eftir til baka og fylgjast með henni, hvað af henni verður, hvernig hún hagar sínum göngum og að hve miklu leyti mögulegt væri að veiða hana. Þetta er einn af þeim þáttum sem till. fjallar um.
Þá fjallar hún einnig um kolmunnann. Það er enginn vafi á því að möguleikar eru á talsvert verulegum kolmunnaveiðum. En til þess að það verði kleift þurfa að fara fram miklu viðtækari og meiri tilraunaveiðar en fram hafa farið til þessa ásamt leit. Ég gat um það í framsöguræðu minni að Gunnar Hermannsson skipstjóri á Eldborgu, sem er einn af duglegustu aflamönnum íslenska fiskiflotans, skrifaði grein um tilraunaveiðar Eldborgar á árinn 1972 og sagði í þeirri grein svo, með leyfi hæstv. forseta: „Til þess að marktækur árangur náist, hvort heldur jákvæður eða neikvæður, þarf þó meira til en 1–2 veiði- og rannsóknaskip í 3 vikur eða mánuð af og til. Það er áreiðanlega engin ástæða til að gefast upp að svo stöddu, enda mættu menn hafa í huga að markaðsmál geta breyst til hins betra með litlum fyrirvara. Ef almenn neysla kolmunna ykist skyndilega yrði sannarlega annað uppi á teningnum með verðlag afurðanna og 600–1000 tonna mánaðarafli yrði þá varla litinn hornauga. Þá er enn fremur ósvarað þeirri spurningu hvort kolmunninn er veiðanlegur í júlí og ágúst eða á þeim tíma sem hann var að eyðileggja veiðarfærin fyrir okkur hér á árunum, eins og drepið var á í upphafi.“ En þarna á Gunnar Hermannsson við það að a.m.k. ein síldarvertíð á Austfjarðamiðum endaði í raun og veru með því að það gekk svo mikill kolmunni á miðin að síldveiðaskipin höfðu ekki frið til veiða vegna ánetjunar kolmunnans.
Það er viðurkennt að kolmunnastofninn sé einn allra stærsti fiskstofn í Norður-Atlantshafi. Þess vegna álít ég að það sé mjög þýðingarmikið að við íslendingar leggjum á það áherslu að ganga úr skugga um hvort við getum í talsverðum mæli beitt okkar veiðiflota — nótaveiðiflota — á kolmunnaveiðar. Er talið að það megi veiða a. m. k. 100 þús. lestir af kolmunna á ári án þess að ofveiða stofninn og sumir halda miklu meira. Það liggur fyrir álit fiskifræðinga um að loðnustofninn sé það stór að það megi veiða a.m.k. 150–300 þús. tonn til viðbótar við það, sem nú er veitt, þannig að hér er ekki eftir svo litlu að slægjast ef nánar er að gætt.
Ég minntist á það í framsöguræðu minni, að úthafsrækjan svokallaða væri einn af þeim fiskstofnum sem fyllsta ástæða væri til fyrir íslendinga að gefa meiri gaum að en gert hefur verið, og skýrði frá því, að 65 togarar veiddu á árinu 1975 úthafsrækju við Grænland fyrir hvorki meira né minna en 26 milljarða ísl. kr. Þetta er að vísu fjórum sinnum meira magn en fiskifræðingar álíta að þessi stofn við Grænland þoli og þessar veiðar fóru yfirleitt fram í djúpkantinum við Grænlandsgrunninn. Eigi að síður er ljóst að við Grænland eru möguleikar á mjög miklum veiðum úthafsrækju. Ég er ekki í nokkrum vafa um það — og það er byggt á skoðunum bæði fiskifræðinga og sjómanna — að verulegt magn er af úthafsrækju í grunnkantinum við Ísland. Það hefur komið í ljós m.a. vegna þess að menn hafa orðið varir við margar fisktegundir sem lifa á rækjunni, t.d. grálúða, þorskur og margar fleiri fisktegundir mætti nefna í því sambandi. Þarna er einn möguleiki til viðbótar við það sem ég nefni í þáltill. minni. Svo er einnig karfinn, en eins og kunnugt er, þá er talið að það séu fleiri en einn karfastofn, það séu fleiri karfastofnar, og fiskifræðingum ber saman um að það þyrfti að rannsaka veiðimöguleika á karfastofninum í allmiklum mæli umfram það sem gert hefur verið.
Spærlingurinn er nú kannske sá fiskurinn af þeim, sem ég nefndi og ræddir hafa verið í þessu sambandi, sem er að sumu leyti kannske minnst álitlegur. Hann er mjög lítill fiskur, eins og menn vita. og það hefur verið nokkrum erfiðleikum bundið að vinna hann til manneldis. Þess vegna, eins og kom fram hjá hv. 2. þm. Austurl., hefur ekki verið fært að veiða hann með heim árangri að veiðarnar stæðu undir sér, miðað við það verð sem fengist hefur fyrir afurðirnar. Eigi að síður kunna að reynast möguleikar í þessum efnum þó að síðar verði.
Hæstv. sjútvrh. ræddi ýmsa þætti þessa máls og gerði grein fyrir starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar í þessum efnum. Ég gerði því efni nokkur skil í framsöguræðu minni hvað Hafrannsóknastofnunin hefst að í sambandi við veiðitilraunir og leit að þeim fiskstofnum, sem hér er bent á og svo auðvitað mörgum fleirum. Mér er ljóst að Hafrannsóknastofnunin hefur haft takmarkað fjármagn til ráðstöfunar og þess vegna hefur starfsemi hennar að síálfsögðu verið takmörkuð Ég fer ekki leynt með þá skoðun að ég álit að það ætti að veita meira fjármagn til þessarar starfsemi og það miklum mun meira en gert hefur verið. En bað skal viðurkennt af mér. að það er alltaf erfiður þáttur í þessum og fleiri málum þegar kemur að því að útvega fjármagnið, En ég er þeirrar skoðunar að það muni borga sig fyrir íslendinga fljótlega að leggja meira og það miklum mun meira fé í sjávarútveginn og tilraunir á sviði sjávarútvegs heldur en gert hefur verið. Það er sýnilegt að t.d. loðnuleitin, skipuleg loðnuleit, sem var ekki hafin fyrr en á seinasta áratug, leiddi beinlínis til þess að mögulegt hefur verið að stunda loðnuveiðar á þann hátt sem gert er. Það eru rannsóknaskipin sem finna loðnuna fyrir fiskiskipaflotann, fylgja henni eftir, fylgjast með göngunum og gera fiskiflotanum fært að átta sig á hvert stefnir í þeim efnum, til þess að þeir fái notið hins mjög svo takmarkaða tíma sem á hverju ári er til reiðu í sambandi við loðnuveiðarnar. En það sem ég legg áherslu á í till. minni og málflutningi er það, að til viðbótar við starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar verði fenginn, eins og ég orðaði það, úrvals veiðiskip til þess að stunda tilraunaveiðar og leit, til þess að reyna að tryggja að marktækur árangur náist í þessum efnum.
Ég vék nokkrum spurningum að hv. 2. þm. Austurl. í sambandi við þetta mál vegna þess, að það er svo skylt öllu því sem snertir friðun og verndun fiskstofna. Hv. þm. gerði í allítarlegu máli glögga grein fyrir því helsta sem gerðist í þessum efnum á árunum eftir 1971. Ég álít að það sé mjög þarflegt að fá þennan þátt málanna ræddan samhliða umr. um að leggja áherslu á aukningu veiða á stofnum sem ekki eru þegar fullnýttir. Ég vísaði alveg sérstaklega í minni ræðu varðandi þetta atriði til aðvörunar, sem ég kallaði svo, sem Hafrannsóknastofnunin hefði gefið á árinu 1972, og hef hér í fórum mínum bréf sem hefur oftsinnis verið lesið í þessum umr. varðandi það mál. En ég get ekki stillt mig um að lesa hérna nokkrar línur úr þessu bréfi, en þetta bréf er til sjútvrn. frá Hafrannsóknastofnuninni og er dags. 22. mars 1972. Þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Það kom í ljós að allir stærri þorskstofnarnir eru fullnýttir og sumir jafnvel ofveiddir. Aukin sókn í þorskstofnana hefur viðast hvar nær enga langvarandi aflaaukningu í för með sér, heldur þvert á móti minni afla á sóknareiningu. Þegar fyrir áratug voru þorskstofnar Norðaustur-Atlantshafsins fullnýttir, en sumir stofnanna í Norðverstur-Atlantshafi tiltölulega lítt nýttir. Sókn flotans vestur á bóginn fór ört vaxandi á áratugnum, og er nú svo komið að þorskstofnarnir í Norðvestur-Atlantshafi við Nýfundnaland og Labrador voru ekki síður fullnýttir. Það er því ljóst, að þorskafli í Norður-Atlantshafi verður ekki aukinn meira en orðið er. Minnkandi sókn dregur að vísu aðeins úr aflamagni, en hins vegar mun afli á sóknareiningu vaxa, sem stuðlar að hagkvæmari fiskveiðum. Æskilegt er því að draga úr sókninni í þorskinn, í sumum tilvikum jafnvel nauðsynlegt. Reiknaðist okkur til að æskilegasta sóknin sé um helmingur af núverandi sókn. Mætti og ætti að beina umframsókninni meir á fiskstofna sem nú eru lítt nýttir, en slíkt hefði í för með sér heildaraukningu fiskaflans úr Norður-Atlantshafi.“
Þarna er einmitt alveg sérstaklega bent á það að beina ætti umframsókninni meira að fiskstofnum sem nú eru lítt nýttir. Það var einmitt þetta atriði í bréfinu sem vakti athygli mína þegar ég var að hugsa um þetta mál, þannig að það er býsna langt síðan það hefur komið fram frá fiskifræðingum að ástæða væri til þess að beina umframsókninni í vaxandi mæli að þeim fiskstofnum sem ekki eru þegar fullnýttir. Mér finnst — og það finnst kannske öllum — að það hafi miðað seint í þessum efnum og við hefðum mátt beina meira fjármagni og átt að beina meira fjármagni til þess að gera mögulega meiri sókn í fiskstofna sem nú eru litt nýttir eða ekki nærri því fullnýttir. eins og þeir sem ég hef gert að umræðuefni.
Hv. 2. þm. Austurl. kom inn á landhelgismálið og ræddi nokkuð um það. Ég ætla nú ekki að efna til umr. um landhelgismálið, en það var eitt atriði, sem hann kom inn á, sem ég get ekki stillt mig um aðeins að minnast á. Það var út af því hvers vegna Alþb. greiddi atkvæði með bresku samningunum 1973. Hv. þm. sagði að það hefði verið vegna þess að meiri hl. var fyrir hendi, þá hefðu þingmenn Alþb. greitt atkvæði með samningunum. Þennan röksemdaflutning skil ég ekki vei, vegna þess ef nægilegt atkvæðamagn var fyrir hendi, þá var alls ekki nauðsynlegt að greiða atkvæði með samningunum. Ég er ansi hræddur um að það hafi verið aðrar ástæður en þessar sem lágu til grundvallar því að hv. þm, og alþb.-menn greiddu á sínum tíma atkvæði með bresku samningunum 1973.
Eins og ég hef þegar getið um, álít ég að þetta mál sé hluti af öðru og stærra máli og það snerti ástand fiskstofnanna, sóknarþunga íslenska fiskiflotans, og það er mál út af fyrir sig. Það hefur stundum verið rætt talsvert um þau málefni. Það hefur verið rætt um að það hafi verið byggðir eða keyptir of margir skuttogarar og fiskiflotinn hafi verið stækkaður of mikið. Það kann vel að vera að fiskiflotinn hafi verið stækkaður of mikið á of stuttum tíma. En ég er alveg eindregið þeirrar skoðunar að efling fiskiskipaflotans hafi verið okkur afar verðmæt í sambandi við útfærslu fiskveiðilögsögunnar, vegna þess að eitt aðalatriðið í sambandi við það mál er einmitt deilan um það og spurningin um það hvort við íslendingar séum færir um að veiða hér á Íslandsmiðum svo mikið sem íslenskir fiskstofnar þola. Þess vegna álít ég að þessi uppbygging fiskiskipaflotans hafi verið nauðsynleg, en ég skal játa það, að hún kann að hafa verið of mikil á of stuttum tíma. Það er annað mál.
Einnig snertir þetta mál auðvitað fjármál, eins og ég hef vikið að áður. Ég gat um það í framsöguræðu minni að íslendingar verja um 0.35% af þjóðartekjum, að því er mig minnir, í rannsóknastörf, en ýmsar aðrar þjóðir, t.d. nágrannaþjóðirnar sem við keppum við um lífskjör og markaði, verja allt að 11/2–2% eða 4–5 sinnum hærri fjárhæðum hlutfallslega til þessarar starfsemi heldur en við getum. Ég álít að einn þátturinn í því að beina meira fjármagni til tilrauna sé að beina fjármagni í vaxandi mæli til sjávarútvegsins í þessu skyni, tilrauna á sviði sjávarútvegs, bæði veiða og vinnslu.
Tilgangurinn með flutningi þessarar þáltill. er af minni hálfu annars vegar að fá umræður um þessi mál, vegna þess að þau eru í raun og veru í brennipunkti á þessum tímum varðandi landhelgismálið og allt sem því fylgir. Langsamlega sterkasta röksemdin, sem við höfum beitt og eigum að beita, er vitanlega sú að fiskstofnar okkar séu stórlega ofveiddir, þ.e.a.s. þeir stofnar sem útlendingar sækja í. Það er okkar sterkasta röksemd í þessu máli og kannske sú sem er langsamlega sterkust með tilliti til þeirrar nauðsynjar af okkar hálfu að færa fiskveiðilögsöguna út í 200 sjómílur áður en Hafréttarráðstefnunni lýkur.
Ég tók fram í framsöguræðu minni og beindi því til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, að hún athugaði það á breiðari grundvelli en orðalag till. ber með sér, þ.e.a.s. að hún geri athugun á möguleikum sem kunna að reynast í sambandi við veiðar á úthafsrækju, einnig á karfastofnum, og fleira kæmi ef til vill til greina.
Að lokum vil ég minnast aðeins örfáum orðum á það sem hefur komið fram í umr. og snertir upplýsingar sem eru að berast þjóðinni þessa dagana um, til hvaða ráða skuli grípa til þess að vernda okkar fiskstofna, sérstaklega þorskstofninn. Það hefur komið fram að ýmsir eru með hugleiðingar um að banna togaraflotanum hreinlega þorskveiðar tiltekin tímabil, hafa verið nefndir 2–3 mánuðir á sumrum. Þetta er náttúrlega geysilega alvarlegt mál sem þarfnast rækilegrar skoðunar, vegna þess að það snertir svo mjög atvinnuástand heilla landshluta, eins og t.d. Austurlands. Ég get rétt hugsað mér hvernig ástandið yrði í atvinnumálum á sumri komanda á Austfjörðum og að ég hygg víðar, t.d. á Vestfjörðum, ef skuttogaraflotinn yrði bundinn við bryggju og fengi ekki að halda áfram þorskveiðum. Ég held að hér sé um að ræða svo stórkostlega alvarlegt mál að það þurfi rækilegra umr. við og fyllsta ástæða til þess að það mál verði rætt sérstaklega og ítarlega hér á Alþ. áður en til þess kemur að teknar verði svo örlagaríkar ákvarðanir sem veiðibann á vissum tímum og um lengri tíma. Vil ég leggja á það áherslu og treysti því raunar að stjórnvöld hefjist ekki handa um neinar ákvarðanir af þessu tagi nema þau mál verði ítarlega rædd hér á hv. Alþingi.