11.03.1976
Sameinað þing: 62. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2526 í B-deild Alþingistíðinda. (2088)
149. mál, brúargerð yfir Eyjafjarðará
Flm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að flytja á þskj. 311 till. til þál. sem orðast þannig:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að láta kanna sem fyrst hvort hagkvæmt sé að gera brú yfir Eyjafjarðará er tengi byggðina í Hrafnagils- og Öngulsstaðahreppi.“
Þessi till. er fram komin nú vegna þess að fyrir dyrum standa ákvarðanir um marga hluti í Eyjafirði sem tengjast þessu máli. Í fyrsta lagi liggur fyrir núna að það má telja nokkurn veginn víst að veglína yfir Eyjafjörð, sem tengir Akureyri við Þingeyjarsýslur, verði valin norðan við flugvöllinn sem þar er, og þá lengist enn þá meir en er núna leiðin sem þarf að fara á milli Öngulsstaðahrepps og Hrafnagilshrepps til þess að hafa þar samskipti. Það kom til mála að þessi leið yrði valin miklu sunnar í firðinum og þá hefði auðvitað verið minni ástæða til þess að gera brú á þeim stað sem þessi þáltill. fjallar um. Í annan stað liggur fyrir að taka ákvörðun um hvar skuli fara yfir Eyjafjarðará með hitaveitu til Akureyrar, en það má heita fullljóst að þar verður lögð hitaveita, og þá verður að velja leið frá Laugalandi, þar sem heita vatnið er, yfir Eyjafjarðará. Ef þessi leið væri fyrir hendi, brú þarna yfir ána og vegur sem tengdi þessi byggðarlög, þá væri einn af þeim kostum, sem taka þyrfti til athugunar, að leggja hitaveituleiðslurnar yfir ána á þessum stað og mundi þá í leiðinni vera hægt að leggja hitaveitu fyrir Hrafnagilshrepp og fyrir Kristneshæli.
Einnig þarf nú um þessar mundir að taka ákvörðun um hvernig nýta megi skólahúsnæði að Laugalandi, en þar er húsmæðraskóli sem ekki hefur verið starfandi undanfarin ár. Á hinn bóginn er mikið vandamál að það þarf að byggja helst sem fyrst skóla fyrir barnafræðslustigið í Eyjafirði. Kunnáttumenn telja að það mætti nota þetta húsnæði með mjög litlum breytingum fyrir barnafræðsluna í Eyjafirði ef þarna væru komnar betri samgöngur í héraðinu.
Ég vil geta þess að það liggja fyrir lauslegar áætlanir um hvað mundi kosta að gera brú yfir Eyjafjarðará þarna og tengja hana með vegi. Það kostar millj 90 og 95 millj. kr. En skólahúsnæði fyrir börn í héraðinu mundi að sjálfsögðu kosta miklu meira fé en þetta, þannig að það liggur í augum uppi að það þarf að lita á alla þessa þætti málsins. Því er þessi till. að mínu mati mjög tímabær og nauðsynleg til þess að það verði horft á alla þessa þætti, sem ég hef hér rakið, í ákvörðun um hvort þetta skuli gert.