15.03.1976
Neðri deild: 76. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2531 í B-deild Alþingistíðinda. (2105)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár vegna frétta sem birtust í dagblöðum s.l. laugardag um mjög hrottalegar ásiglingar breskra herskipa á íslensk varðskip þá daginn áður. Samkv. þessum fréttum er augljóst að árásir bresku herskipanna að þessu sinni hafa verið óvenju fólskulegar og hættulegar svo að það virðist vera að þeir, sem þessum skipum stjórna, séu enn að herða á sókn sinni gegn okkur.

Í sambandi við þessar fréttir var haft viðtal við einn af skipherrum Landhelgisgæslunnar af hálfu Ríkisútvarpsins. Í því viðtali kom greinilega fram mikil gremja skipherrans út í aðgerðarleysi af hálfu stjórnvalda í sambandi við landhelgisgæsluna og ástandið á miðunum og ég hygg, að það geti í rauninni enginn ásakað landhelgisgæslumennina þó að þeir séu nokkuð gramir út í það hvernig að þessum málum er staðið.

Ég vil í tilefni af þessum fréttum láta það koma hér skýrt fram að ég hef fyrir hönd Alþb. margsinnis lýst því yfir hér á Alþ. og einnig í landhelgisnefnd að við alþb: menn værum reiðubúnir til samstarfs við ríkisstj. um aðgerðir í málinu og þá lagt alveg sérstaka áherslu á það að gera ráðstafanir til þess að efla landhelgisgæsluna. Ég vil minna á að þannig höfum við gert till. um fyrir alllöngu og oftar en einu sinni að bætt verði við í gæsluskipaflota okkar tveimur til þremur togurum og síðan einnig undirbúið að bæta við fleiri skipum ef þörf væri talin á, einnig till. um það að bregðast fljótt við og útvega hraðskreitt gæsluskip, sem gengi a.m.k. jafnmikið og bresku freigáturnar, helst nokkru meira. Alllangt er umliðið síðan þessar till. komu fram og hafa fengið stuðning margra aðila, en um framkvæmdir hefur orðið harla lítið. Þá höfum við einnig lagt til að sendiherra okkar hjá NATO í Brüssel yrði kallaður heim og hætt yrði öllu samstarfi við bandalagið á meðan herskip bandalagsins haga sér eins og þau hafa gert hér við land að undanförnu. Þá höfum við einnig lagt til að stöðvum NATO hér í landinu yrði lokað á meðan herskipin eru hér. En af hálfu hæstv. ríkisstj. hefur enn ekkert komið fram um það að hún vilji ganga til samstarfs um þessar till. eða aðrar. Það eina, sem heyrst hefur, er að ríkisstj. hafi til athugunar útvegun á hraðskreiðu varðskipi.

Í tilefni af þessu vil ég nú beina til hæstv. forsrh. fyrirspurn um það hvað er hugsað af hálfu ríkisstj. að gera í þessum málum eins og nú er komið. Getur það verið meiningin að ætla að halda að sér höndum og láta sem ekkert sé að gerast á miðunum og bíða án frekari aðgerða næstu 2–3 eða 4 mánuði, þegar varla er annað hægt að sjá en það að bretar stefni að því að gera gæsluskip okkar fullkomlega óvirk eða jafnvel að sökkva þeim? Ég tel að það sé með öllu óverjandi að ríkisstj. taki ekki þegar í stað ákvörðun um að bæta við í gæsluflotann nokkrum togurum. Reynslan hefur þegar sýnt að þeir geta gagnað vel, og höfum við nægilega mörg skip við gæsluna á miðunum í einu, þá geta þau komið í veg fyrir veiðar bretanna að langmestu leyti.

Ég vil einnig spyrja hæstv. forsrh. um það, hvort honum þyki ekki ástæða til þess, eins og málum nú er komið, að gera NATO það ljóst að við getum ekki þolað án sérstakra aðgerða af okkar hálfu á móti framkomu bresku herskipanna hér við land.

Ég vil svo enn ítreka það, að við alþb.-menn erum reiðubúnir til samstarfs um raunhæfar aðgerðir. Við höfum flutt till. um fjáröflun fyrir landhelgisgæsluna, m.a. með því að skattleggja breskar vörur sem keyptar eru til landsins. Við því er ekkert að segja þó að þeir landsmenn, sem kjósa það frekar að kaupa breskar vörur en aðrar sem þeir geta keypt í staðinn, en það geta menn í flestum tilfellum, þeir verði að greiða hér nokkurn aukaskatt. Það leiðir þá einnig til þess að við sveigjum okkar viðskipti frá bretum yfir til annarra og það finna bretar fljótt hvað getur þýtt.

Það er nú ósk mín að hæstv. ríkisstj. taki þessi mál enn til athugunar, gangi til samstarfs við stjórnarandstöðuna um raunhæfar aðgerðir sem gætu miðað að því að styrkja okkar stöðu. Reynslan verður þá að skera úr um það, um hvað við getum orðið sammála og hvað það er sem ekki getur náðst samkomulag um af því sem við t.d. höfum lagt til og rökstutt er að væru eðlilegar ráðstafanir af okkar hálfu og mundu koma að gagni. Ég vænti þess, að hæstv. forsrh. sjái sér þetta fært.