04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 344 í B-deild Alþingistíðinda. (211)

25. mál, húsnæðismál

Páll Pétursson:

Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að þetta mál skuli hafa borið hér á góma, og þakka bæði fyrirspyrjanda og hæstv. ráðh. fyrir það. En ég vil ekki láta hjá líða að lýsa óánægju minni yfir því hvað óskaplega hefur gengið hægt og erfiðlega með leiguíbúðirnar. Það voru bundnar afar miklar vonir við þessa lagasetningu úti á landsbyggðinni, og það hefur eðlilega þróast í þá átt að við erum alltaf að jafna okkur til Breiðholtsins. Þar var uppbygging með afar miklum hraða og myndarskap og vel að því máli staðið frá ríkisvaldsins hendi og sjálfsagt Reykjavíkurborgar líka. Þær íbúðabyggingar höfðu mikinn forgang á sínum tíma og þess vegna er það ákaflega mikið réttlætismál að eins sé unnið að leiguíbúðunum úti um landið.

Það hafa komið í ljós agnúar á þessum lögum, eins og menn vita sem hafa kynnt sér þessi mál, læði á lögunum og eins á reglugerðinni. T. d. í lögunum er þetta einungis heimildarákvæði. Þau eru öll vægara orðuð heldur en Breiðholtsreglugerðin var á sínum tíma. Þar var skylda að leggja fram 80%. Það er bara heimild í þessum leiguíbúðalögum. Að vísu hefur verið praktiserað að leggja fram 80%. En allt hefur þetta orðið til þess að leiguíbúðirnar hafa orðið að nokkrum hætti hornrekur í kerfinu og mikill seinagangur á þessu öllu saman og leiðindi á báða bóga og þetta þyrfti endilega að breytast. Einnig hafa komið í ljós í reglugerðinni atriði t. d. um söluákvæðin sem nauðsynlega þurfa að breytast. Það þarf að rýmka heimildir fyrir sveitarfélögin til þess að afsetja þessar íbúðir með öðrum hætti en nú er í reglugerðinni, og ég vil leggja áherslu á að þetta er mjög nauðsynlegur þáttur í uppbyggingu dreifbýlisins.