16.03.1976
Sameinað þing: 64. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2570 í B-deild Alþingistíðinda. (2135)

Umræður utan dagskrár

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Það mun vera allóvenjulegt að hér á Alþ. geri þm. vanskil einstaks atvinnurekanda eða verktaka að umtalsefni eins og hér er gert. Ég vil í því sambandi geta þess, að það er hin almenna regla eftir íslenskum lögum að verktaki ber sjálfur ábyrgð á sínum skuldbindingum, sínum greiðslum fyrir vélar, kaupgjaldi, launagreiðslum og öðru slíku. Hins vegar voru fyrir tveim árum sett lög Alþ. til að tryggja hag verkafólks og annarra starfsmanna ef vinnuveitandi stæði ekki í skilum eða gæti greitt laun. Það eru lög frá 28. mars 1974 um ríkisábyrgð á launum við gjaldþrot. Þar segir að ríkið ábyrgist greiðslu á launakröfum á hendur vinnuveitenda sem úrskurðar hefur verið gjaldþrota. Það eru nánari reglur í þessum lögum og reglugerð, sem sett var samkvæmt þeim, um þetta mál. Er tekið fram í 4. gr. laganna að ríkið megi hins vegar ekki inna af hendi greiðslu í þessu sambandi fyrr en úrskurður um gjaldþrotaskipti hefur gengið. Þessi lög eru til verndar launþegum ef svo fer að vinnuveitandi eða verktaki verði gjaldþrota.

Um fjárhag þessa tiltekna verktaka skal ég ekki ræða hér. Hitt er vitað, að um veruleg vanskil er að ræða og veldur það auðvitað ákaflega miklum óþægindum og erfiðleikum fyrir fjölda manna.

Í sambandi við samninga Járnblendifélagsins við þennan verktaka er rétt að rekja það, að vorið 1975 voru boðnar út fyrstu framkvæmdir til undirbúnings byggingu Járnblendiverksmiðjunnar og 1. júní 1975 voru tilboð opnuð og lægst tilboð reyndist tilboð Jóns V. Jónssonar í Hafnarfirði. Eftir nokkra athugun var ákveðið að taka lægsta tilboði, enda höfðu þá verið gefnar þær bankatryggingar sem stjórn Járnblendifélagsins óskaði eftir í þessu sambandi. Verkið hófst síðan 21. júlí 1975, þegar gengið var frá samningum var samningsupphæðin 147 millj. kr. Á framkvæmdatímanum, frá því í júlí og þangað til í des. var um aukningu á áætluðum magntölum að ræða. í desembermánuði, þegar verktakinn hætti framkvæmdum var gengið frá uppgjöri. Eftir þeim upplýsingum sem ég hef fengið, er lokauppgjör magntalna við verktakann nú frá byrjun mars það, að honum hafi verið greiddar 165 millj. kr., sem sagt, við upphaflega upphæð hafa bæst verðbætur og greiðslur fyrir aukningu verka.

Járnblendifélagið telur sig hafa greitt verktaka það sem hann eigi rétt á að fá. Hins vegar hefur verktakinn eða lögfræðingur hans gert viðbótarkröfur umfram verksamning og sá verk fræðilegi ráðunautur, sem bæði annaðist hönnun og útboð framkvæmda og eftirlit með verkframkvæmdum, mun nú hafa þessar viðbótarkröfur verktakans til athugunar og er gert ráð fyrir að þeirri athugun ljúki fljótlega. Færi svo að ekki næðist samkomulag um niðurstöður hans, þá er heimilt að áfrýja til úrskurðar gerðardóms, en um þetta verk fer eftir ákvæðum útboðs- og samningsskilmála sem ber heitið Íslenskur staðall 30. Er á þessu stigi ekki hægt að ræða frekar um það atriði, annað en að stjórn Járnblendifélagsins telur sig hafa greitt það sem verktakinn eigi rétt á að fá.

Það er rétt í þessu sambandi að rekja nokkuð hvað gerst hefur varðandi járnblendiverksmiðjuna, en Íslenska járnblendifélagið var stofnað á grundvelli laga nr. 10 frá 1975 og samningur undirritaður 27. apríl það ár. Félagið tók þá til starfa við að undirbúa framkvæmdir og fjármögnun þeirra. Fljótlega var gengið frá samningum við verkfræðilega ráðunauta og verktaka vegna vinnu við undirbúning lóðar. Einnig voru undirritaðir samningar um rafmagnskaup, tækniaðstoð o.fl. Eins og ég gat um, var svo í júlímánuði 1975 gengið frá samningi um jarðvegsskipti og þeim var lokið að mestu 16. des. 1975. Þá var þeim framkvæmdum hætt. Það er eftir að ganga frá og jafna moldina sem grafin var upp og sett í hóla umhverfis lóð félagsins.

Út af því, sem hv. þm. Jónas Árnason drap á þetta mál, þá var svo ákveðið í útboðsskilmálum að vorið 1976 skyldi lóðin lagfærð og sáð grasfræi í moldina. Af eðlilegum ástæðum var ekki unnt að ganga frá þessu í desembermánuði þegar þessum framkvæmdum lauk, en það verður gert með vorinu. Ég vænti þess, að þegar því er lokið verði fullnægt kröfum náttúruverndar í því sambandi.

Á s.l. ári gerðist það að stálframleiðsla í Vestur-Evrópu dróst mjög saman. Á árinu 1974 var stálframleiðslan þar 182 millj. tonna, en á árinu 1975 aðeins 150 millj. tonna, framleiðsían minnkaði um ca 17% milli þessara ára. Minnst varð framleiðslan í ágústmánuði s.l., um 10 millj. tonna, en hefur síðan verið nálægt 12 millj. tonna á mánuði. Svo virðist sem þessi samdráttur hafi náð hámarki, og telja menn að stálframleiðsla sé nú heldur að aukast En milli stálframleiðslu og járnblendis eða kísiljárns er náið samband. Með minnkandi stálframleiðslu hefur verð á járnblendi eða kísiljárni farið lækkandi, á sama tíma og verulegar birgðir söfnuðust hjá framleiðendum. Kunnugir menn telja að líkur séu til að stálverð fari nú aftur hækkandi, en járnblendi hefur yfirleitt í meginatriðum fylgt stálverði eftir.

Vegna þessara erfiðleika á markaðnum var ákveðið á stjórnarfundi Járnblendifélagsins í nóv. s.l. að takmarka allar frekari fjárskuldbindingar félagsins þar til búið væri að endurskoða áætlanir um stofn- og rekstrarkostnað félagsins og gera nýja markaðsathugun. Þessi ákvörðun virðist hafa verið óumflýjanleg þar sem ekki var unnt né rétt að halda áfram að skuldbinda félagið án þess að kanna þessi atriði nánar. Síðan í nóv. hefur verið unnið stöðugt að endurskoðun fyrri áætlana, og þar sem þeirri endurskoðun var ekki lokið þegar síðasti stjórnarfundur í félaginu var haldinn nú fyrir skömmu, þá var ákveðið á honum að fresta framkvæmdum enn um sinn meðan á endurskoðuninni stendur. Þessi ályktun, sem ég ætla að hafi verið samþykkt 5. mars á stjórnarfundi, var svo hljóðandi:

„Þar sem endurskoðun þeirri, sem stjórn félagsins samþykkti á fundi sínum 7. nóv. 1975 á efnahagsástandi og markaðsmálum almennt svo og stofnkostnaði og rekstrarkostnaði járnblendiverkmiðjunnar, er enn ekki lokið, þá samþykkir stjórnin nú að takmarka enn frekar fjárskuldbindingar félagsins á meðan þessi endurskoðun stendur yfir.“

Hv. þm. 5. þm. Vesturl., Jónas Árnason spyr hvort ég telji ekki að ríkisstj. beri skylda til að kippa þessum málum í lag. Ég vil benda á í fyrsta lagi að ég tel endurskoðun þá á kostnaðaráætlunum og markaðsathugunum, sem stjórn Járnblendifélagsins hefur ákveðið, eðlilega og í rauninni sjálfsagða eins og mál horfa. Stjórn Járnblendifélagsins telur sig hafa greitt verktakanum það sem hann eigi rétt á að fá samkvæmt samningum. Þó er rétt að hafa þann fyrirvara að viðbótarkröfur verktakans eru nú til athugunar hjá eftirlitsaðila og gætu svo farið til úrskurðar gerðardóms. Ég vil enn fremur benda á það lagaákvæði sem ég nefndi, að ef til gjaldþrots kemur ber ríkissjóður ábyrgð á ógoldnum launakröfum, og koma þau lög þá að sjálfsögðu til framkvæmda.