17.03.1976
Efri deild: 78. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2620 í B-deild Alþingistíðinda. (2169)
198. mál, Búnaðarbanki Íslands
Ragnar Arnalds:
Herra forseti. Ég get strax sagt það, að ég hef ekki nema gott eitt um Búnaðarbankann sjálfan að segja. Honum hefur um margt verið vel stjórnað og hann hefur dafnað vel, enda er það ekki og verður ekki aðalatriði þessa máls. Hitt leynir sér ekki, að aðalefni frv., sem hér liggur fyrir til umr., er að bankastjórum bankans verði fjölgað.
Ég skal fúslega taka undir það með hæstv. landbrh. að þau lög, sem nú eru í gildi um Búnaðarbanka Íslands, þarfnast endurskoðunar. Ýmis ákvæði í þeim lögum mega gjarnan vera í betra samræmi við lög um aðra banka. Þetta er laukrétt. En mér sýnist satt best að segja að þeir, sem að þessari endurskoðun stóðu, hafi verið að flýta sér óþarflega mikið og að nokkurs flumbrugangs gæti við undirbúning þessa máls, eins og kemur glöggt fram í aths. við lagafrv. Þar segir m.a.:
„Þriðji kafli laganna um veðdeild bankans var ekki tekinn með við þessa endurskoðun, og gildir hann því áfram í óbreyttu formi. Hugmyndir hafa komið fram um að sameina veðdeildina Stofnlánadeild landbúnaðarins eða gera á starfsemi hennar viðamiklar breytingar, en niðurstaða liggur ekki fyrir. Var því talið rétt að láta þennan kafla bíða, þó brýnt sé að endurskoðun á starfsemi veðdeildarinnar færi fram eins fljótt og kostur er.“
Hér er sem sagt viðurkennt að brýnt sé að breyta starfsemi veðdeildarinnar, enda munu þeir vita, sem kynnt hafa sér fjárhag hennar, að hann er mjög einkennilegur, svo að ekki sé meira sagt. Var þá ekki eðlilegast að doka við og láta alla þessa endurskoðun á málefnum Búnaðarbankans vera samferða í stað þess að taka nú nokkurn hluta þessara mála út úr og ætla að afgreiða þau sérstaklega, en láta hins vegar gömul lög lífa áfram hvað snertir fáeinar greinar? Ég held að flestir hljóti að vera sammála um það, að ef ekki væri einhver mjög sérkennilegur og óeðlilegur flýtir á ferðinni í sambandi við þetta mál, greinilega tengdur því áhugamáli ákveðinna aðila að fjölga bankastjórum við Búnaðarbankann, þá hefðu menn komist að þeirri niðurstöðu að eðlilegast væri að doka aðeins við og líta málið í heild verða samferða.
Það hefur verið afstaða flokks míns, Alþb., að bankakerfið í landinu sé of viðamikið og dýrt. Við höfum haft þá stefnu að nauðsynlegt sé að draga úr óþarfri yfirbyggingu í þjóðfélaginu, og m.a. höfum við beint skeytum okkar að bankakerfinu. Við teljum sem sagt einfaldlega að banhakerfið sé allt of viðamikið eins og það er í dag, allt of dýrt, bankastjórastöður séu allt of margar og raunar starfsmenn í bankamálum óþarflega margir, eins og sýnt hefur verið fram á með samanburði við nálæg lönd.
Þegar vinstri stjórnin svonefnda var mynduð kom í ljós að stjórnarflokkarnir allir gátu sameinast um þetta sjónarmið, og því var tekið upp í málefnasamning þáv. ríkisstj. það ákvæði að bankakerfið allt skyldi endurskoðað og unnið að sameiningu banka og fjárfestingarsjóða, eins og orðrétt stóð í málefnasamningi þáv. stjórnarflokka. Á grundvelli þessa ákvæðis í málefnasamningi stjórnarflokkanna var hinn 29. maí 1972 skipuð n. til að undirbúa framkvæmd á þessu stefnuatriði. Í n. voru skipaðir 7 menn, úrvalslið manna. Þar áttu sæti Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, formaður, Ármann Jakobsson bankastjóri, Björgvin Vilmundarson bankastjóri, Guðmundur Hjartarson seðlabankastjóri, Jóhannes Elíasson bankastjóri og Magnús Jónsson bankastjóri. Þessi n. skilaði áliti dags. hinn 19. jan. 1973, og það ánægjulega var að n. klofnaði ekki í afstöðu sinni til málsins, enda þótt í henni ættu sæti menn úr öllum hinum pólitísku stjórnmálaflokkum. Það er víst ekki oft sem svo góð og ánægjuleg samstaða skapast um þjóðþrifamál, en svo var að þessu sinni.
Meginniðurstöður n. voru í fullu samræmi við það sjónarmið sem við alþb.-menn höfum margsinnis sett fram, þ.e.a.s. að peninga- og lánastofnanir hérlendis séu miklu fleiri en hagkvæmt getur talist, auk þess sem margar þeirra séu of smáar til að geta uppfyllt nútímakröfur um alhliða þjónustu við viðskiptaaðila sina og öryggi fyrir innistæðueigendur og aðra kröfuhafa. Leggur n. jafnframt áherslu á nauðsyn þess að löggjöf, sem varðar starfsemi þessara stofnana, sé endurskoðuð og færð í nútímalegt horf. Telur n. allt benda til viðtæks samkomulags um meginmarkmið sem stefna beri að í þessum efnum, þ.e.a.s. samruna peninga- og lánastofnana í stærri og virkari heildir og einföldun bankakerfisins innan ramma heilsteyptrar löggjafar. Þessi frásögn af niðurstöðum n. er tekin úr aths. við lagafrv. sem samið var á grundvelli þessarar skýrslu bankanefndar.
Umfangsmesti kaflinn í tillögugerð þessarar n. fjallaði um viðskiptabanka í eigu ríkisins. Var á það bent að starfsmannafjöldi þessara þriggja banka sem hér um ræðir, Landsbankans, Útvegsbankans og Búnaðarbankans, væri hvorki meira né minna en 65% af heildarstarfsmannafjölda þeirra peninga- og lánastofnana sem tillögugerðin fjallaði um. í sambandi við þessa banka var niðurstaða n., svo að ég fari hér fljótt yfir sögu, eins og sagði í nál.: „N. telur rétt að stefna að því að viðskiptabönkum hér á landi fækki í þrjá eða fjóra. Miðað við núverandi aðstæður í bankamálum virðist eðlilegast að ná því markmiði með fækkun hlutafélagsbankanna í einn eða tvo og ríkisbankanna þriggja í tvo.“
Eftir að fjallað hafði verið í skýrslunni um ýmsar leiðir sem til greina komu til að ná fram þessari fækkun ríkisviðskiptabankanna komst nefndin að þeirri niðurstöðu, eins og segir í aths. við áðurnefnt frv., að líklegasta leiðin til að skapa hagkvæmt ríkisviðskiptabankakerfi sé að sameina Búnaðarbankann og Útvegsbankann ef jafnframt yrðu gerðar ráðstafanir til að styrkja eiginfjárstöðu og lausafjárstöðu hins sameinaða banka.
Í þessu áliti var einnig gert ráð fyrir því að hinn sameinaði banki tæki við gjaldeyrísréttindum af Útvegsbankanum, en það er mál sem hæstv. landbrh. drap á áðan. Gert var ráð fyrir því að hinn nýi sameinaði banki mundi nálgast Landsbankann að stærð og hafa mjög svipaða dreifingu útlána á atvinnuvegi og aðra lánsaðila eins og Landsbankinn og auk þess mundi hann hafa afgreiðsluaðstöðu í öllum landshlutum mjög til jafns við Landsbankann, þannig að milli þessara tveggja höfuðbanka, sem þá yrðu til, annars vegar sameinaða bankans og hins vegar Landsbankans, yrði mjög mikið jafnræði hvað snertir stærð, viðskiptadreifingu og viðskiptaaðstöðu, og gæti því samkeppni þeirra verið mjög eðlileg og heilbrigð.
Eins og ég gat um áðan var samið lagafrv. á grundvelli þessa ágæta nál. og það var lagt fram á 94. löggjafarþinginu, nánar tiltekið veturinn 1973–1974, og hét frv. til l. um viðskiptabanka í eigu ríkisins. Því miður fór það svo að á þessu þingi náði frv. um viðskiptabanka í eigu ríkisins ekki fram að ganga, og það hefur ekki séð dagsins ljós hér á Alþ. síðan þetta var.
Afstaða Alþb. til þessara mála er óbreytt frá því sem áður var. Við teljum ótvíræða kosti fylgja því að framkvæma uppstokkun í bankakerfinu. Við styðjum það sjónarmið bankanefndarinnar sem ég hef gert hér að umtalsefni, að allmikill sparnaður væri fólginn í sameiningu bankanna, en auk þess mætti búast við betri þjónustu við viðskiptavini bankakerfisins.
Þrátt fyrir það, sem gerst hefur áður í þessum málum, einróma niðurstöðu n. sem skipuð var mönnum úr öllum stjórnmálaflokkum, hefur ekki orðið nein hreyfing á þessu máli í tíð núv. ríkisstj. Það fyrsta, sem gerist yfirleitt í bankamálum landsins eftir að þessi ríkisstj. kemur til valda, er að hæstv. landbrh. leggur fram frv. þar sem gert er ráð fyrir að fjölga bankastjórum Búnaðarbankans. Ég vil leyfa mér að spyrja hæstv. ráðh, af þessu tilefni hvort hann geti svarað mér því hvort Framsfl. sé fallinn frá fyrri stefnu sinni í þessu máli. Ég veit ekki betur en frv. um viðskiptabanka í eigu ríkisins hafi verið á sínum tíma samþ. af öllum ráðh. þáv. stjórnar, þ. á m. af hæstv. landbrh., og einnig verið samþ. a.m.k. af meiri hl. þingflokks Framsfl. og að þetta hafi því verið yfirlýst stefna flokksins fyrir aðeins tveimur árum. Ef það er svo að Framsfl. hefur breytt stefnu sinni í þessum málum, hvað veldur? Gott væri að fá svör við því. Er þetta merki þess að nú eigi að hverfa í þveröfuga átt og fara að þenja út bankakerfið í stórum stíl, eins og gert var á síðasta áratug illu heilli. Og enn vil ég spyrja: Er það skoðun hæstv. ráðh. að þeir tímar sem við lifum nú, þeir erfiðleikar, sem við blasa á öllum sviðum fjármála, séu rétti tíminn til að fara að fjölga bankastjórum landsins?
Herra forseti. Ég sé í sjálfu sér ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál. Alþb. hefur íengi haft þá stefnu að fækka beri bönkum og bankastjórum, en ekki fjölga, og sú stefna er óbreytt. En svo virðist ekki vera um suma aðra flokka sem höfðu þessa stefnu fyrir fáum missirum. Ég vek á því athygli að auk þess sem þetta frv. er ekki tímabært vegna þess að þessi mál ber að sjálfsögðu að skoða í heild sinni og móta í þeim stefnu, þá hefur þetta frv., jafnvel þótt endurskoðað sé, nokkra vankanta sem óeðlilegir eru og rétt er að benda á. Í 8. gr. frv. er til að mynda ákvæði þess efnis að ráðh. sá, sem fari með landbúnaðarmál, hafi yfirstjórn bankans með höndum. Ég tel að þetta sé enn eitt dæmi um það að sú endurskoðun, sem ráðh. heldur fram að farið hafi fram á þessum lögum, hafi verið nokkuð fljótfærnisleg og vanhugsuð. Hvers vegna á hæstv. landbrh. að fara með yfirstjórn Búnaðarbankans? Eins og hv. alþm. er kunnugt er það viðskrh. og bankamálaráðh. sem fer með yfirstjórn Seðlabankans, yfirstjórn Landsbankans og yfirstjórn Útvegsbankans, eins og eðlilegt er ef við viljum reyna að hafa samræmt og skynsamlegt bankakerfi. En það að Búnaðarbankinn heyri undir landbrh. og Iðnaðarbankinn undir iðnrh. er ekkert annað en leifar frá löngu liðnum tíma, „anakronismi“ í dag. Ég vona að hæstv. ráðh. hafi skilning á því að þessu þurfi að breyta. Og það þykir mér satt best að segja góðs viti að hæstv. ráðh. lagði ekki til að frv. yrði vísað til hv. landbn., heldur til fjh.- og viðskn. Það kynni kannske að vera vísbending um að ráðh. væri til viðtals um að þessu atriði yrði þó a.m.k. breytt.