18.03.1976
Sameinað þing: 66. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2664 í B-deild Alþingistíðinda. (2204)

72. mál, niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég skal ekki fara út í það að metast á um gáfnafar manna hér. Ég held að það sé viðtækt atriði og það geti líka verið stundum erfitt að skýra það, því að meira að segja gáfur eru breytilegar og skoðanir manna einnig, og mér fannst þess kenna í ræðu hv. 9. þm. Reykv., sem var að ljúka máli sínu, að hann hefði lært ýmislegt núna sem honum hafði ekki verið ljóst þegar hann var yngri og réð málum.

Það, sem ég verð að segja að þessu sinni, verður að sumu leyti endurtekning á því sem ég sagði hér síðast. En ég hef það mér til afsökunar að hv. 1. flm. eða hinir fjórir, sem með honum flytja þessa till., máttu ekki vera að því að hlusta á það sem ég sagði. Og ég var þar að auki kominn með verulegan sótthita vegna flensu og hef því ekki haft raddstyrk, sem ég hef ekki heldur nú þar fyrir utan, til þess að láta þá heyra mál mitt í fjarlægðinni.

En ég vil leyfa mér að spyrja hv. 9, þm. Reykv.: Af hverju hefur þessi leið alltaf verið farin? Hvað sat þessi hv. þm. lengi í ríkisstj.? Hann var viðskmrh. íslands í 15 ár. Hvað gerðist á þeim tíma? Fór hann þá ekki inn á þá leið sem hann talar um nú? Var það af því að niðurgreiðslur væru þá minna hlutfall en nú af neyslu almennings? Nú vil ég færa fram dæmi máli mínu til sönnunar og sýna að þar hafa orðið verulegar sveiflur á.

T.d. þegar Alþýðuflokksstjórnin sat 1959, þá voru niðurgreiðslurnar 10% af framfærslukostnaði heimilanna. Þegar þessi hv. þm. réð hvað mest, þá var talin ástæða til svo mikilla niðurgreiðslna, og þá var það mjólk, kjöt og smjör og þess háttar vörur. Eins og ég sýndi fram á, hefur kjötið, mjólkin og smjörið alltaf verið greitt niður frá því að niðurgreiðslur hófust 1943. Á verðstöðvunarárunum 1966–1967 eru niðurgreiðslurnar 11.2% af framfærslukostnaði heimilanna. Hins vegar lækka þær á árunum 1968–1969 og 1970, þá eru þær á milli 3 og 4%, 1971 fara þær aftur upp í 6.4%, 1972 6.6%, 1973 8.1%, 1974 5.9% og 1976 er gert ráð 7.6%.

Það er því á misskilningi byggt hjá hv. þm., að niðurgreiðslur og útflutningsbætur hafi orðið í vaxandi mæli á seinni árum. Það hefur meira að segja dregið úr þeim. Og eitt af því, sem ég var að reyna að fást við þegar ég var fjmrh., var að koma þessum lið inn á þá braut að kostnaðurinn frá framleiðandanum til neytandans yrði greiddur og meira ekki. En efnahagsástæðurnar gerðu það að verkum að hver sem minn vilji var í þeim efnum, þá varð að gera meira til þess að halda efnahagsmálunum í skefjum. Og ég vil taka það fram, að það hefur einnig verið áhugi hjá neytendum í landinu að halda við niðurgreiðslunum, vegna þess að það hefur komið þeim að mestum notum sem verst eru settir. Það vita allir og þýðir ekkert fyrir hv. 9. þm. Reykv. að halda því fram að mjólk sé ekki sú neysluvara í þessu landi sem hvert einasta heimili notar og því meir sem er greitt niður, því meiri hluti er hún af neysluvöru almennings. Þetta er staðreynd sem ekki þýðir á móti að mæla og breytir engu um það hversu margar ræður við höldum á Alþ. í þessum efnum.

Ég benti líka á það í ræðu minni, að vísu eftir að hv. þm, var farinn, að það var gerð athugun á þeirri ósk neytenda — Alþýðusambandsmanna — á s.l. hausti að breyta þessu fyrirkomulagi í það sem hv. þm. talar um, að menn fengju þetta í hendurnar og réðu hvað þeir keyptu. Sú athugun sýndi að það mundi kosta, ef ætti að koma eins út fyrir heimilin, um 600 millj. kr. meira, miðað við það verð sem var í haust, og mundi vera fljótt að ná í milljarðinn. Það stafar af þeirri einföldu ástæðu að kostnaðurinn við sölu og dreifingu og annað er hlutfall af verðinu og var þeim mun meiri sem verðið var hærra. Þess vegna var þetta síst hagkvæmara frá sjónarmiði almennings í landinu. Það þurfti að eyða meira fé til þess að koma því til skila til neytenda sem raunverulega átti að koma til skila. Auk þess er ekki nokkur vafi á því, að eftir því sem neytandinn er betur stæður, því meira notar hann af tekjum sínum til annarra þarfa en matvælakaupa. Þeir, sem verr eru settir, nota sínar fyrstu tekjur til matvælakaupa. Það vita allir og þess vegna hefur þessi leið verið valin. Hún hefur verið valin sem hagstjórnartæki, eins og hv. 9. þm. Reykv. tók réttilega fram. Þess vegna hefur það farið saman, að það er verið að gera fólkinu í landinu, neytendunum verðið á þessum vörum eins hagkvæmt og kostur er, vegna þess að þetta eru vörur sem allir neyta.

Nú er það ekki rétt hjá hv. 9. þm. Reykv. að nautakjötið njóti ekki niðurgreiðslna. Þær breytingar voru gerðar á s.l. sumri að það var fært á milli nautakjötsins og dilkakjötsins til þess að nautakjötið nyti niðurgreiðslnanna líka. Um þetta náðist samkomulag m.a. í verðlagsnefnd og hefur nú fullkomlega verið frá því gengið.

Það er annað að segja um bæði alifuglarækt og svínarækt heldur en nautakjöt eða kindakjöt. M.a. er það svo að alifuglarækt og svínarækt byggist fyrst og fremst á innfluttu fóðri, fóðurbæti sem ekki er greiddur tollur af, og þær njóta þess vegna vissra hlunninda af því. Enn fremur er ákvörðun um verð á þessum vörum ekki háð ákvörðun sexmannanefndar eins og á hinum vörunum. Þess vegna hefur seljandinn þar frjálst val hvaða verð hann setur á sínar vörur, og hann nýtur nokkurs hagræðis frá ríkinu við það að fá fóðurbætinn innfluttan á þennan hátt. Það er einnig vitað mál að þessar neysluvörur eru ekki eins mikill hluti af neysluvörum heimilanna almennt eins og nautakjöt og mjólk og dilkakjöt. Auk þess er svo því við að bæta, að í vísitölulögum, sem voru sett í stjórnartíð þessa hv. þm., vega vörurnar afskaplega misjafnlega. Þar vegur t.d. dilkakjötið helmingi meira en nautakjötið. Þegar ég lét athuga þetta á sínum tíma, þá kostaði um 600 kr. að greiða niður nautakjötið meðan það var hægt að greiða niður kindakjötið með 200 kr. til þess að ná sama vísitölustyrk. Þetta er af því að vísitalan er þannig upp byggð að kindakjötið vegur mikið í henni, en nautakjötið gerir það ekki.

Nú má náttúrlega segja að það þurfi ekki að líta á þetta eins og gert er, vegna þess að kaupgjaldsvísitalan sé ekki sú viðmiðun sem notuð er, og það er rétt þegar þannig er að farið. En allt þetta er þess valdandi að valið hefur verið slíkt sem raun ber vitni um, og hefur það verið sama hvort ráðið hefur ríkisstj., sem þessi hv. þm. hefur setið í, eða aðrar ríkisstj. Ég hef líka sýnt fram á það, að breytingin í þá átt, sem hv. 9. þm. Reykv. leggur til, er dýrari fyrir ríkissjóð, auk þess sem hún tryggir ekki eins vel afkomu þeirra sem verst eru settir í þjóðfélaginu og þessi ráðstöfun gerir.

Það er alveg rétt hjá hv. 9. þm. Reykv. að þetta er á vissan hátt vandamál eins og það er hjá öðrum þjóðum, því að aðrar þjóðir greiða líka verulega niður landbúnaðarvörur. Eitt, sem hefur gert það að verkum að verð á kindakjöti okkar íslendinga í Noregi hefur ekki verið eins hagkvæmt nú síðustu árin og það var áður, er að norðmenn og svíar t.d. hafa báðir greitt mikið niður af sinum kjötvörum. Það er fyrst og fremst nautakjötið sem þeir hafa greitt niður. Þetta hefur gert það að verkum að við höfum ekki getað fengið þar eins hagkvæmt verð og við að öðrum kosti hefðum fengið. Samkv. því, sem ég hef upplýsingar um, hefur það verið svo í Noregi og Svíþjóð að það hefur verið farið upp í 25% í niðurgreiðslum á þessum vörum, og t.d. 1960 var farið upp í 27% í Noregi, en í Svíþjóð 22%, og 1961 var farið upp í 32%. Hins vegar var þetta svo aftur lækkað 1969. Þetta hefur þar eins og annars staðar verið eftir efnahagsástandinu. Þar eins og annars staðar í löndum, sem alþfl.-menn stjórna, hafa matvörur verið greiddar niður, en ekki sagt við neytandann: Gerðu svo vel, fáðu þessa peninga, nú skaltu fara út að skemmta þér. — Það hefur ekki verið sú leið sem þeir, sem þar hafa stjórnað, hafa viljað fara, af því að þeir hafa talið að þeir væru að gera þetta sem ráðstöfun í efnahagsmálum til þess að hafa áhrif á neysluvörur almennings.

Eins og ég tók fram um daginn í ræðu minni, þá skiptir auðvitað miklu máli hvað mikið þarf af fjármunum til þess arna sem og annars í landinu. Það, sem hefur verið verulega unnið að af hálfu landbrn. nú á tveimur síðustu árum sérstaklega, er að leita fyrir sér um möguleika til að selja landbúnaðarvörur úr landi á hagkvæmu verði. Ráðuneytisstjórinn í landbrn. var á fundi með starfsbræðrum sínum úti í Danmörku í fyrra mánuði og Norðurlandaráðherrar voru á fundi á Húsavík í sumar ásamt embættismönnum og voru þessi mál þá mjög til umræðu. Árangurinn af því er sá, að nú höfum við grg. frá framámönnum, m.a. í Danmörku, um verð á kindakjöti í ýmsum Evrópulöndum. Að vísu eru sum þeirra innan Efnahagsbandalagsins og því tollur á, en verð á kindakjöti er t.d. mjög hátt í Frakklandi. Það er verið að athuga möguleika á því einmitt að vinna að þessum málum þar og viðar og verður haldið áfram við það.

Ég vil vekja athygli á út af því sem hv. 9. þm. Reykv. sagði um niðurgreiðslurnar, þá að útflutningsbæturnar eru nú minna hlutfall af heildarframleiðsluverðmætinu en áður var. Þær voru tiltölulega mjög litlar 1960, þegar þær byrjuðu, en 1964 voru þær komnar upp í 5.5%, en 1974 voru þær ekki nema 2.3%, svo að hér er um mjög mismunandi hlutfallstölur að ræða. Hins vegar er með þessar eins og aðrar okkar upphæðir, að í tölum talið eru þær miklu fleiri krónur, en svo er um margt sem við búum við á þessum sviðum sem öðrum í sambandi við okkar efnahagsmál.

Ég vil líka vekja athygli á því að á s.l. ári var ullar- og gæruútflutningur okkar meiri en nokkru sinni fyrr. Er talið að það þurfi að fjórfalda útflutning á ull og gærum til þess að ná sama verðmæti og fyrir álið, sem út er flutt. Sú breyting, sem varð á s.l. ári, er svo mikil að það má gera ráð fyrir að tiltölulega auðvelt sé að ná því marki. Nú er einmitt verið að athuga þetta mál í sambandi við tilfærslu á verði milli ullar og kjöts til þess að gera þetta hagkvæmara. Það er ekki nokkur vafi á því að við íslendingar eigum möguleika í útflutningi í landbúnaðarvörum ef við sinnum þeim málum nógu vel, og það er náttúrlega ljóst að við flytjum ekki út ull og gærur nema við framleiðum kjöt líka, að fá ull og gærur án þess að hafa kjötskrokkinn, það tekst engum manni,jafnvel ekki hv. 9. þm. Reykv. Þess vegna skulum við ekki tala um útflutningsbæturnar bara sem mínusmál. Ég hygg að tölulega sé auðvelt að sanna að ríkissjóður hafi haft beinan hagnað af útflutningi landbúnaðarvara á s.l. ári. En það skal tekið fram, að það var líka hagkvæmara ár í þeim efnum heldur en áður hefur verið. Og okkur veitir hreint ekkert af því að gefa gaum að því nú að ná til útflutningsvara, hvort sem er á sviði landbúnaðarmála eða annarra. Það eru möguleikar einmitt orðnir á sviði landbúnaðarmála, og við þurfum að vinna af dugnaði í því að ná því takmarki sem við getum náð þar. Okkar landbúnaðarvörur hafa um mörg ár, t.d. kjötið verið það litlar að sama og ekkert hefur verið umfram það sem hefur þurft að nota á heimamarkaði, og þess vegna hefur þessum málum ekki verið sinnt sem skyldi.

Nú skal ég, herra forseti, ekki þreyta hv. þm. á lengri ræðu. Ég ætlaði mér ekki að fara að þreyta kapp um þessi mál frekar en orðið er, heldur endurtók nú nokkuð af því sem ég sagði um daginn, vegna þess að hv.fIm. var ekki viðstaddur. Það, sem ég hef lagt hér áherslu á, er að niðurgreiðslurnar eru, eins og hv. 1. flm. tók fram, ráðstafanir í efnahagsmálum. Þær eru því gerðar með þeim hætti að greiða niður þær vörur sem almenningur í landinu og sérstaklega sá hluti fólksins í landinu, sem verst er settur, notar mest af. Þessari stefnu hefur hver einasta ríkisstj. fylgt frá því að þessi stefna var upp tekin 1943. Það er dýrara ef ætti að fara inn á þá braut, sem hv. 9. þm. Reykv. gerir ráð fyrir, að fara að afhenda hverjum sinn skammt. Og eitt af því, sem ég benti á um daginn, var að það var horfið frá því að borga mönnum kjötstyrk. það var horfið frá því að láta menn hafa smjörmiða og annað því um líkt af því að reynslan af því þótti ekki hagkvæm. Þess vegna var farið inn á þá braut sem nú hefur verið farin.

Ég tek það fram að auðvitað eiga þessi mál eins og önnur að vera í athugun og það á að leita eftir heppilegustu leiðum, eins og hefur verið reynt að gera og mikið hefur verið unnið að á s.l. og þessu ári. Ég vil líka taka það fram, að mér sýnast horfur um landbúnaðarmálin vera þær að landbúnaðurinn eigi að geta orðið fyrr en varir verulegur þátttakandi í útflutningi íslendinga og afla gjaldeyris í verulegum mæli í gegnum iðnað ef rétt er á haldið. Það yrði skarð fyrir skildi í íslenskum iðnaði og íslenskri atvinnu ef hráefnin frá landbúnaðinum dyttu þar út, því að okkar ullariðnaður, sem er að verða ein stærsta iðn greinin, byggist á hráefninu frá landbúnaðinum, og það mundi ekki strax búið að bæta upp það atvinnutjón sem fólkið yrði fyrir og byggðarlögin yrðu fyrir ef þessi framleiðsla félli niður. Þetta skulum við hafa í huga, en ekki vera að gera gælur við það að einn sé öðrum betri, í því að fást við niðurgreiðslur því að tölurnar sýna allt annað.