18.03.1976
Sameinað þing: 66. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2676 í B-deild Alþingistíðinda. (2209)

72. mál, niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Mér nægir að gera fáeinar aths. Hæstv. landbrh. spurði, hvers vegna sú leið, sem hér er stungið upp á, hafi ekki verið farin í öll þau ár sem minn flokkur hafi átt aðild að ríkisstj. og ég hafi gegnt ráðherraembætti. Það er auðvitað rétt hjá honum, að niðurgreiðslur eru eldri en núv. ríkisstj., eldri en sú fyrsta ríkisstj. sem ég tók þátt í, miklu eldri. Og það er líka rétt hjá honum, að niðurgreiðslur hafa líklega aldrei verið meiri en einmitt á þeim árum sem minnihlutastjórn Alþfl. var að völdum árið 1959. En skýringin á því er einfaldlega sú, að þær niðurgreiðslur og aukning niðurgreiðslna, sem þá átti sér stað, voru liður í bráðabirgða- efnahagsráðstöfunum sem aldrei var ætlað að standa og voru numdar úr gildi þegar samningar tókust með Sjálfstfl. og Alþfl. um myndun viðreisnarstjórnarinnar Á tímum viðreisnarstjórnarinnar var niðurgreiðslum beitt eins og gert hafði verið áður um áratugi, misjafnlega mikið, eins og hæstv. landbrh. tók réttilega fram, en þau árin sem hann nefndi og þær voru miklar voru þær líður í skyndiráðstöfunum, í bráðabirgðaráðstöfunum sem ekki var ætlað að standa og voru ekki látnar standa. M.ö.o.: þær niðurgreiðslur, sem minn flokkur hefur staðið að, hafa fyrst og fremst verið þáttur í bráðabirgðaráðstöfunum í efnahagsmálum.

En við höfum aldrei dregið á það dul að við vildum fara mjög varlega, eins varlega og unnt væri, í því að beita niðurgreiðslunum sem hagstjórnartæki. Það er alveg ástæðulaust að draga nokkra dul á það, að það var eitt helsta deiluefni í viðreisnarstjórninni milli míns flokks, Alþfl.; annars vegar og Sjálfstfl. hins vegar, hver skyldi vera stefnan í málefnum landbúnaðarins og þ. á m. að því er varðar niðurgreiðslur Þau sjónarmið, sem við héldum fram, áttu, að því er ég best veit, vaxandi fylgi að fagna í samstarfsflokknum. En þáv. landbrh. er kunnur atorkumaður og dugnaðarmaður og hélt fast við hina hefðbundnu stefnu í landbúnaðarmálum og fékk því ráðið að það var stefna þeirrar stjórnar, þó að við létum það opinberlega í ljós, á drengilegan hátt þó, að ég tel, og án allrar ósanngirni, að við værum óánægðir með þá stefnu í landbúnaðarmálum sem viðreisnarstjórnin fylgdi.

Hæstv. landbrh. sagði, að auðvelt væri að sanna að ríkissjóður hefði hagnað af útflutningi landbúnaðarvöru, og undir það tók hv. 3. þm. Norðurl. v., Páli Pétursson. Ég þekki þennan hugsunargang sem hér er um að ræða, en vil ekki lengja þessar annars löngu umr. með því að ræða hann ítarlega. Hér er satt að segja um svo fáránlega hugsunarvillu á sviði efnahagsmála að ræða að það er í raun og veru ekki samboðið landbrh. að taka slík dæmi. Látum vera þó að ómerkingur í blaðamannastétt telji sig geta viðhaft slík ummæli og beitt slíkum rökum sem hér er um að ræða, en ráðh. er það ekki sæmandi.

Hugsunargangurinn er í stuttu máli sá, að tolltekjur af þeim innflutningi, sem hefur orðið mögulegur vegna útflutnings landbúnaðarafurðanna, séu meiri en nemur útflutningsbótunum. Svona einfaldur er hugsunargangurinn, þannig væri hægt sem sagt að jafna útflutningsbæturnar með tolltekjum og öðrum ríkissjóðstekjum sem hljótast af útflutningi á þessari framleiðslu. En sjá menn ekki í hendi sinni, hversu ég get ekki notað annað orð en fáránlegt þetta er, ef sömu rökum væri beitt við sjávarútveginn? Ef við teldum sjávarútveginn eiga þær tolltekjur og aðrar tekjur sem hljótast af útflutningi sjávarafurða, ef við teljum iðnaðinn eiga þær tolltekjur sem hljótast af útflutningi iðnaðarvara, hvað hefði þá blessaður fjmrh. eftir? Það eru ekki nema nokkrar krónur. Þessi hugsunarháttur er í grundvallaratriðum svo rangur að það sæmir ekki valdamönnum að viðhafa hann.

Að öðru leyti skal ég ekki um þetta fjölyrða. En eitt atriði enn í ræðu hæstv. landbrh. vil ég minna á. Hann minnti á þá athugun sem sérfræðingar Alþýðusambands Íslands hefðu gert sem undirbúning að þeim till. sem Alþýðusambandið eða stjórn þess lagði fyrir hæstv. ríkisstj. í des. s.l. Ég vil minna á það, að í skýrslu, sem sérfræðingar Alþýðusambandsins sömdu og lögðu fyrir hæstv. ríkisstj., var komist að þeirri niðurstöðu að það væri tekjuauki, það væri kjarabót fyrir meðlimi Alþýðusambandsins, sem yfirleitt eru lágtekjufólk, að niðurgreiðslunum yrði breytt úr núverandi horfi í beinar greiðslur. Það var niðurstaða sérfræðinga Alþýðusambandsins. enda hefði Alþýðusambandið varla gert það að málstað sínum ef það byggðist ekki á sérfræðilegum athugunum, eins og það raunar gerði.

Örfá orð í tilefni af ræðu hv. 3. þm. Norðurl. v., Páls Péturssonar, sem öll var nú mun hófsamlegri, þessi seinni ræða, heldur en hin fyrri. Ég hlýt að byrja á því að biðja þingheim afsökunar á því að ég skuli hafa farið villur vega varðandi ættir hinna ágætu húnvetninga. Ég mundi það að hv. þm. Páll Pétursson var náskyldur fyrri þingskörungi úr hópi Framsfl., hans eigin flokks, úr Húnavatnssýslu og minnti í skyndi að það hefði verið Skúli Guðmundsson, en auðvitað var það Björn Pálsson. Ég þarf ekki að biðja Pál Pétursson afsökunar á því að hafa talið hann í ætt við Skúla Guðmundsson. Honum er jafnmikill sómi að því að vera í ætt við Björn Pálsson eins og við Skúla Guðmundsson, og ég tel að skyldleikinn við Björn Pálsson leggi honum sömu skyldur á herðar varðandi hóflegan og ábyrgan málflutning eins og ég taldi skyldleikann við Skúla Guðmundsson gera.

Hann nefndi það, að hann væri þeirrar skoðunar að fella bæri niður skatta á landbúnaðarvörum. En honum er það eflaust kunnugt eins og mér er það kunnugt, að þar hefur hann ekki stuðning síns eigin landbrh., hvað þá fjmrh. þeirrar ríkisstj. sem hann styður.

Ræða Pálma Jónssonar var að mínu viti sú skynsamlegasta sem flutt hafði verið fram til þess að hann flutti sina ræðu. Þó verð ég að leiðrétta það sem hann sagði, að yrði hugmynd okkar alþfl.-manna framkvæmd, þá væri um að ræða ríkisþurfalingssjónarmið. Ég sé ekki að neytendur yrðu meiri ríkisþurfalingar þótt þeir fengju sinn neytendastyrk í peningum í stað þess að fá hann í lækkuðu vöruverði. Það yrði um sömu peninga að ræða. Við höfum ekki beðið um eyri meira til neytenda sem greiðslu heldur en ríkið nú greiðir í niðurgreiðslu — ekki eyri meira. Og auðvitað var það ekki rétt, sem hann sagði, að nokkurt orð eða nokkur setning, sem ég hefði mælt í þessum umr., gæti kallast árás á bændur. Hitt þótti mér vænt um, og það gerði það að verkum að ég kalla ræðu haus þá skynsamlegustu sem fram hafi verið flutt þangað til hann tók til máls, að hann játaði alveg hiklaust, að uppbótakerfið þyrfti endurbóta við, og bar fram þá mjög athyglisverðu fullyrðingu, að ef hændur sjálfir hefðu mátt ráða tilhögun niðurgreiðslunnar, þá mundi hún vera allt önnur en hún er í dag. Ég vek sérstaklega athygli á þessu, að ungur bóndi, ungur forustumaður í bændastétt — mér liggur við að segja: skuli hafa kjark til að lýsa því jafnskýrt og skorinort yfir að núverandi kerfi sé meingallað og ekki í samræmi við vilja bænda. Það má geta nærri hvort það er í samræmi við vilja, skoðanir og hagsmuni neytenda.

Ég hika ekki við að segja að þegar hv. 6. þm. Suðurl., Steinþór Gestsson, tók til máls, þá talaði hann af enn meiri raunsæi og skilningi að mínu viti heldur en flokksbróðir hans, hv. 2. þm. Norðurl. v., Pálmi Jónsson, því að hann sagði berum orðum — og það vil ég undirstrika, það vil ég að komi fram, þess vil ég að sé minnst, að þessi ágæti þm. sagði að núverandi uppbótakerfi væri óskynsamlegt. Og það er það. Um það erum við hjartanlega sammála. Hann lét þess getið í einni setningu að hann vissi ekki betur en ég væri e.t.v. höfundur þessa kerfis. En það er alger misskilningur. Kerfið var í grundvallaratriðum komið á meira að segja áður en ég kom á þing, sem var 1946, hvað þá áður en ég varð ráðh., sem var 1956. Hitt tel ég þó aðalatriðið í því sem hann sagði, að hann benti á, hann undirstrikaði, hann viðurkenndi að kerfið væri óskynsamlegt. Þetta ætti að vera sérstök hvöt til þeirrar n., sem fær málið til athugunar, að leggja það ekki á hilluna, heldur athuga málið gaumgæfilega. Breytinga er þörf, jafnvel þó að við höldum þessu grundvallarkerfi. Þótt við höldum niðurgreiðslum, þ.e.a.s. höldum fast við það sjónarmið að nota tæpa 5 milljarða til þess að lækka vöruverð, þá má gera það með miklu skynsamlegri hætti en nú á sér stað. Á því er ekki nokkur minnsti vafi. Og ef kerfinu er haldið, þá verður að breyta því. En ég er svo þeirrar skoðunar og mínir flokksbræður hér á þingi, að fyrst á annað borð þarf að breyta kerfinu, þá eigi að breyta um grundvallarsjónarmið varðandi ráðstöfun þessara 4.6 milljarða kr.

Ég held að ég þurfi ekki að gera fleiri aths. að lokum við það sem sagt hefur verið, en lýk máli mínu á því að vekja athygli á þeirri staðreynd, sem út af fyrir sig er mjög ánægjuleg, að geysimiklar, óvenjumiklar umr. hafa orðið um þetta mál, meiri umr. en flestar aðrar till. til þál. sem verið hafa til umr. í Sþ, á þessu þingi. Það sýnir, hvort sem mönnum líkar betur eða verr, að þm. gera sér meira og minna ljóst að hér er um að ræða vandamál sem þarfnast athugunar, hér er um að ræða mál þar sem breytinga er þörf. Annars mundu ekki jafnmargir þm. láta til sín heyra um málið. Á þessu vil ég gjarnan vekja athygli við þá hv. n., sem málið fær til meðferðar, í trausti þess að hún ræði málið alvarlega og geri einhverjar skynsamlegar till. til þingsins um að athugun haldi áfram á málinu á vegum hæstv. ríkisstj.