22.03.1976
Efri deild: 79. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2685 í B-deild Alþingistíðinda. (2216)

154. mál, sálfræðingar

Frsm. (Axel Jónsson):

Herra forseli. Menntmn. þessar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um sálfræðinga á þskj. 332. Eins og fram kemur í nál. á þskj. 120 hefur n. athugað frv. á nokkrum fundum og fengið á sinn fund höfunda frv., þau Hrafnhildi Stefánsdóttur fulltrúa í menntmrn. og Andra Ísaksson prófessor og svöruðu þau fjölmörgum spurningum fundarmanna og veittu fyllri upplýsingar um ýmis atriði. Menntmn. mælir með samþykkt frv. með breyt. sem hún flytur á þskj. 421. Einstakir nm. áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. ef fram koma.

Við 1. umr. þessa máls hér ? hv. d. gat hæstv. menntmrh. þess, að frv. væri undirbúið og flutt að ósk Sálfræðingafélags Íslands, og einnig, að þrátt fyrir að sálfræðingar hafi í vaxandi mæli verið ráðnir til starfa, einkum innan skólakerfisins og heilbrigðisþjónustunnar, hafi ekki verið sett nein lagaákvæði um starfsemi þeirra og starfsheitið sálfræðingur hefur ekki notið lögverndar. Hins vegar setti síðasta Alþ. lög um félagsráðgjöf, þ. e. lög nr. 41/1975. Það er kunnugt að störf félagsráðgjafa og sálfræðinga eru nokkuð hliðstæð eða að öllum jafnaði mjög nátengd, þeir starfa mikið saman. Eðlilegt er því talið að sett verði einnig lög um sálfræðinga.

Sálfræðingafélag Íslands var stofnað 1954 og er meðlimatala þess nú veturinn 1975–1976 34 talsins.

Sálfræðingar eiga sér ekki langa starfssögu á Íslandi. Þegar frá eru talin afmörkuð verkefni einstakra manna er það fyrst 1960 að veruleg breyting verður á. Það ár voru sálfræðideild skóla í Reykjavík og geðverndardeild barna í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur settar á stofn. Á sjöunda áratugnum var tekið að ráða sálfræðinga til starfa í sjúkrahúsum: Kleppsspítala og Borgarspítalanum í Reykjavík. 1969 var stofnað til sálfræðiþjónustu í Reykjanesumdæmi á vegum sveitarfélaga þar. 1970 tók geðdeild Barnaspítala Hringsins við Dalbraut til starfa og hafa nokkrir sálfræðingar unnið þar. Það er hins vegar fyrst með grunnskólalögunum frá 1974 með ákvæði um ráðgjafa- og sálfræðiþjónustu í skólum að sálfræðingum eru ætluð ákveðin verkefni í lögum samkv. IX. kafla þeirra laga.

Hér hefur verið umtalsverð þróun á tiltölulega skömmum tíma. Sálfræðingar hafa nú haslað sér völl á fleiri starfssviðum og fyrirsjáanlegt að þeim muni fara fjölgandi á næstu árum, einkum við ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í skólum og við heilbrigðisþjónustu. Það er því orðið brýnna en áður að kveða á um það í lögum, hverjum skuli vera heimilt að nota starfsheitið sálfræðingur, og binda notkun þess við opinbera leyfisveitingu. Slík löggjöf mundi tryggja betur en áður að við sálfræðistörf fengjust þeir sem til þess hefðu staðgóða menntun og uppfylltu að öðru leyti þau almennu skilyrði sem rétt þætti að setja.

Kennsla í sálarfræði til BA-prófs við Háskóla Íslands hófst haustið 1971. Megintilgangurinn með þessu námi er sá, að prófið verði áfangi að kandídatsprófi í sálarfræði við erlendan háskóla eða öðru sambærilegu námi, sem veitir starfsréttindi sálfræðings. Í frv. er getið þeirra menntunarkrafna sem uppfylla þarf til að öðlast löggildingu sem sálfræðingur. Þessar kröfur eru þær sömu og nú þarf til inngöngu í Sálfræðingafélag Íslands. Virðist eðlilegt, að leita umsagnar þess félags um menntun þeirra sem um löggildingu sækja, sérstaklega þó þegar umsækjandi hefur ekki lokið einhverri af prófgráðum þeim sem greindar eru í frv.

Starfssvið sálfræðinga er viðtækt og störfin þess eðlis að þau geta haft mikil áhrif á líf manna. Störfum sálfræðinga fylgir mikil ábyrgð og verður því að gera strangar kröfur til þeirra sem hafa sálfræðiþjónustu með höndum. Þess vegna verður að telja brýna nauðsyn á að sett verði lög um verndun starfsheitisins sálfræðingur.

Ég gat þess að kennsla í sálarfræði til BA-prófs við Háskóla Íslands hefði hafist haustið 1971. Hér á hinu háa Alþ. urðu miklar og fróðlegar umr. um þessa vísindagrein fyrir um það bil hálfri öld. Á Alþ. 1915 var flutt frv. til laga á þskj. 148 um stofnun kennaraembættis í hagnýtri sálarfræði við Háskóla Íslands. Flm. voru þm. Matthías Ólafsson, þm. vestur-ísfirðinga, Jón Jónsson, 2. þm. norðmýlinga, og Sveinn Björnsson, 1. þm. Reykv., síðar forseti Íslands. Frv. náði ekki fram að ganga, en varð þess valdandi að Alþ. samþ. þá 3000 kr. styrkveitingu til Guðmundar Finnbogasonar til fræðiiðkana og fyrirlestrahalds.

Herra forseti. Ég tel ástæðu til að geta þess hér nú í sambandi við meðferð þessa máls sem hér er á dagskrá, fyrst og fremst til að vekja athygli á því að þessi málefni komu til umr. hér á hinu háa Alþ. fljótlega eftir stofnun Háskólans og það þó að á margþættum erfiðleikatímum fyrri heimsstyrjaldarinnar hafi verið að ræða.

Á Alþ. 1917 kemur aftur fram frv. um sama efni, þó í annarri mynd að vísu. Er það að finna á þskj. 87. Það var um að skipa dr. phil. Guðmund Finnbogason kennara í hagnýtri sálarfræði við Háskóla Íslands. Nú var kennarastaðan bundin við nafn dr. Guðmundar Finnbogasonar og fram tekið að hann skuli hafa sömu skyldur og réttindi sem prófessorar. Þá voru flm. þeir Bjarni Jónsson frá Vogi, þm. dalamanna, Matthías Ólafsson og Jón Jónsson, sem áður var getið, og auk þeirra Magnús Pétursson, þm. strandamanna. Bjarni frá Vogi var 1. flm. og einnig frsm. menntmn. Nd. Í nál. á þskj. 297 er m.a. tekið fram að hér sé um tiltölulega unga vísindagrein að ræða sem undirstaða hafi verið lögð að um miðja 19. öld eða nánar tiltekið er hinn frægi, þekkti vísindamaður og spekingur Fechner gaf út bók sina Elemente der Psychofysik, í Leipzig 1860. Enn fremur segir í þessu merka nál. að eftir þetta sé farið að leggja mikla stund á þær greinar sálarfræðinnar er byggjast á reynslu, þekkingu og tilraunum, svo sem sálareðlisfræði og sálaraflfræði. Lærðu menn af þessu að koma mælingu við ýmsar hliðar á andlegri og líkamlegri starfsemi mannsins, finna lögmái hennar innan vissra takmarka og að lokum að hagnýta þetta lögmál með því að haga vinnu eftir því. Þá er og að því vikið að menntaþjóðir keppist við að þroska og efla þessa vísindagrein og að í landinu sé einmitt maður sem með styrk af landsfé leggi stund á hagnýta sálarfræði, svo sem bækur hans og fyrirlestrar og meðmæli lærðra manna bera vott um. Það sé því vinningur fyrir landið með samþykkt frv. að veita dr. Guðmundi fast starf og á þann hátt treysta það frekar að íslendingar njóti starfskrafta hans því að hætta sé á að sótt verði eftir honum viðar. — Þetta eru stuttar tilvitnanir í þetta merka nál. frá 1917.

Ég vil bæta því við þetta að Andri Ísaksson prófessor gat þess í lokaerindi sínu í ríkisútvarpinu í gær, í þeim merka erindaflokki sem hann hefur flutt þar um uppeldi og sálarfræði, að þekktur svissneskur fræðimaður hafi upp úr 1920 vitnað til ritgerðar dr. Guðmundar Finnbogasonar, og sýnir það m.a. hvers álits hann naut meðal færustu fræðimanna á þessum sviðum á þeim tíma. Dr. Guðmundur hafði stundað nám í Danmörku, Frakklandi og Þýskalandi.

Miklar umr. urðu á Alþ. um frv. og er þær að finna í Alþingistíðindum frá þeim tíma.

Þetta kemur svo aftur til mikilla umr. á Alþ. 1922. Þá var kjörin sérstök sparnaðarnefnd í Sþ. til að gera till. um niðurskurð og aukinn sparnað, en fjárlög voru þá afgreidd í deildum, í fjárveitinganefndum deildanna. Ljóst er að þessi tilhögun hefur á flestan hátt reynst illa og oft á tíðum lítil samvinna, að því er virðist, milli sparnaðarnefndar Sþ. og fjvn. deildanna. Ein af till. sparnaðarnefndar var að kennaraembættið í hagnýtri sálarfræði við Háskóla Íslands yrði lagt niður. Er þetta frv. á þskj. 61 frá þessum tíma. Miklar umr. urðu enn á ný um málið. Bjarni frá Vogi var harðasti andmælandi þess og taldi að fenginni reynslu af starfi Guðmundar Finnbogasonar kæmi ekki til mála að leggja niður kennaraembættið. Taldi hann upp það sem Guðmundur hafði kennt, og kemur þar m.a. fram að hann hafði haldið fyrirlestra um fagurfræði, frásögn og vitni, um sálarfræði námsins, um skipulag vinnunnar, um áhrif veðráttu og loftslags á sálarlíf manna, um hagnýta sálarfræði, um samlífið og þjóðarandann, kennt stúdentum trúarbragðasálarfræði, um samband sálar og líkama, notkun bóka og bókasafna, veitti lögfræðingum kennslu í glæpamannasálarfræði, hafði sálfræðitilraunir og gáfnapróf með nokkrum stúdentum, svo nokkuð sé talið sem Bjarni frá Vogi vitnaði til um störf dr. Guðmundar Finnbogasonar. Sparnaðarfrv. féll á einu atkv., en eins og áður sagði var kennaraembættið bundið í lögum við nafn Guðmundar Finnbogasonar.

Herra forseti. Ég hef staldrað svo mjög við umr. um þessi mál frá því fyrir hálfri öld, að öðrum þræði sökum þess að mér þykja þær allfróðlegar og merkilegar og að öðru leyti vegna þess að í dag eru þessi mál af mörgum talin nútímafyrirbæri, en þær tilvitnanir, sem ég hef hér að framan vikið að, sýna allt annað. Hér er um vísindagrein að ræða sem hefur verið að þróast á aðra öld. Það er hins vegar mitt mat að sálfræðingar njóti á stundum ekki sannmælis og verði fyrir óréttmætum ásökunum.

Í aths. með frv. kemur fram að árið 1957 sneri norræna sálfræðingafélagið sér til Norðurlandaráðs og fór þess á leit að ráðið tæki til athugunar samningu samnorrænna reglna um starfsemi sálfræðinga. Árið 1958 lagði Norðurlandaráð síðan til við ríkisstj. landanna að samdar yrðu reglur um starfsemi sálfræðinga, löggildingu, þagnarskyldu, vernd gegn misnotkun sálfræðilegra rannsóknaaðferða og reglur um samnorrænan vinnumarkað fyrir sálfræðinga. Skipaðar voru sérstakar n. í þessum tilgangi á öllum Norðurlöndunum nema á Íslandi, og ákveðið var að Noregur sæi um samræmingu verksins. Ekki reyndist þó mögulegt að n. kæmust að sameiginlegri niðurstöðu, m.a. vegna þess að umboð þeirra var mismunandi. Þó náðist samstaða um nokkur mikilvæg atriði þar sem í öllum löndum var lagt til að lögfestar yrðu reglur um löggildingu sálfræðinga og þagnarskyldu, svo og að komið yrði á fót sérstöku sálfræðingaráði til að vera yfirvöldum til aðstoðar við framkvæmd einstakra ákvæða laganna. Auk þess náðist samkomulag um drög að samningi milli Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um sameiginlegan vinnumarkað fyrir sálfræðinga. Slíkan samning er þó ekki mögulegt að staðfesta fyrr en settar hafa verið í öllum löndum reglur um löggildingu og starfssvið sálfræðinga.

Málið var tekið fyrir að nýju á fundi Norðurlandaráðs í febr. 1970 og mælti ráðið með því við ríkisstjórnirnar að skapaður yrði grundvöllur fyrir samnorrænan vinnumarkað sálfræðinga á þann hátt að settar yrðu reglur um starfsemi sálfræðinga og menntunarkröfur yrðu samræmdar. Hins vegar kom í ljós að slík lagasetning strandaði á mismunandi atriðum í löndunum og ekki reyndist unnt að ná fram samnorrænni lausn að svo komnu máli.

Lög um viðurkenningu sálfræðinga voru sett í Noregi 9. mars 1973 og tóku þau gildi 1. okt. 1974. Samsvarandi lög hafa enn ekki verið sett á hinum Norðurlöndunum. Frá 1. okt. 1974 hefur sá einn rétt til að kalla sig sálfræðing í Noregi sem fengið hefur til þess viðurkenningu norska félagsmálaráðuneytisins.

Frv. þetta er í mörgum atriðum svipað norsku lögunum, enda hefur við samningu þess verið reynt að gæta samræmingarsjónarmiða eftir því sem fært hefur þótt. Í norsku lögunum eru ákvæði um að skipa skuli sérstakt sálfræðingaráð og skal leita álits þess um fjölmörg atriði varðandi framkvæmd laganna. Skilyrði fyrir löggildingu er m.a. að umsækjandi hafi lokið þeirri skylduvinnu sem krafist er samkvæmt reglugerð. Þá eru sérstök ákvæði um að rn. sé heimilt að setja reglur þess efnis að einungis sálfræðingar og aðrir aðilar, er hafa tilskilda þekkingu, megi nota ákveðnar sálfræðilegar aðferðir og hjálpartæki og rn. geti sett nánari reglur um starfsemi sálfræðinga, skrifstofuhald, meðferðarskýrslur o fl.

Við samningu frv. hér var ekki talin ástæða til að taka slík ákvæði upp. Að svo komnu máli er ekki talin þörf á sérstöku ráðgefandi sálfræðingaráði, og í 8. gr. frv. er að finna almenna heimild til setningar reglugerðar er kveði nánar á um framkvæmd laganna. Í aths. með frv. er hins vegar prentvilla þar sem vitnað er til 7. gr. um þetta atriði.

1. gr. frv. kveður á um að þeir einir hafi rétt til að kalla sig sálfræðinga sem til þess hafa fengið leyfi menntmrn. Í norsku lögunum voru hins vegar ákvæði um viðurkenningu félmrn., en þar í landi eru allar slíkar viðurkenningar undir einu rn., þ.e. félmrn., en hér er þetta í mörgum rn. Til greina kom heilbr.- og trmrn., eins og lög um félagsráðgjöf kveða á um varðandi félagsráðgjafa, en með tilliti til grunnskólalaganna þótti eðlilegra að þetta væri menntmrn. Eðlilegt verður að teljast að sú skipan verði tekin hér upp síðar að löggildingar þær, sem hér um ræðir, verði settar undir eitt og sama rn. — 2. málsgr. bannar notkun slíkra starfsheita ef þau eru til þess fallin að vekja ranglega hugmyndir um að viðkomandi hafi hlotið löggildingu sem sálfræðingur.

2. gr. frv. er um almennar kröfur til þess að öðlast löggildingu sem sálfræðingur. Sýnist eðlilegt að hafa hliðsjón af þeim kröfum sem gerðar eru til starfsstétta sem fjalla um trúnaðar- og einkamál, t.d. lækna.

3.–4. gr. þarfnast ekki skýringa.

Við 5. gr. frv. er brtt. á þskj. 421 um að greinin orðist eins og þar segir. Þar eru í fyrsta lagi felld niður orðin „misnotkunar vímugjafa, hás aldurs.“ Var þessi ítarlega upptalning talin óþörf og vart viðeigandi að álíti n., því að orðalag gr., eins og n. leggur til, tekur fyllilega til fyrrgreindra atriða þó að þau séu ekki upptalin. Þá er viðbót við 1. málsgr.: „Leita skal álits Sálfræðingafélags Íslands um málið.“ Eðlilegt er að löggildingaraðili geti, ef vissar ástæður eru fyrir hendi, afturkallað löggildinguna. N. þótti eðlilegt að leitað yrði umsagnar í því tilfelli einnig til þess aðila sem gefur umsögn um leyfisveitinguna. Þá er og í þessari gr. að finna ákvæði um að sá, sem fyrir leyfissviptingu verður, geti skotið úrskurði um sviptingu löggildingar til dómstóla.

Samkv. 6. gr. getur rn. veitt löggildingu að nýju. Rn. metur þá í hverju einstöku tilfelli hvort aðstæður séu slíkar að veita beri löggildinguna og hvort rétt sé að binda slíka löggildingu við ákveðin tímamörk.

Að öðru leyti vísa ég til aths. um frv. og einstakar greinar þess.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem menntmn. þessarar hv. d. flytur till. um á þskj. 421.