23.03.1976
Sameinað þing: 68. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2701 í B-deild Alþingistíðinda. (2237)
201. mál, þjóðarbókhlaða
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Í fjarveru fyrri fyrirspyrjanda, hv. 3. þm. Reykn., Gils Guðmundssonar, vil ég mæla hér fyrir fsp. um þjóðarbókhlöðu og hafa þann formála á sem hann hafði samið.
„Liðið er nú nokkuð á annan áratug síðan umr. hófust fyrir alvöru um húsnæðismál helstu bókasafna landsins, Landsbókasafns og Háskólabókasafns, og nauðsyn þess að bæta þar úr með myndarlegum hætti. Árið 1966 skipaði þáv. menntmrh., Gylfi Þ. Gíslason, n. til að athuga hversu málum vísindalegra bókasafna verði skipað hér á landi til frambúðar, þ. á m. um tengsl Háskólabókasafns og Landsbókasafns. N. þessi skilaði skýrslu og till. síðar á hinu sama ári.
Árið 1967 urðu hér á Alþ. allítarlegar umr. um málið. Kom þar fram nokkuð einróma álit þess efnis að bygging þjóðarbókhlöðu væri eitt1 ert brýnasta og nærtækasta verkefni ríkisins í byggingamálum stofnana þess. Leiddu umr. til þess, að stofnaður var svokallaður Byggingarsjóður safnhúss og veitt til hans í fyrsta sinn 1.5 millj. kr. á fjárl. fyrir árið 1968. Í ágústmánuði 1968 var 150 ára afmælis Landsbókasafns minnst með hátíðarsamkomu í Þjóðleikhúsinu. Þar skýrði menntmrh. frá því að nýju bókasafnshúsi hefði verið valinn staður á svæðinu við Birkimel nálægt Hringbraut. Við sama tækifæri var og frá því greint að þjóðhátíðarnefnd sú, sem Alþ. hafði skipað til að undirbúa þjóðhátíð í minningu ellefu alda byggðar í landinu, hefði samþ. einróma að leggja til að þjóðbókasafnsbygging yrði reist sem höfuðminnisvarði þeirra merku tímamóta. Upp úr þessu komst verulegur skriður á undirbúning málsins. Innlendir bókasafnsmena og erlendir sérfræðingar réðu ráðum sínum og gerðu tillögur. Alþ. hækkaði framlagið til Byggingarsjóðs. Áætlanir voru gerðar um að reisa 25 þús. rúmmetra hús fyrir 150 millj. kr. og bjartsýnir menn sáu það í hillingum vígt og tekið í notkun á hátíðarárinu 1974.
Í aprílmánuði 1970 lagði ríkisstj. Íslands fram svo hljóðandi till. til þál.:
„Alþingi ályktar, að í tilefni af 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar 1974 skuli reist þjóðarbókhlaða, er rúmi Landsbókasafn Íslands og Háskólabókasafn.“
Þessi till. var samþ. 30. apríl sama ár með 51:1 atkv. Nú horfði vænlega. Hinn 15. júlí 1970 skipaði menntmrh. þriggja manna byggingarnefnd sem tók þegar til starfa á grundvelli þess undirbúnings sem áður hafði fram farið. Hefur byggingarnefndin starfað síðan og vafalaust ötullega eftir atvikum. Umdeilanlegar ákvarðanir hefur hún tekið, m.a. til þess að flýta fyrir framgangi málsins, og á ég þar einkum við það að ekki skyldi efnt til samkeppni um slíkt stórhýsi sem hér er um að ræða.
En hvað sem öðru líður, þá er það staðreynd að árið 1974 er líðið í aldanna skaut og þjóðarbókhlaða er engin risin, ekki einu sinni farið að stinga fyrstu skóflustunguna í grunninum. Veit ég vel, að einhver mun segja að ekki blási byrlega nú til að hefjast handa um slíkt stórvirki sem þetta. En má ég spyrja: Hvernig stendur á því að það vefst svo óskaplega fyrir okkur nú í öllu peningaflóði síðustu tíma að reisa sómasamleg hús yfir vísindasöfnin, stjórnarráð og Alþingi? Vorum við svona miklu ríkari eða duglegri fyrir 70–100 árum? Það var árið 1879 sem ákveðið var að reisa alþingishús. Réttum tveim árum síðar var í kálgarði Halldórs Kr. Friðrikssonar risið það traustlega myndarhús sem hýst hefur Alþ. síðan. Og ekki liðu nema rétt 3 ár frá því að Alþ. ákvað árið 1905 að reisa hús yfir söfn landsins þar til hin stílhreina safnhúsbygging stóð fullsmíðuð við Arnarhól.“
Allt vekur þetta upp spurningar og gerir það ekki nema sjálfsagt að spurt sé um þetta mál nú, en fsp. er í þrem liðum, svo hljóðandi:
„1. Hve mikið fé er nú í Byggingarsjóði Þjóðarbókhlöðu?
2. Hvað líður undirbúningi málsins?
3. Hvenær er ráðgert að hefjast handa um bygginguna og hvenær má ætla að byggingu ljúki?“