04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (224)

290. mál, virkjunarrannsóknir á Fljótsdalsheiði

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Það var aðeins varðandi það atriði í svari hæstv. ráðh. þar sem hann lagði áherslu á að þó að fullnaðarupplýsingar varðandi þær athuganir, sem fram hafa farið í sumar á virkjun Bessastaðaár, lægju fyrir síðar í vetur, þá væri ekki þar með sagt, að því hefði verið lofað að þá yrði ákvörðun tekin um virkjunina. Ég tel að það skipti austfirðinga svo miklu máli að fá vitneskju um hvort á að ráðast í þessa virkjun eða ekki og við séum búnir að bíða það lengi í þessum efnum að það sé í rauninni lágmarkskrafa okkar að þegar fullnaðarathugun hefur farið fram og hægt er að taka ákvörðun í málinu, þá verði ákvörðun tekin.

Eins og fram hefur komið í þessum umr. vorum við þm. Austurl. upplýstir um það í sumar af þeim aðilum, sem fóru með þessar rannsóknir, að það ætti að vera hægt að taka ákvarðanir í þessu máli í septembermánuði. (Iðnrh.: Hver segir það?) Það var verkfræðingur, forstöðumaður þessara rannsókna. Hann sagði þetta á fundi með öllum þm. Austurl. En við því er ekkert að segja. Þetta getur dregist eitthvað. En nú vil ég fara þess á leit við hæstv. ráðh. að hann lýsi því hér yfir að þegar unnið hefur verið úr þeim gögnum, sem fyrir liggja varðandi þessar rannsóknir, sem sagt síðar í vetur, verði tekin ákvörðun um hvort á að ráðast í þessa virkjun eða ekki, austfirðingar verða ekki dregnir lengur í einhverri óvissu um hvað gert verði í þessum efnum. Mér sýnist þetta sanngjörn krafa og aðeins eðlilegt að þegar allt liggur fyrir, þá taki ráðh. ákvörðun um hvort hann vill ráðast í þessa virkjun eða ekki. Sem sagt, ég vænti þess að hæstv. ráðh. treysti sér til að lýsa þessu yfir, að þegar öll gögn liggja fyrir og úrvinnslu er lokið, þá taki hann ákvörðun um virkjunina.