23.03.1976
Sameinað þing: 69. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2706 í B-deild Alþingistíðinda. (2244)

103. mál, rekstrarlán til sauðfjárbænda

Flm. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Á þskj. 119 flytjum við 4 þm. Alþb., hv. þm. Helgi F. Seljan, Jónas Árnason, Stefán Jónsson og ég, till. til þál. þess efnis að ríkisstj. geri ráðstafanir til þess að tryggja bændum viðunandi rekstrarlán út á sauðfjárafurðir.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að bóndinn, sem hefur tekjur af ræktun sauðfjár og þeir eru nú ekki fáir í landi okkar, fær ekki erfiði sítt launað nema einu sinni á ári. Hann þarf að leggja í mikinn kostnað við búskap sinn að vetri, vori og sumri, og þessi kostnaður skilar sér ekki aftur fyrr en varan er komin í söluhæft ástand, hvort sem um er að ræða mjólk eða kjöt. Veitt eru afurðalán til bænda frá Seðlabankanum og viðskiptabönkum, og þessi lán munu nema um 65–68% af heildsöluverðmæti afurðanna. Þetta dugar þolanlega fyrir mjólkurframleiðendur, en aftur á móti alls ekki fyrir sauðfjárbændur sem þurfa að brúa bilið frá ársbyrjun og þar til þessi afurðalán fást greidd.

Úr þessum vanda hefur verið reynt að bæta með lánum úr bankakerfinu á tímabilinu frá mars til ágústmánaðar og þessi lán hafa verið nefnd rekstrarlán, en þau hafa því miður farið hlutfallslega lækkandi nú um alllangt skeið og eru því orðin algerlega ófullnægjandi eins og nú er komið. Við, sem erum fulltrúar fyrir kjördæmi þar sem sauðfjárbændur eru margir, en það eru fyrst og fremst kjördæmin fyrir vestan, norðan, austan, höfum orðið varir við þungar umkvartanir, alvarlegar athugasemdir bænda og fyrirsvarsmanna samvinnufélaga nú seinustu missirin, og það eru einkum forráðamenn kaupfélaga norðan- og austanlands sem hafa vakið athygli á þessu mikla vandamáli. Með skýrum rökum hefur verið á það bent að rekstrinum væri stefnt í algert strand ef ekki fengist úrlausn mála.

Í þessu sambandi er rétt að nefna tölur sem komu fram á Búnaðarþingi 1975. Þá var upplýst að rekstrarlán til bænda höfðu numið 65% af framleiðsluverðmæti sauðfjárafurða ársins 1958, en að þessi lán hefðu rýrnað mjög verulega síðan, einkum þó á fyrstu árum viðreisnarstjórnarinnar þegar þau rýrnuðu um hvorki meira né minna en helming og voru komin árið 1963 niður í 34% af framleiðsluverðmæti afurðanna. En lánin hafa haldið áfram að lækka hlutfallslega ár frá ári síðan þetta var og þau voru á árinu 1974 aðeins rúm 21% af framleiðsluverðmæti sauðfjárafurða.

Á liðnu ári fóru erfiðleikar sauðfjárbænda og viðskiptaaðila þeirra enn vaxandi, eins og kunnugt er, vegna stórfelldrar verðbólgu og mikilla vaxtahækkana. Áburðarverð hækkaði t.d. mjög verulega á liðnu ári og gífurlegar hækkanir urðu á öðrum rekstrarvörum, ekki síst á kjarnfóðri.

Við flm. þessarar till. fluttum þetta mál á þingi fyrir einu ári, en málið fékkst þá ekki afgreitt. Hins vegar voru þá gefin fyrirheit um það að ráðin yrði bót á þessu vandamáli og rekstrarlánin yrðu mjög verulega hækkuð á árinu 1975. Ekki mun ástæða til að neita því að um talsverða hækkun var að ræða á þessum lánum á árinu 1975. En eftir þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér frá forráðamönnum tveggja af stærstu kaupfélögum landsins, mun samt útkoman vera sú að þær hækkanir, sem orðið hafa á þessum rekstrarlánum, gera ekki betur en halda í við þær almennu verðhækkanir sem orðið hafa, halda í við verðbólguna. Og það varð niðurstaðan af útreikningum þessara ágætu manna, sem ég bað um að reikna út sérstaklega hvernig þetta kæmi út eftir liðið sumar, að útkoman væri mjög svipuð og áður og ástandið væri því í raun og veru jafnslæmt og það hefði verið, enda þótt kannske mætti þakka fyrir að það skyldi ekki versna enn frekar í þeirri miklu holskeflu verðhækkana sem dundi yfir á liðnu ári.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál frekar. Í till. þeirri, sem við flytjum, er gert ráð fyrir því að ríkisstj. geri ráðstafanir til að leysa þetta vandamál, að sjálfsögðu í samvinnu við bankakerfið, Seðlabankann og viðskiptabankana, og verði við það miðað að rekstrarlánin verði veitt á tímabilinu frá ársbyrjun til ágústloka ár hvert og verði þá í ágústlok orðin 75% af væntanlegum afurðalánum.

Ég skal fúslega viðurkenna að þetta vandamál er misjafnlega stórt í sniðum í hinum ýmsu landshlutum. Fer það auðvitað nokkuð eftir því hve sauðfjárbúskapurinn er stór þáttur í landbúnaðarframleiðslunni. En í þeim byggðarlögum þar sem sauðfjárbúskapurinn er í miklum meiri hluta, en það er m.a. í Dölum, á Vestfjörðum og Ströndum, í Húnavatnssýslum, í Norður-Þingeyjarsýslu alveg sérstaklega og á Austurlandi, á þessum svæðum er þetta mjög stórt og varhugavert vandamál.

Ég ætla ekki að fara að gera landbúnaðarmálin að öðru leyti að umræðuefni. Það er ljóst að í þeim efnum eru mörg óleyst viðfangsefni sem manni sýnist að gangi allt of hægt að reynt sé að ráða bót á. Það fer ekkert á milli mála að það þarf að skipuleggja framleiðslu landbúnaðarafurða betur en gert hefur verið og kannske sjást einmitt þess merki nú á seinustu vikum og mánuðum að skilningur sé að vaxa á nauðsyn þess. Í öðru lagi ber brýna nauðsyn til þess að stórlega verði aukin framleiðsla innlends kjarnfóðurs. Hef ég löngum undrast hvað þau mál hafa lítið þokast áfram á síðari árum, enda þótt bersýnilegt sé að hér sé um gríðarlega mikilvægt mál að ræða frá þjóðhagslegu sjónarmiði. En hvað snertir þetta mál, þá fer ekkert á milli mála að endurbætur á rekstrarlánum sauðfjárbænda eru fyrst og fremst sjálfsagt réttlætismál sem ráða verður bót á hið fyrsta.

Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja til að að lokinni þessari umr. verði þessu máli vísað til hv. allshn.