23.03.1976
Sameinað þing: 69. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2715 í B-deild Alþingistíðinda. (2249)
103. mál, rekstrarlán til sauðfjárbænda
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég get ekki fallist alveg á það sem mér fannst koma fram hjá hv. flm., Ragnari Arnalds, að ekki beri að líta á lánamálin í heild. Mér finnst nauðsyn bera til þess að skoða þessi mál öll í samhengi. Það er hver þátturinn um sig ákaflega mikilvægur og ef einhver hlekkurinn brestur, þá náttúrlega slitnar þessi keðja, þá skapast erfiðleikar, kannske óbotnandi erfiðleikar hjá viðkomandi söluaðila, viðkomandi fyrirtæki, sem aftur leiðir út til þeirra bænda sem eiga að njóta góðs af þessum lánum.
Ég vil þakka hæstv. landbrh, fyrir mjög fróðlega ræðu sem hann flutti hér með gnótt af tölum. Ég held að það sé nú ljóst, bæði af þeirri ræðu og raunar vitum við það allir, sem höfum fengist við þessa framleiðslu, að það er þakkarvert, það sem áunnist hefur, og það má alls ekki gera lítið úr því. En hitt er alveg rétt hjá flm. málsins, að rekstrarlánin eru enn þá of lág miðað við þarfir. Það held ég að við getum allir verið sammála um. Og við getum líka verið sammála um það, held ég, að erfiðleikar kaupfélaganna eru mjög verulegir, m.a. vegna þessa, og það er áreiðanlega tímabært og áreiðanlega nauðsynlegt í flestum tilfellum að flýta útborgunardögum lána. Það er meginatriði í málinu að brúa þau erfiðu tímabil sem koma í rekstri fyrirtækjanna. Þegar vaxtakjörum er háttað eins og hér er í landinu, þá er annað en gaman ef greiðslur og fyrirgreiðsla geta ekki runnið með nokkuð eðlilegum hætti og þarf að standa mjög á fyrirgreiðslunum.
En hvort sem mönnum líkar þessi till. betur eða verr, þá er náttúrlega meginatriðið að hæstv. landbrh. takist að fá Seðlabankann til að lagfæra þetta, að það sé unnið markvisst og mjög ákveðið að þessum úrbótum. Ég er ekki fyllilega sáttur við það orðalag sem hæstv. landbrh. notaði hér, þar sem hann var að tala um samninga sem starfsmenn úr rn, ættu við Seðlabankann um þetta mál. Mér finnst að ríkisstj. eigi allra hluta vegna, bæði í þessu máli og öðrum, að vera húsbóndi Seðlabankans, en ekki að hún þurfi að sækja undir neitt högg hjá honum. Þess vegna heiti ég á hæstv. landbrh. að beita áhrifum sínum og ráðsnilli í ríkisstj. þannig að hún leggi fyrir Seðlabankann að gera þetta því að það er auðvitað eðli málsins samkvæmt. Því köllum við þessa ráðherra ráðherra, af því að við ætlumst til þess að þeir séu ráðherrar í landinu.