04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 357 í B-deild Alþingistíðinda. (226)

290. mál, virkjunarrannsóknir á Fljótsdalsheiði

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. iðnrh. fyrir það, að ég tel að hann hafi gefið hér yfirlýsingu um að hann muni taka ákvörðun um þessa virkjun þegar rannsóknir hafa farið fram og þegar úrvinnslu úr gögnum er lokið. Ég gerði ekki kröfu eða setti ekki fram ósk um meira en fá slíkt loforð og fékk það og ég þakka sem sagt fyrir.

En hitt þykir mér afar einkennilegt, þegar forstöðumaður þeirra rannsókna, sem unnar eru í þessum efnum fyrir austan, upplýsir okkur þm. um að öllum rannsóknum verði lokið og málið tilbúið til ákvörðunartöku, því að það voru einmitt hans orð, tilbúið til ákvörðunartöku í sept., þá skuli maður heyra það nú að rannsóknunum sé ekki enn lokið og þar af leiðandi auðvitað ekki úrvinnslunni og málið alls ekki tilbúið til ákvörðunartöku. Síðan er talað um að e. t. v. geti þetta allt dregist og hugsanlegt sé að meira að segja Alþ. vilji fá meiri upplýsingar. Ég veit ekki hver ósköpin eru hugsanleg í þessum efnum. Þetta er ekkert huggulegt eftir allan þann drátt sem hefur orðið varðandi þessi mál.

En svo vildi ég aðeins segja nokkur orð í tilefni af því sem hæstv, ráðh. sagði, það er afskaplega algengt að ráðh. nú til dags hlaupi í það að segja þegar þeir eru að komast í mát: Voruð þið ekki í ríkisstj.? Leystuð þið ekki allt? — Þetta kveður alltaf við. Þessi hæstv. ráðh. er nú nýkominn frá því að vígja á Austurlandi stórvirkjun í Lagarfossi sem unnið var að í stjórnartíð minni og staði þá fyrir algerlega. Það var varla von að við færum fram á aðra virkjun rétt á meðan verið var að vinna að þessari. Það gerðist býsna mikið í okkar orkumálum þarna þó að okkur væri ljóst að það þyrfti að gera miklu meira. Og við vitum að það tekur talsverðan tíma að koma upp nýju orkuveri.