24.03.1976
Efri deild: 80. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2728 í B-deild Alþingistíðinda. (2265)
209. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Halldór Ásgrímsson:
Herra forseti. Ég hafði ekki gert mér grein fyrir því fyrr en nú í dag að þetta frv. hafði verið lagt fram og vissi ekki um að það stæði til, þannig að ég hef ekki fengið tækifæri til að athuga þetta mál náið. Við erum að sjálfsögðu eins og oft áður í stöðugum vandræðum með að fá nægilegt fjármagn til húsnæðismálanna, eins og margra annarra þátta í þjóðfélaginu. Hér er gert ráð fyrir því að húsnæðismálastjórn fái meira frjálsræði til að ákveða heildarfjárhæð sem heimilt er að veita á ári hverju til að lána út á eldra húsnæði. Þetta er sjálfsagt góðra gjalda vert og nauðsynlegt að um þetta ríki ekki mjög þröng ákvæði sem tefji starfsemi stofnunarinnar og eðlilega fyrirgreiðslu í þessum þætti. En hér er vissulega um það að ræða að það er eilíft vandamál, þegar fjármagn er af skornum skammti, hvað skal ganga fyrir, og það er nú svo að við höfum staðið í því nú á undanförnum árum að byggja eða hefja byggingu 1000 leiguíbúða. Það átti að gerast á ákveðnum árafjölda. Ekki hefur tekist að standa við þau áform og þessar framkvæmdir hafa dregist verulega aftur úr. Þær hafa ekki notið forgangs hjá húsnæðismálastjórn á svipaðan hátt og framkvæmdirnar í Breiðholti gerðu á sínum tíma. Það stendur í lögunum að heimilt sé að veita lán til byggingar leiguíbúða og er í höndum húsnæðismálastjórnar að úrskurða um hversu miklu fjármagni skuli varið til þessa þáttar. Ég á erfitt með að sætta mig við að það verði aukið fjármagn til einhverra ákveðinna þátta í íbúðalánakerfinu á kostnað þessa þáttar. Ég er þeirrar skoðunar að þetta eigi og verði að vera forgangsframkvæmdir. Húsnæðismálin hafa vissulega staðið mjög í vegi fyrir því að fólk setjist að víða úti á landi. Við sjáum mjög mörg dæmi þess að ef hægt er að útvega húsnæði fyrir fólk á hinum ýmsu stöðum, þá stendur ekki á því að fólk sest þar að, bæði heimamenn og aðrir. Ég vil því koma því á framfæri, að ég vil ekki að breyting verði á þessum lögum nema sé um leið tryggt að reynt verði að standa við þau fyrirheit sem hafa verið gefin um byggingu leiguíbúða, og koma því á framfæri, að ég tel að þetta verkefni eigi að vera forgangsverkefni þrátt fyrir að hinir þættirnir séu mjög nauðsynlegir. Ég hefði talið að það kæmi til greina, að þessu orðalagi: „Heimilt er að veita lán til byggingar leiguíbúða“ væri að einhverju leyti breytt, þannig að Alþ. gæfi þar með í skyn að þetta skyldi vera forgangsverkefni sem ætti að standa við.
Varðandi breytingu þá, sem verður á 2. gr., þá er mér kunnugt um að sveitarstjórnir almennt hafa óskað eftir þessari breytingu. Ég tel hana eðlilega þótt í upphafi hafi verið hugmyndin að þetta leiguhúsnæði væri húsnæði sem fólk kæmi í og færi jafnvel úr eftir ákveðinn árafjölda, væri þar meðan það væri að koma sér fyrir í öðru húsnæði. En það verður erfitt að ráða við það. Ef viðkomandi fólk á að leigja þetta húsnæði, þá er ljóst að húsaleiga verður mjög há. Og það er einn þáttur, sem alls ekki hefur verið hugsað um þegar þessi lög voru sett á sínum tíma, að þetta fólk nýtur ekki skattívilnana vegna þessara greiðslna. Hins vegar ef fólkið greiðir vexti í stað leigu, þá fær það verulegar skattívilnanir. Þetta er mjög mikilvægt atriði sem ekki hefur verið hugsað út í, og ég er sannfærður um að það mun reynast mörgum mjög erfitt að standa skil á þessari leigu, vegna þess að það er á engan hátt tekið tillit til hennar þegar tekjuskattur er greiddur. En hins vegar ef þetta sama fólk greiðir vexti og annan kostnað þess eðlis til ríkisins eða húsnæðismálastjórnar, þá lækkar það skatta þessa fólks verulega, þannig að nettógreiðslan verður mun lægri en ef um beina leigu væri að ræða sem ætti að standa undir heildarkostnaði við viðkomandi byggingar.