04.11.1975
Sameinað þing: 11. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 358 í B-deild Alþingistíðinda. (227)

290. mál, virkjunarrannsóknir á Fljótsdalsheiði

Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Hvort telja skal Lagarfossvirkjun til stórvirkjunar eða ekki skal ég ósagt láta. En hins er að geta, að sú virkjun var ákveðin áður en vinstri stjórnin komst til valda, Jónas Pétursson, þáv. alþm., hafði barist fyrir henni árum saman og var ákvarðað á árinu 1970 að í hana skyldi ráðist og framkvæmdir hafnar. Hitt er annað mál og það vil ég viðurkenna hv. þm. Lúðvík Jósepssyni til lofs, að hann gerði ekkert til að stöðva eða tefja framkvæmdirnar.