24.03.1976
Efri deild: 80. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2735 í B-deild Alþingistíðinda. (2273)

212. mál, upptaka ólöglegs sjávarafla

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Eins og hæstv. ráðh. hefur gert grein fyrir, þá þykir tímabært að setja um það reglur hvernig með skuli fara þegar upplýst er um að afli er tekinn umfram sett veiðimagn eða með öðrum hætti sem brýtur í bága við veitt leyfi eða settar reglur. Þetta út af fyrir sig er rétt, svo langt sem það nær. En ég stend hér upp til að vekja athygli á því, að það er mín skoðun og ég held margra fleiri að miklu vænlegra og skemmtilegra hefði verið að sjá þetta ákvæði í heildarlöggjöf um hagnýtingu fiskveiðilögsögunnar allrar.

Það er kunnara en frá þurfi að segja að hæstv. ráðh. skipaði n. manna fyrir rúmlega ári til að athuga þetta mál, og það voru fulltrúar ákveðinna samtaka fyrst og fremst sem unnu undirbúningsvinnu í því efni. Síðan tilnefndu þingflokkarnir menn í nefnd í sept. s.l. til að vinna með þessari fyrstu n. í málinu, og þessi stærri n. skilaði síðan uppkasti að frv. í hendur ráðh. fyrir rúmlega mánuði.

Einmitt það ákvæði, sem þetta frv. fjallar um, var rækilega rætt í þessari n. ásamt mörgu, mörgu fleiru. Í 1. gr. þessa frv., lið 1, segir: „Ólöglegur sjávarafli er sá afli eða hluti afla sem ekki nær lágmarksstærð þeirri sem ákveðin er í lögum, reglugerðum eða sérstökum veiðileyfum.“ Það má ekki koma með hann að landi. En númer eitt er að drepa hann aldrei, koma í veg fyrir það, og til þess þurfum við löggjöf. Það er forsendan að það má ekki drepa þennan smáa fisk.

Ég ætla ekki að fara að tíunda þau átök, sem rn. hefur átt við að stríða varðandi smáfiskadrápið á vissum svæðum nú undanfarið, og svo yfirlýsingar skipstjórnarmanna, sem ganga fram af mér, og þau siðferðisvottorð, sem þeir gefa sjálfum sér. Þegar það er vitað mál að verulegt smáfiskadráp á sér stað, þá er auðvitað höfuðsök að standa að slíku og ætti að vera sektarhæft.

Það kom fram í n., sem ég ræddi um áðan, og ég er viss um að ég segi þar satt frá, að margir — ég vil ekki fullyrða allir, en margir þessara nm. töldu rétt skref til að veita aðhald að fyrirskipa að allur afli, sem kæmi í fiskiskip, skyldi settur á land, en þá getum við líka haft þau ákvæði sem í þessu frv. eru, að aflinn, sem ólöglega er tekinn, skuli vera upptökuhæfur sé hann undir ákveðinni stærð. En spurningin er hvernig eigi að sekta menn. Á verðmæti aflans að fara í ríkissjóð, ef það verður eitthvað, eða renna t.d. til landhelgisgæslunnar? Ég segi: ef það verðmæti er eitthvað. Nú eru auðvitað verðmæti í fiski sem er 40 cm. Það er búið að drepa fiskinn og það jafnvel í hundruðum tonna, en honum er hent fyrir borð. Því miður eru fiskiskip okkar ekki svo hlaðin afla í dag að ástæða sé til að óttast að þau hafi ekki rými fyrir þann fisk sem þau fá með eðlilegu móti þó að þeim verði gert að hirða kannske 2% af afla eða 10% af smáfiski eftir atvikum. En mjög mikilvægt ákvæði er að þau hafi engan hag af því með nokkru móti að vera í smáfiski. Og það er viðleitni hæstv. ráðh. og hefur margsinnis komið fram að hann ætlar allra manna síst að stuðla að slíku, og það er ég honum þakklátur fyrir.

Síðan er hitt vandamálið sem hæstv. ráðh. drap réttilega á og hlýtur að verða tekið hörðum höndum, að menn geti ekki hagnast á því að brjóta lög og reglugerðir. Þess vegna á þetta frv. í sjálfu sér rétt á sér. En ég vil fyrst og fremst vekja athygli á því, að miklu geðþekkara hefði verið og ég reikna með að það hefði verið það frá hendi hæstv. ráðh. ef þetta hefði getað birst allt samtímis og við sæjum heildarmyndina í einu. En því miður hefur það ekki tekist, en ég vil mega undirstrika að það verði sem allra fyrst að heildarfrv. um hagnýtingu fiskveiðilögsögunnar sjái hér dagsins ljós. Ég skil ekki þann drátt sem hefur orðið á því máli öllu saman. Ég skil hann ekki. Að mínu mati var hægt að leggja það frv. fram fyrir mörgum vikum, jafnvel mánuðum. En um það eru harðar deilur og fer mjög eftir aðstæðum manna hringinn í kringum allt landið. Það er þess vegna viðkvæmt mál og kannske vænlegast að ná sem mest sættum áður en það kemur inn í þingið og það sé vel kynnt í þingflokkum. Það hefur nú þegar komist að hluta á það stig. En ég held að okkur sé einungis sómi í því að sýna málið í einni heild og að undirstrika það að löggjöfin verður að vera með þeim hætti að smáfiskadráp sé refsivert að öllu leyti og enginn ávinningur geti komið út úr slíku — ekki með nokkru móti.

Að öðru leyti tel ég efni þessa frv. eiga rétt á sér og lýsi samstöðu minni um það efnislega, en ég vildi aðeins vekja athygli á því, að ég tel að þetta hefði átt að vera einn þáttur í heildarlöggjöf um hagnýtingu og meðferð á afla okkar íslendinga eftir að við höfum fært út í 200 mílur, og við lítum svo á, held ég, að við höfum umráð yfir því svæði öllu innan skamms.