24.03.1976
Efri deild: 80. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2740 í B-deild Alþingistíðinda. (2279)

217. mál, gleraugnafræðingar og sjónfræðingar

Sjútvrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Það frv., sem hér er nú lagt fram, hefur verið alllengi í smiðum Engin löggjöf hefur verið hér á landi um það efni sem frv. fjallar um, og þótti því tímabært að setja lög um réttindi og skyldur þeirra, sem framleiða og selja sjónhjálpartæki, og reyna með því móti að stuðla að því að þeir, sem slíkra tækja þurfa með, fái hverju sinni sem besta þjónustu.

Við gerð þessa frv. hefur verið annars vegar haft til hliðsjónar það sem tíðkast á Norðurlöndum, hins vegar hefur verið tekið tillit til þeirra ábendinga sem komið hafa frá þeim aðilum sem málið hefur verið sent til umsagnar, en það eru m.a. Félag gleraugnaverslana á Íslandi, Optikerafélag Íslands og ráðunautar þess, Páll S. Pálsson hrl., Ólafur Ólafsson landlæknir og Guðmundur Björnsson yfirlæknir augndeildar Landakotspítala. Yfirleitt hafa umsagnir þessara aðila verið á þann veg að rétt væri og nauðsynlegt að setja lög um þessi efni, en að sjálfsögðu hefur menn nokkuð greint á um hvernig slík lög ættu að vera.

Hingað til hefur ekkert í íslenskri löggjöf hindrað það að gleraugnafræðingar gætu afgreitt gleraugu eftir eigin mælingu. Hins vegar hefur yfirleitt sú hefð skapast að þeir gerðu það ekki og afgreiddu gleraugu eftir mælingu læknis. Í álitsgerð sinni bendir Guðmundur Björnsson augnlæknir á kosti þess, að læknar einir geri sjónmælingu og gefi út ávísun á gleraugu, og mælir á móti því að frá þessari hefð verði vikið. Í frv. er hins vegar valin sú leið að gera greinarmun á gleraugnafræðingum og sjónfræðingum og gefa sjónfræðingum heimild til að framleiða og selja sjónhjálpartæki eftir eigin sjónmælingu á sjúklingi með ákveðnum takmörkunum sem raktar eru í 5. gr. frv. Vafalaust er að þessi ákvæði frv. eru líklegust til að valda deilum, og vænti ég þess að þau verði rædd ítarlega þegar frv. verður tekið til athugunar í nefnd.

Um einstakar gr. þessa frv. er annars það að segja, að í 1. gr. er gert ráð fyrir því að til þess að mega kalla sig gleraugnafræðing eða sjónfræðing og starfa sem slíkur þurfi leyfi heilbrrh. Hér eru tekin upp orðin gleraugnafræðingur fyrir orðið optiker og sjónfræðingur fyrir orðið optometrist.

Í 2. gr. er gert ráð fyrir því að þeim einum megi veita leyfi sem lokið hefur prófi frá skóla sem er viðurkenndur af íslenskum yfirvöldum og gegnir þar sama máli um gleraugnafræðinga og sjónfræðinga.

Í 3. gr. er gert ráð fyrir því, eins og venja er þegar lög eru sett um ákveðnar starfsstéttir, að tekið sé sérstakt tillit til starfsreynslu þeirra sem að þessu starfa þegar lög eru sett. Er hér gert ráð fyrir því að heimilt sé að veita manni, sem hefur a.m.k. 5 ára starfsreynslu að baki sem gleraugnafræðingur, gengur undir hæfnispróf og fær meðmæli landlæknis, heimild til þess að kalla sig gleraugnafræðing og starfa sem slíkur. Hins vegar er ekki slík heimild fyrir hendi í sambandi við sjónfræðinga.

Í 4. gr. eru ákvæði um það að framleiðsla og sala sjónhjálpartækja, og er þar bæði átt við gleraugu og snertilinsur, sé óheimil öðrum en þeim, sem hafa starfsréttindi samkv. þessum lögum, eða þeim sem hafa í þjónustu sinni gleraugnafræðing eða sjónfræðing með full réttindi. Þetta ákvæði er sjálfsagt til þess að fyrirbyggja að sala og meðferð gleraugna og snertilinsna sé í höndum annarra en þeirra sem fulla menntun hafa til að framleiða þau.

Í 5. gr eru ákvæði þess efnis að framleiðsla og sala sjónhjálpartækja sé einungis heimil gleraugnafræðingum eftir fyrirsögn augnlækna, en hins vegar megi sjónfræðingar, auk þess sem þeir geti framleitt og selt sjónhjálpartæki eftir fyrirsögn augnlæknis, selja slík tæki eftir eigin sjónmælingu með takmörkunum sem taldar eru upp í átta liðum í þessari grein. Þessar takmarkanir ætla ég ekki að ræða nánar, en hér hefur verið reynt að fylgja þeim reglum sem gilda á Norðurlöndum í dag.

Um lokagrein frv. get ég verið fáorður. Gert er ráð fyrir því að eftir því sem við getur átt gildi ákvæði læknalaga um þessa starfsemi heilbrigðisþjónustunnar eins og aðra og sömu viðurlög gildi um brot í starfi.

Eins og ég sagði í upphafi máls míns, er hér um nýmæli að ræða í lagasmið. Hins vegar er hér um að ræða málefni sem tímabært er orðið að setja löggjöf um. Ég vænti því þess að þetta frv. fái góðar undirtektir og skjóta afgreiðslu á Alþ., og legg til að því verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. heilbr.- og trn.