24.03.1976
Efri deild: 80. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2744 í B-deild Alþingistíðinda. (2285)
180. mál, meðferð opinberra mála
Frsm. (Ingi Tryggvason):
Herra forseti. Allshn. hefur á fundi sínum athugað frv. það sem hér um ræðir, sem er um hækkun á sektarheimild lögreglumanna. N. varð sammála um að mæla með samþykkt frv., en fjarverandi afgreiðslu málsins voru Jón G. Sólnes, Eggert G. Þorsteinsson og Geir Gunnarsson.