24.03.1976
Neðri deild: 84. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2745 í B-deild Alþingistíðinda. (2299)

219. mál, Háskóli Íslands

Menntmrh. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um breyt. á lögum um Háskóla Íslands. Allnokkur aðdragandi er að gerð þessa frv., en efni þess er komið frá háskólaráði. Breytingar þær, sem frv. inniheldur, varða eftirtalin atriði: Í fyrsta lagi kjör rektors og stjórn deilda, í öðru lagi stofnun nýrrar deildar, félagsvísindadeildar, og í þriðja lagi fyrirkomulag prófa, einkum varðandi prófdómara.

Þetta frv. og þskj. í heild er nokkuð fyrirferðarmikið, en ég held samt sem áður og kannske m.a. vegna þess geti ég látið tiltölulega fá orð nægja, en skal þó víkja að hverjum þessara þriggja þátta.

Aðild stúdenta og starfsmanna Háskólans, annarra en prófessora, að rektorskjöri og stjórn deilda hefur mjög verið til umræðu í háskólaráði undanfarin tvö ár. Hefur orðið full samstaða í háskólaráði um þá tilhögun sem greinir í 1.–5. gr. frv. og svo í 7.–9. gr. Kveðið er á um atkvæðisrétt allra sem fastráðnir eru eða settir til fulls starfs við Háskólann og stofnanir hans og hafa háskólapróf. Þá eru ákvæði um breytta aðild stúdenta að rektorskjöri. Samkv. ákvæðum frv. fá þeir þriðjungsaðild og hafa allir stúdentar atkvæðisrétt í stað þess að nú eiga atkvæðisrétt fulltrúar stúdenta í háskólaráði og tveir fulltrúar stúdenta í háskóladeildum. Ekki er hér gengið lengra með aukna aðild stúdenta í stjórnun Háskólans heldur en titt er í nálægum löndum, nema síður sé. En eins og ég sagði áðan, þá er fullt samkomulag í háskólaráði um þessar till. allar.

Þá er lagt til að hin nýja deild, félagsvísindadeild, verði til með þeim hætti að sálarfræði, uppeldisfræði og bókasafnsfræði, sem nú er skipað í heimspekideild, flytjist þaðan í hina nýju deild, þar sem einnig verða greinar þær sem nú falla undir námsbraut í almennum þjóðfélagsfræðum. Þá er einnig gert ráð fyrir því að kennsla í félagsráðgjöf fari fram í deildinni þegar sú kennsla er komin á laggirnar. Það er álit háskólamanna að hér sé um beina hagræðingu að ræða, en þessi till. um stofnun félagsvísindadeildar er reist á álitsgerð n. sem háskólarektor skipaði 6. jan. 1975 til þess að kanna hvort stofna skuli nýja deild við Háskólann er nái yfir áðurnefnd fræði. Álitsgerð þessarar n. er allítarleg og eru þar færð fram rök fyrir því að hagkvæmt sé að stofna til þessarar nýju deildar. Og ég vil taka það fram sérstaklega að það er ekki gert ráð fyrir því að af þessari breytingu hljótist aukinn kostnaður, nema síður væri.

Um undirbúning að breyttu prófdómarafyrirkomulagi er það að segja, að menntmrh. skipaði í nóv. 1975 að frumkvæði háskólaráðsins nefnd til þess að kanna möguleika á lækkun prófkostnaðar við Háskóla Íslands. N. skilaði áliti litlu síðar og það fylgir með frv. sem fylgiskjal. Gert er ráð fyrir gerbreytingu prófdómarafyrirkomulagsins, þannig að prófdómarar eru felldir niður við skrifleg próf, en hins vegar er haldið fyrri hætti að því er snertir munnlegu prófin.

Þar sem frv. þessu fylgja ítarlegar athugasemdir og svo álit nefndar prentuð sem fylgiskjöl, þá held ég að ég sleppi því að fjölyrða frekar um málið hér við 1. umr. Ég vil þó að lokum leggja áherslu á tvennt: Í fyrsta lagi er þetta sparnaðarfrv. Breytingin á stjórn Háskólans hefur engin útgjöld í för með sér og stofnun hinnar nýju deildar ekki heldur að dómi háskólamanna, nema síður sé, og breytingin á prófafyrirkomulaginu er talin spara á ári hverju 7–8 millj. kr. eða sem svarar til launa 6–8 lektora í fullu starfi, eins og segir í athugasemdum. Fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur fjallað um þessa hlið frv. og segir svo í bréfi þeirrar stofnunar, sem dags. er 16. þ.m., með leyfi hæstv. forseta:

„Þetta rn. gerir engar athugasemdir við þær breytingar, sem frv. gerir ráð fyrir, en lýsir sig mjög fylgjandi fyrirhuguðum breyt. á prófdómarafyrirkomulaginu og telur að stefna beri að því að fella niður prófdómara á öllum skólastigum.“

Þetta eru þeirra orð og ég veit ekki hvort allir eru sammála um það. En sem sagt, hagsýslan staðfestir það, sem ég hef áður sagt hér, að þær breyt. varðandi útgjöldin, sem frv. felur í sér, ganga í sparnaðarátt.

Í annan stað vil ég svo ítreka það, sem þegar hefur komið fram í mínu máli, að innan háskólans er alveg fullt samkomulag um efni þessa frv. í einu og öllu og rektor hefur tjáð mér að þar ríkir mikill áhugi á framgangi málsins.

Herra forseti. Ég legg svo til að frv. verði að 1. umr. lokinni vísað til menntmn.