14.10.1975
Neðri deild: 3. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 14 í B-deild Alþingistíðinda. (23)

4. mál, veiðar með botnvörpu, flotvörpu og dragnót í fiskveiðilandhelginni

Karvel Pálmason:

Virðulegi forseti. Eins og fram kom í ræðu hæstv. sjútvrh., þá sneri hann sér til stjórnarandstöðuflokkanna í sambandi við meðferð þessa máls sem hér er nú til umr., hvorn háttinn þeir teldu eðlilegra að hafa á um meðferð málsins. Af okkar hálfu töldum við sjálfsagt að hafa þann hátt á sem hér hefur verið valinn og teljum sjálfsagt að þetta mál fái skjóta afgreiðslu í þinginu. Hér er um formsatriði að ræða sem þarf að fullnægja fyrir miðnætti í kvöld, og við munum því að sjálfsögðu ekki gera neitt það sem kemur til með að tefja fyrir málinu og teljum sjálfsagt að það geti farið með fullum hraða gegnum þingið.