25.03.1976
Sameinað þing: 70. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2782 í B-deild Alþingistíðinda. (2315)

206. mál, ráðstafanir til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og búseturöskun í Norður-Þingeyjarsýslu

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Hv. síðasti ræðumaður, 5. þm. Norðurl. e., hóf mál sitt með því að fagna því, að hv. þm. Kristján Ármannsson talaði það tungumál sem frumherjar samvinnuhreyfingarinnar töluðu, og bætti því við, þegar þeir nenntu einhverju. (StJ: Nei, það sagði ég ekki, ég sagði: meintu eitthvað.) Nú, meintu, þá leiðrétti ég það, þegar þeir meintu eitthvað. Ég skal ekki gera orð hv. 5. þm. Norðurl. e. að umræðuefni. Ég hafði ekki ætlað mér að koma hér upp í ræðustól og taka þátt í umr. um þetta mál. En úr því að ég er hingað kominn, þá vil ég lýsa að mörgu leyti ánægju minni með ræðu hv. þm. Kristjáns Ármannssonar og lýsa því yfir jafnframt að ég er samþykkur þessari þáltill. sem hann flytur á þskj. 435, ég held ég megi segja í öllum atriðum.

Þá er ég kominn að því sem dró mig hingað upp í þennan virðulega ræðustól. Hann kallaði sig ungan mann, þá á ég við hv. þm. Kristján Ármannsson, en ekki hv. þm. Stefán Jónsson, og ég ætla ekki að rengja það að hann sé ungur að ári. En ég vil lýsa furðu minni á því, þegar ungur maður kemur hingað inn sem varamaður á hv. Alþ., að hann skuli leyfa sér að enda sína ágætu ræðu og sinn góða málflutning, sem sannfærði mig, með því að kalla þessa virðulegustu stofnun íslensku þjóðarinnar virðulegasta leikhús þjóðarinnar. Það hefur áður verið gert hér, ég las um það í blöðum áður en ég kom á Alþ. sem þm., og það fór illa í mig. Mér fannst stofnunin vera dregin niður og neðar en hún á skilið í tali hér í sölum hv. Alþingis. Ég verð að segja það, ég harma þetta, og ég get ekki setið undir því að fulltrúar þjóðarinnar komi upp í þennan hv. ræðustól og geri minna úr Alþingi en efni standa til. Alþingi er virðulegasta stofnun þjóðarinnar og á að njóta þeirrar sanngirni að þm. eða starfsmenn beri virðingu fyrir henni sem slíkri. Og ef þessu heldur áfram, þá verð ég að segja að ég sakna þess þm., sem hann er varamaður fyrir, ef hann kemur inn í þessa æðstu og virðulegustu stofnun þjóðarinnar með þessu hugarfari.