29.03.1976
Efri deild: 82. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2798 í B-deild Alþingistíðinda. (2326)
195. mál, skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég lýsi yfir stuðningi mínum við þetta frv. og hefði samt ekki komið hingað í ræðustól til þess eins, heldur látíð atkv. mitt nægja, ef ekki hefðu verið orð sem hv. síðasti ræðumaður, Jón G. Sólnes, lét falla varðandi listamenn þá sem hér er nú ætlað að fá undanþágu frá skatti varðandi verðlaunin sem nýlega voru veitt. Ég er alveg viss um það að hvorki hv. síðasti ræðumaður, Jón G. Sólnes, né nokkur annar hv. þm. hefur heyrt Ólaf Jóhann Sigurðsson eða Atla Heimi Sveinsson kalla sig menningarvíta. Ég er alveg viss um það að enginn hv. þm. hefur heyrt nokkurn mann velviljaðan þessum tveimur listamönnum, sem hér um ræðir, kalla þá menningarvita. Þetta orð er notað í hæðnis- og illgirnistón um suma listamenn okkar.
Nú er ég næstum því alveg viss um það að hv. síðasti ræðumaður vildi ekki víkja illu að þessum mönnum þótt hann notaði þetta háðungarheiti yfir þá. Hann vildi það ekki. Það var annað sem vakti fyrir honum. Ég get fyllilega tekið undir þau ummæli hans að veita beri viðurkenningu fyrir fleiri hugverk en þau sem lúta að gerð góðrar skáldsögu eða góðs tónverks. Ég lít svo á að afrek í þágu íslenskrar verkmenningar séu ekki síður verðlaunaverð, launaverð. Ég er honum innilega sammála um það. En rithöfundar okkar á borð við Ólaf Jóhann Sigurðsson og tónskáld á borð við Atla Heimi Sveinsson, sem leggja þrátt fyrir allt af mörkum til þessa samfélags okkar verðmæti sem ekki eru til þess fallin að bera þeim arð: vel skrifaða, vel sagða sögu, sem gleður þúsundir manna á þessu landi án þess að þeir inni af höndum beina greiðslu til þeirra aðila sem lögðu vinnu í það og hugkvæmni og kannske þegar best lætur hluta af sálu sinni að setja þessa sögu saman fyrir þá sem ekki inna af höndum greiðslu fyrir þessi verðmæti beinlínis til þeirra, — nú, fallegt, dýrðlegt tónverk eða stef sem ómar í eyrum og jafnvel í huga þúsundanna hér á landi, þúsunda manna sem ekki inna af höndum prívat og persónulega fyrir sig greiðslu fyrir þá gleði, — staða þessara manna er þess háttar, er bara beinlínis þess háttar að þeir fá ekki í greiðslu umbun verka sinna. En þeir, sem koma fram, margir hverjir, með nýjung eða framlag í þágu verkmenningarinnar, fá greiðslu fyrir framlag sitt. Ég er alveg viss um að hv. þm. Jón G. Sólnes mun með glöðu geði viðurkenna mismuninn á stöðu þessara aðila, á sama hátt og ég viðurkenni með glöðu geði að okkur beri að verðlauna, fyllilega til jafns við — við skulum segja: þessi kúltúrverk, þau verk sem unnin eru til þess að fremja eða ýta undir framgang íslenskrar verkmenningar á ýmsan hátt.
Mér er eins og hv. síðasta ræðumanni kunnugt um hugverk sem unnin hafa verið hér á landi í sambandi við íslenska verkmenningu sem ollu gjörbreytingu í ákveðnum atvinnugreinum án þess að fyrir kæmi nokkur greiðsla, — gjörbreytingu, jafnvel ekki aðeins hér á Íslandi, heldur á allri norðurslóð. Ég man eftir lagningarkarlinum, línurennunni, sem Kristinn í Leirhöfn fann upp á sínum tíma og fimmtánfaldaði, að því er talið er, afköst við línuveiðar hér á landi og er auk þess fallegur gripur þegar hún er sæmilega smíðuð og nú er í notkun á öllu norðurhveli þar sem veitt er með línu. Fyrir þetta hygg ég, að Kristinn í Leirhöfn hafi ekki fengið grænan eyri. Það var slæmt og fór illa að hann skyldi ekki fá viðurkenningu fyrir þessa snjöllu uppfinningu.
Dæmin um þetta eru mörg, en aðeins í lokin aftur: Ég andmæli því enn að nokkur velviljaður maður íslenskum rithöfundum og þá fyrst og fremst Ólafi Jóhanni Sigurðssyni og Atla Heimi Sveinssyni tónskáldi kalli þá menningarvita. Ég mótmæli því að slík heiti séu höfð um þessa ágætu listamenn hér á Alþ. í háðungarskyni. E.t.v. mun hv. þm. Jón G. Sólnes koma hér upp á eftir og segja að hann hafi ekki viðhaft þetta heiti um þá í háðungarskyni, heldur í hinu gagnstæða skyni, þeim til hróss. Þá erum við bara rétt einu sinni komnir að mismunandi skilningi á hugtökum.