29.03.1976
Efri deild: 82. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2799 í B-deild Alþingistíðinda. (2327)

195. mál, skattfrelsi bókmennta- og tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Jón G. Sólnes:

Herra forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. mun vera með einhverjum allra orðhögustu og orðfærustu mönnum sem á þingi sitja, ég held að það efi enginn. En hann mun líka geta átt það til að vera einhver allra mesti snillingur í því að snúa út úr og rangtúlka það sem aðrir segja í ræðu ef honum gefst tækifæri til. og það hefur þessi hv. þm. einmitt gert prýðilega vel nú í þessari síðustu ræðu sinni.

Í þeim fáu orðum, sem ég sagði í sambandi við þetta frv. í máli mínu hér á undan, þá einmitt hóf ég mál mitt á því að það gleddi okkur alla sem íslendinga þegar einhver af okkar þjóð yrði slíkrar viðurkenningar aðnjótandi eins og þessir heiðursmenn hefðu fengið og ég beinlínis fagnaði því. Að ég hafi í ræðu minni eitthvað verið að tala um menningarvita í óhróðursskyni við þessa mætu menn er hinn mesti misskilningur og hreinn útúrsnúningur hjá hv. þm. Ég nefndi þetta orð, sem honum virðist vera svo óskaplega illa við menningarviti, í sambandi við þá stefnumörkun, sem ég frá mínum bæjardyrum var að lýsa að ætti svo miklu fylgi að fagna og hefði átt á undanförnum árum hjá hinu háa Alþ., að meta meira hugverk manna í sambandi við ritað mál en annað. Það var þar sem orðið menningarviti kom inn í mál mitt og ég ætla ekkert að snúa til baka með það. Hvort sem hv. þm. telur orðið menningarviti vera eitthvert háðsyrði eða annað, þá er það a.m.k. frá mínum bæjardyrum séð, að áhrifa þeirra hefur gætt of mikið hér í sölum Alþ. á undanförnum árum og sýnir sig í því t.a.m. að mínu mati hvað við ausum allt of miklum fjármunum til allt of margra aðila fyrir nauða-ómerkileg verk og erum að verðlauna og þeyta út í hinar og þessar áttir, — fyrir verk sem enginn maður nennir að lesa, enginn maður vill lesa og sem sagt liggja gleymd og grafin og eru engum að gagni. En það eru mörg dæmi þess að þarna eru aðilar sem eru styrktir og hafa fengið styrki og peninga af almannafé fyrir áhrif mannanna sem telja sig umfram alla aðra vera þess umkomna að segja hvað sé list og hvað sé menning. Þetta voru mennirnir sem ég var að lýsa og var að reyna að skýra að væru menningarvitar. Ég vísa því algjörlega heim til föðurhúsanna að í þeim orðum hafi falist minnsta óvirðing í garð þeirra mætu manna sem er verið að ræða um í þessu frv., því að ég endurtek að ég tel að þeir hafi fyllilega átt skilið þá viðurkenningu sem þeim hefur hlotnast. Og ég samfagna eins og aðrir góðir íslendingar að þessi viðurkenning hefur fallið í skaut þeirra, aukið þeirra vegsemd og virðingu þjóðarinnar í heild. En það dregur ekkert úr því áliti mínu að svokallaðir menningarvitar eru enn þá með þjóðinni og vinna henni að mínu mati vafasamt gagn.