29.03.1976
Efri deild: 82. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2803 í B-deild Alþingistíðinda. (2333)

28. mál, kafarastörf

Fram. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, var borið fram í Nd. og þar voru gerðar á því smávægilegar breytingar sem felast í því, að breytt var aldurstakmarki þeirra sem fá leyfi til kafarastarfa og Siglingamálastofnuninni var falið að meta hvort heilbrigðisvottorð væru fullnægjandi.

Allshn. Ed. hefur athugað frv. og leggur til að það verði samþ. óbreytt eins og það kemur frá Nd. Fjarverandi afgreiðslu málsins í n. voru Jón G. Sólnes, Eggert G. Þorsteinsson og Geir Gunnarsson.