29.03.1976
Neðri deild: 85. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2807 í B-deild Alþingistíðinda. (2341)

215. mál, vegalög

Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Það er í raun og veru ekki út af þessu frv. nema að takmörkuðu leyti, frv. á þskj. 447, sem ég hef beðið um orðið. Ástæðan til þess, að ég geri það er sú að á s.l. vori skipaði ég n. manna, einn úr hverjum stjórnmálaflokki, til þess að endurskoða vegalögin í heild, og ástæðan til þess, að ég hafði þann hátt að skipa einn mann úr hverjum stjórnmálaflokki auk þeirra vegamálastjóra og ráðuneytisstjórans í samgrn., byggðist á þeirri hugsun að reyna að ná samstöðu um þær breytingar sem ég taldi nauðsynlegt að gera á vegalögunum.

Það atriði, sem ég lagði þar fram, var flokkunin á vegunum, sem er m.a. fólgin í því að við höfum hraðbrautir, þjóðbrautir og landsbrautir, og það, sem hefur gert þetta erfitt í framkvæmd og erfiðara með hverju árinu sem líður, er að nokkur hluti af sama veginum verður hraðbraut, annar þjóðbraut og kannske þriðji landsbraut. Það, sem mér fannst að þyrfti að leggja höfuðáhersluna á, var að fá þó aðalveginn í kringum landið sem stofnveg og svo að meta hvað víðtækur hann ætti að vera og í öðru lagi hlíðarvegina út frá honum, hvernig með það mál skyldi fara.

Þetta mál hefur verið til meðferðar hjá þessari n. Hún hefur ekki skilað álíti, og ég er ekki heldur viss um hvort hún nær samstöðu um þetta, en ég mun þó reyna að freista þess að það verði gert.

Í öðru lagi var svo þáttur sá sem hv. 2. þm. Norðurl. v. ræddi hér um, afstaðan til sýsluveganna, sem ég taldi líka mikla nauðsyn bera til að taka til sérstakrar endurskoðunar. Ég er svipaðs sinnis og hv. 2. þm. Norðurl. v., að þær hafa valdið mér miklum áhyggjum þessar breytingar sem hafa orðið, kaupstaðafjölgunin í landinu, og það hefur komið fram í umr. að einmitt það að losna við þetta gjald til sýsluvegasjóðanna hafi verið einn þátturinn í því að kauptún hafa sótt á að fá kaupstaðarréttindi. Nú skal ég ekki að þessu sinni fara út í mitt mat á því og hvað þetta er í raun og veru fjarlægt minni hugsun. En mér er það fullkomlega ljóst, eins og hv. 2. þm. Norðurl. v., að hér verður úr að bæta og þessu verður að mæta með einhverjum ráðstöfunum, þannig að sýsluvegasjóðskerfið geti haldið sér. Ég er ekki fylgjandi þeirri leið að leggja það niður og held að það mundi vera spor aftur á bak, og ég er honum sammála um, að það verði lagðar ákveðnar línur um það og því tryggðar tekjur sem þarf. Eitt af þeim atriðum, sem ég hygg að sé samstaða um í n. þeirri sem ég vitnaði til, er einmitt þetta atriði.

Það, sem ég vil því segja í sambandi við þetta mál, er að ég hef kosið að reyna til fullnustu að fá n. þá, sem er að verki, til þess að skila áliti og freista þess að ná sem mestri samstöðu. Hugsun mín var sú um frv.

um breyt. á vegalögunum, sem eru að stofni til frá 1963 og þurfa þess vegna endurbóta við af eðlilegum ástæðum, að ég hefði viljað freista þess að ná samstöðu um að leggja frv. fram á þessu þingi, en afgreiðsla færi fram á næsta þingi. Þau atriði, sem um er deilt, verður að athuga hvort ekki er hægt að finna flöt á til að jafna, og ég hef lagt fyrir formanninn að gera tilraun til að reyna að vita hvort það væri ekki hægt að fá sæmilega samstöðu um veigamestu atriðin, þannig að það væri hægt að leggja frv. fram, þó að það væri með fyrirvara um endurskoðun á ýmsum atriðum. Ég segi þetta vegna þess að ég hefði kosið frekar að þetta frv. biði þess að sjá hvað úr þessu yrði. Ég hef skilning á því að nauðsyn ber til að koma til móts við sýsluvegasjóðina og setja skýr ákvæði um meðferð þessara mála, en hefði að sjálfsögðu kosið að hafa það í heildarlöggjöfinni. Ég tel líka að það beri brýna nauðsyn til að þetta atriði, að þéttbýlið leggi fram í sýsluvegasjóðina, verði ekki til þess að mynda kaupstaði, eins og ég tel að í sumum tilfellum hafi orðið. Það byggi ég m.a. á því, að ég tel að að sumu leyti sé þetta óheppilegt og samstarf þéttbýlisins og sveitanna í kringum þéttbýlið sé nauðsyn og þurfi að haldast áfram eins og verið hefur.

Þetta vildi ég segja við hv. flm. og þá n. sem fær málið til meðferðar, enda ætti að koma í ljós fyrr en seinna hvort von væri til að hægt væri að leggja þetta frv. fram á þessu þingi, þó að ég geri mér grein fyrir að það geti tekið breytingum frá því sem það kynni að verða við 1. umr.