30.03.1976
Sameinað þing: 71. fundur, 97. löggjafarþing.
Sjá dálk 2843 í B-deild Alþingistíðinda. (2360)

Umræður utan dagskrár

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Hér hafa nú farið fram alllangar umr. um þetta mál og að mínum dómi hafa þær verið æði-sérkennilegar að ýmsu leyti.

Hæstv. forsrh. sagði í rauninni í því, sem hann mælti hér, ekki margt nýtt. En þó var það nokkuð einkennandi hverju hann svaraði og hvernig hann svaraði því og hverju hann lét ósvarað af því sem beint var til hans. Raunverulega var það svo, að hæstv. forsrh. gat engar nýjar upplýsingar gefið um gagnráðstafanir af hálfu íslendinga í tilefni af því sem gerst hefur á fiskimiðum okkar nú að undanförnu. Þegar hann var spurður um það, hvort ekki kæmi til mála að taka báða þá togara, sem ríkisstj. hugsar að taka á leigu nú á næstunni, og setja þá í landhelgisgæsluna og efla hana þannig, þá svaraði hann því engu. Hann vék sér alveg undan að svara því hvort hann teldi tök á að gera þetta.

Hæstv. sjútvrh. svaraði þessu að vísu fyrir hann og sagði að hann væri algjörlega ósammála því að taka annað af þessum tveimur skipum og setja það í aukna landhelgisgæslu og taldi brýna þörf á því að skipinu yrði beint að fiskirannsóknum og sérstaklega að leit að nýjum karfamiðum.

Þetta sýnir að mínum dómi mjög vel hvernig hæstv. sjútvrh. metur þau vandamál sem við stöndum frammi fyrir í þessum efnum. Hann veit mætavel að hið almenna eftirlit á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar geta minni skip haft með höndum og hafa haft með höndum lengst af og geta í rauninni gert það fullt eins vel og miklu stærri og kostnaðarsamari skip.

Varðandi hitt atriðið, sem snýr að því að reyna að opna ný karfamið, finna ný karfamið, þá er auðvitað hægt að leysa það á miklu einfaldari hátt. Við höfum hér í rekstri allmarga togara sem leita einmitt eftir karfa og hafa stundað þá veiði mikið að undanförnu í langan tíma. Það væri tiltölulega mjög auðvelt mál að semja við eitthvert af þeim útgerðarfélögum, sem þau skip eiga, um að takast á hendur sérstaka leit í sambandi við þessar veiðar. Þetta hefur verið gert áður og þá með ágætum árangri og er vitanlega ekki nokkur minnsta ástæða til þess að taka skip, sem er vel lagað til þess að hafa í Landhelgisgæslunni, eins og þar standa mál nú, og binda það við þetta verkefni.

Önnur svör frá hæstv. forsrh. um það, hver yrðu viðbrögð ríkisstj., voru mjög á sömu lund. Ég gat ekki heyrt það frekar en hv. 5. þm. Norðurl. v. að hæstv. forsrh. minntist nokkurn skapaðan hlut á það að reynt yrði að útvega hraðskreitt skip til þess að leysa það verkefni sem rætt hefur verið um að það gæti innt af höndum. Frá hans hálfu hefur ekki komið neitt um það sem vakið hefur athygli, og það fór fram hjá mér eins og fleirum hér, hafi hæstv. forsrh. sagt um þetta mál nokkuð nýtt.

Það vita allir og einnig andstæðingar okkar í landhelgismálinu, að það hafa farið fram nokkrar athuganir á því að útvega skip af þessari tegund. Hæstv. dómsmrh. hefur beitt sér fyrir því og óskað eftir athugunum í þeim efnum. En ég hef ekki heyrt að hæstv. forsrh. legði neina sérstaka áherslu á að þetta yrði gert eða beitti áhrifum sínum sérstaklega til þess. En það hefði vitanlega verið mjög gagnlegt við þessar aðstæður nú að bretar og aðrir hefðu fengið að heyra það frá forsrh. Íslands við þessar aðstæður að skip af þessari tegund yrði útvegað, því að auðvitað leikur enginn vafi á því að við eins og allar aðrar þjóðir getum útvegað okkur svona skip. Það er ekkert annað en aumingjaskapur að geta ekki útvegað svona skip. Svona skip eru svo að segja til í hverju landi og ganga þar bæði kaupum og sölum og er einnig hægt að fá þau leigð. Það verða þá einhverjir aðrir að taka þetta verkefni að sér fyrir ríkisstj., að útvega svona skip, ef hún getur það ekki, því að ég trúi því ekki að það sé sleginn þannig hringur um okkur íslendinga að við séum settir hér á algeran bannlista, þannig að við getum ekki fengið skip sem eru jafnalgeng og þessi skip, ef gengið er rösklega eftir því.

Við höfum þegar rekið okkur á að það er óvilji hjá vissum þjóðum að aðstoða okkur nokkuð í þessum efnum. Þannig er þetta t.d. með Norðurlandaþjóðirnar. Þær vilja skjóta sér undan og vera ekkert í þessum efnum. Og það kann að vera að það fari svo að afstaða Bandaríkjanna sé eitthvað svipuð, þó að þau hafi ekki svarað enn. En það er hægt að leita til miklu fleiri aðila og útvega svona skip, og ég trúi því satt að segja ekki, að ef ríkisstj. segði að hún væri ákveðin í því að útvega svona skip og það skyldi gert, þá trúi ég því ekki að bandaríkjamenn létu lengi standa á sér, þá mundu þeir verða við beiðni dómsmrh. í þessum efnum. En á meðan þeir halda að það sé hægt að víkja okkur rólega til hliðar, því að áhuginn sé ekki mikill, beiðnin sé sett meira fram að formi til og kannske aðeins af hluta ríkisstj., en hinn hlutinn kæri sig síður en svo um þetta, því að það er tiltölulega auðvelt að lesa út úr ýmsu af því sem kemur fram af hálfu Sjálfstfl. um þessi mál að undanförnu, sérstaklega í Morgunblaðinu, að það virðist vera svo að sá flokkur hafi ekki mikinn hug á því að efla landhelgisgæsluna og veita frekara viðnám gegn yfirgangi breta en verið hefur.

Ég verð sem sagt að segja það, að mér fundust svör hæstv. forsrh. við því, sem um var spurt, vera ákaflega léttvæg. En það er ábyggilega mikill misskilningur af honum að halda að umr. eins og þær, sem hér hafa nú farið fram og stundum áður hér á Alþ. um landhelgisdeilu okkar við breta, þær umr. beri vott um að við séum að þreytast í málinu og bendi til þess að við gefumst upp, þegar verið er að ganga eftir því að við gerum enn meira en við höfum þegar gert til þess að veita viðnám. Það er rétt að andstæðingar okkar í þessu tilfelli, bretar, meta okkur í þessu máli eftir viðbrögðum okkar, ekki aðeins eftir orðum okkar hér á Alþ., heldur eftir viðbrögðum okkar, hvað íslenska ríkisstj. gerir. Ef hún hefði brugðist þannig við árás eins og þeirri, sem hér hefur verið rætt um, að hún hefði gert öllum ljóst að hún ætlaði að auka okkar varnarmátt, hún ætlaði að bæta við skipum og ekki aðeins einu skipi, heldur tveimur nú þegar, ef hún hefði lýst því yfir og einnig lýst því yfir að hún mundi útvega hraðskreitt skip, þá hefðu andstæðingar okkar veitt því athygli, að ég tali nú ekki um það ef ríkisstj. hefði fengist til þess að taka undir þá kröfu okkar alþb.manna að auka hinn pólitíska þrýsting.

Það vekur auðvitað athygli í þessu máli að hæstv. forsrh. vill ekkert tala um að við ættum að auka pólitískan þrýsting í deilunni. Þar leggur hann ekkert til annað en það, sem hann hefur gert áður, að við höfum þegar gert nóg og nú sé best að fara sér hægt og sjá hvernig Hafréttarráðstefnunni lykti. En hins vegar kemur fram hjá hæstv. dómsmrh. að hann tekur undir kröfur stjórnarandstöðunnar um að við eigum að auka hinn pólitíska þrýsting. Hann er á því að við eigum að auka hann, það sagði hann greinilega í sinni ræðu. Og það mátti mjög vel lesa á milli línanna í sambandi við það sem hann sagði, að hann var á þeirri skoðun að það færi ekki vel á því að fulltrúi Íslands hjá NATO sæti við hliðina á fulltrúa breta í því bandalagi við þessar aðstæður. Ég held að það hafi ekki farið neitt á milli mála að það var sú merking sem lá í því sem hæstv. dómsmrh. sagði um þetta atriði, að hann teldi ekki fara vel á því. Ég legg þá merkingu í orð hans, en hann hafi ekki talað skýrar í þessum efnum en hann gerði af tillitssemi við hæstv. forsrh. og samstarfsflokkinn sem hann veit að er á móti því að auka þennan pólitíska þrýsting, notfæra sér hann, t.d. með því að kalla sendiherrann heim.

Hæstv. forsrh. talaði um að við þyrftum nú að halda sambandinu áfram við NATO, m.a. til þess að geta flutt okkar mál þar áfram. En höfum við ekki verið að flytja okkar mál fyrir þessu ráði allan tíman með þeim árangri sem við stöndum frammí fyrir? Spurningin er auðvitað sú, hvernig menn líta á aðild okkar að NATO, hvernig menn líta á þann samning sem er grundvöllur þeirrar aðildar. Ég hef vitnað í það hér áður, að þar stendur skýrum orðum að árás á eitt af aðildarríkjunum teljist árás á þau öll og henni beri að svara á þann hátt að öll ríkin sameinist um að snúast gegn árásaraðilanum. Í Norður-Atlantshafssamningnum er ekki eitt einasta orð að finna um að sú árás, sem þarna er rætt um, þurfi að koma frá einhverju öðru landi en þeim sem eru aðilar að bandalaginu, — ekki eitt einasta atriði um það. Hér er aðeins rætt um árás, og hún hefur átt sér stað. Við höfum allir lýst því hér yfir að við höfum orðið fyrir árás af hálfu breta. Þeir reyna að brjóta niður okkar lög í okkar landi, og þeir, sem vilja líta þannig á það að þessi sáttmáli eigi að standa á meðan við erum aðilar að honum, það er vitanlega eðlilegt að þeir geri kröfu um að það sé farið eftir því sem segir í sáttmálanum. Hitt er allt of máttlaus og aumingjaleg skýring, að það eigi að lesa það út úr þessum sáttmála að hvert aðildarríki NATO sem er megi gera árás á t.d. Ísland og þá eigi bandalagið ekki að koma til á neinn hátt. Nei, hér er um það að ræða hvort við eigum að þola það án mótaðgerða að land, sem er aðili að Norður-Atlantshafsbandalaginu, þ.e.a.s. Bretland, ráðist á okkur á þann hátt sem það hefur gert án þess að við beitum mótaðgerðum. Og ef bandalagið verður ekki við kröfum okkar um að það beiti sínum ráðum til þess að stöðva árás breta, þá er vitanlega hið eina eðlilega það að við grípum til okkar ráða. Þá er eðlilegt að við segjum við þetta bandalag: Við munum ekki veita ykkur áfram þá aðstöðu sem þið hafið haft í okkar landi, við munum þá taka fyrir þá aðstöðu. Það þarf vitanlega engan árs uppsagnarfrest undir kringumstæðum eins og þessum til úrsagnar, eins og hæstv. forsrh. vildi vera láta. Hér er um brot á þessum sáttmála að ræða gagnvart okkur að okkar dómi, og það ber vitanlega að taka á þessu samkv. því.

Ég þarf í rauninni ekki að fara fleiri orðum hér um það sem fram kom hjá hæstv. forsrh. Hann fékkst ekki til þess að segja hér neitt það varðandi þessa atburði sem ég tel að hefði getað orðið okkur til stuðnings í átökunum við breta, sem hefði getað orðið til þess að vara þá við og stöðva aðgerðir þeirra. Hann gerði í rauninni ekki annað en malda þar heldur í móinn í sambandi við allar frekari aðgerðir.

Hæstv. sjútvrh. flutti svo býsna einkennilega ræðu auk þessa, sem ég hef þegar minnst á, þar sem hann treysti sér ekki að sjá af öðrum togara, sem nú á að taka á leigu, í gæsluna, vildi heldur senda hann í karfaleit eitthvað út í buskann. Hann talaði mikið um að það þyrfti að gæta að því líka að það borgaði sig yfirleitt ekki að kosta meiru til í sambandi við gæsluna, og hann ræddi um það einnig að við ættum ekki að gera neinar ráðstafanir til þess að þvinga færeyinga til að veita okkur aðstoð. Auðvitað hafði enginn talað um að þvinga færeyinga til eins eða neins, heldur aðeins hafði ég vikið að því að það væri eðlilegt, á sama tíma sem færeyingar leita til okkar og vilja fá okkur til þess að heimila sér fiskveiðar við þau knöppu kjör sem við búum við, að við létum þá skilja það að við ætluðumst líka til þess að þeir veittu bretum ekki sérstaka aðstoð til þess að geta farið hér ránshendi um okkar mið. Ég tel að þetta hefði verið eðlilegt, vegna þess að það liggur fyrir að bretar nota nú í stórum stíl einmitt aðstöðu í Færeyjum sem nokkurs konar birgðasvæði sér til aðstoðar í sambandi við veiðarnar hér við land. Það er rétt, færeyingar hafa stundum áður brugðist vel við í þessum efnum og staðið sig vel. En auðvitað eru ekki í því landi allir á sama báti, síður en svo, og ekki allir sömu skoðunar. Ég hefði hins vegar talið mjög eðlilegt að við hefðum reynt að hafa áhrif í þessum efnum, en það vildi auðvitað hæstv. sjútvrh. ekki og vildi leggja þessi orð mín út á versta veg.

En aðalatriðið, sem kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh., var auðvitað varðandi það að ég minntist í ræðu minni á að það hefði komið greinilega fram undansláttartilhneiging hjá stjórnvöldum gagnvart útlendingum sem m.a. hefði birst í því að nýlega hafi verið opnað að verulegu leyti friðunarsvæði fyrir Suðausturlandi, sem var lokað áður, eftir kröfum vestur-þjóðverja, og ég gaf nokkrar upplýsingar hér um málið. Hæstv. sjútvrh. byrjaði strax á því að bera sig illa að ég hefði brugðið hér út af gamalli venju að láta menn ekki vita fyrir fram um hvað væri spurt, ég væri hér sítalandi í landhelgismálinu, en samt hefði ég ekki getað látið hann vita, menn þyrftu líklega að koma til þings með heilan poka af upplýsingum til þess að geta verið viðbúnir að svara o.s.frv.

Það máttu auðvitað allir heyra að ég hafði beint máli mínu hér til hæstv. forsrh. fyrst og fremst um landhelgismálið almennt, en dró inn í það mál spurningu um hverju það sætti að þetta hefði verið gert. Málið liggur auðvitað þannig fyrir að hæstv. sjútvrh. er búinn að taka þessa ákvörðun nú fyrir örfáum dögum, að hann opnar svæði sem var lokað, svæði sem hann hafði lokað áður, hann opnar það. Það var nú meira en lítið að fara fram á það við sjútvrh. að hann vissi eitthvað um hvernig stæði á því að hann tók þessa ákvörðun fyrir örfáum dögum. Helst var á honum að skilja að hann þyrfti upplýsingar sem þyrfti að flytja í heilum poka til þess að hann gæti gefið einhverjar skýringar á þessu. Hæstv. ráðh. staðfesti í rauninni allt það sem ég sagði varðandi þetta mál, enda hafði ég það eftir valinkunnum skipstjóra sem hafði þessar tölur frá réttum aðila. Þar skakkaði aðeins um eina dagsetningu, sem ég hygg að hafi skakkað einmitt um hjá hæstv. ráðh. sjálfum. Það var sem sagt staðfest að 20. mars gekk í gildi þessi breyting á friðunarsvæðinu, það staðfesti hæstv. ráðh. Hann hélt að hann hefði undirskrifað þessa reglugerð daginn áður, hinn 19., en rn. hefur nú upplýst að það hafi verið hinn 17., það skiptir ekki máli. En hann staðfesti líka að það hefði ekki verið fyrr en 24. sem blöð almennt gátu fengið vitneskju um þessa breytingu. Hann sagði að þetta hefði legið allt saman tilbúið til birtingar í Lögbirtingablaðinu, en það hefði orðið dálítill dráttur á því að senda þetta frá sér, vegna þess að það hefði staðið á korti og því hefðu þeir ekki verið tilbúnir fyrr en eftir lokunartíma hinn 23. og blöðin fengu að vita þetta 24., eins og ég sagði. Og Landhelgisgæslan hefur sjálf gefið upp, að hún fékk ekki að vita um þetta fyrr en 25., þetta eru hennar upplýsingar. Hitt liggur svo einnig staðfest fyrir, að einn af skipherrunum, sem starfar nú fyrir Austurlandi á varðskipunum, upplýsir að hann hafi ekki fengið að vita um þessa breytingu fyrr en hinn 28. En þá var a.m.k. einn eða fleiri þýskir togarar búnir að fylla sig á þessum miðum.

En um leið og hæstv. ráðh. staðfesti þetta, þá gaf hann ekkert svar við því, eins og hv. þm. tóku eftir, ekkert svar við því hvernig stóð á því að hann rauk til á þennan hátt og opnaði friðunarsvæði sem hafði verið lokað áður. Það var staðfest að upphaf þess, að þessu svæði var lokað, var það að allir togaraskipstjórarnir á Austfjörðum óskuðu eftir því að svæðinu yrði lokað. Og fiskveiðilaganefnd, sem starfað hefur, gerði samhljóða till. um að loka þessu svæði öllu, um leið og hún gerði till. um lokun eða stækkun á öðrum svæðum, t.d. fyrir Norðausturlandi. Og hæstv. sjútvrh. upplýsti að það hafi á sínum tíma verið, eins og lög áskilja, leitað til Hafrannsóknastofnunarinnar um þetta mál og hún hafi talið það út af fyrir sig skynsamlegt og varlegt, en hún hefði ekki nægilegar upplýsingar um svæðið og kom það engum á óvart. En nú hefur Hafrannsóknastofnunin upplýst að hún á enga hlutdeild í því að hluti svæðisins hefur verið opnaður aftur. Hún segir enn að hún hafi ekki nægilegar upplýsingar um svæðið, hún hafi að vísu sent skipið Hafþór inn á svæðið, og það var það eina, sem var dálítið merkilegt hjá hæstv. ráðh., og hann hafi fengið sáralítinn fisk á svæðinu. Og vegna þess að hann fékk sáralítinn fisk á svæðinu, þá var sjálfsagt að opna svæðið.

Auðvitað fór það svo, og það kom engum á óvart sem þarna þekkti eitthvað til, að þarna var strax um geysilega mikið fiskmagn að ræða þegar svæðið var opnað, alveg óvenjumikinn afla að ræða á svæðinu strax þó að Hafþór fiskaði þar ekkert fyrir nokkrum dögum. En til þess geta verið ýmsar ástæður. En ekki gaf það neina skýringu á því hvernig stendur á því að það er rokið í að opna þetta svæði, þó að Hafþór hafi ekki fundið þar fisk. En sem sagt, hæstv. sjútvrh. vék sér með öllu undan því að svara hvernig stóð á því að hann breytti fyrri ákvörðun án þess að bera það undir þá, sem upphaflega höfðu staðið fyrir lokuninni, og gerði það með þeim hætti að skipstjórar á Austfjarðamiðum verða að fá sínar upplýsingar úr talstöðvum þýsku togaranna um að það sé búið að breyta svæðinu og nú megi þeir fara inn á þann hluta svæðisins þar sem jafnan hefur verið mest af smáufsa og nú hefur komið í ljós að veiðist langsamlega mest smáufsi á. Hvaða ástæður lágu til þess að þetta var gert, aðrar en þær að vitað var allan tímann að þjóðverjar sóttu fast á að f!t að veiða á þessu svæði?

Hæstv. sjútvrh. komst þannig að orði, að í ljós hefði komið að þjóðverjar væru okkur afskaplega velviljaðir, þeir vildu m.a., — það hefði komið fram í viðtali við þá nýlega við nefnd manna sem hefði verið í Þýskalandi, — vildu bæði kaupa af okkur ísfisk og jafnvel leigja okkur frystigeymslur fyrir frosinn fisk. Ja, sér er nú hvað! Ætli það sé nokkuð nýtt að þeir hafi viljað kaupa af okkur ísfisk, að við höfum ekki vitað það allan tímann? En hæstv. ráðh. ætti kannske að vita að það hefur verið mjög rætt um það hér í landinu að það þyrfti að gera ráðstafanir til þess að banna mönnum beinlínis að fara út með ísfisk, eins og sakir standa, þegar skortir stórkostlega á verkefni hér í fiskiðnaðinum. Og svo kemur fregnin um að þeir séu tilbúnir:að leigja okkur frystigeymslur, eins og það hafi ekki legið fyrir. Við höfum meira að segja haft þær á leigu áður og notfærðum okkur í allríkum mæli í fríhöfninni í Hamborg að hafa slíkar geymslur á leigu á meðan við töldum að það þjónaði okkar hagsmunum vegna þess að við hefðum þarna til einhvers markaðar að dreifa.

Allt af þessu tagi ber aðeins vott um að hér er um óeðlilega undanlátssemi að ræða gagnvart þjóðverjum. Það er verið að hleypa þeim inn á þau mið sem ekki átti að hleypa þeim inn á og það meira að segja fyrr en íslendingum er hleypt inn á miðin. Ég vil fyrir mitt leyti vara við þessu. Ég tel að þessi ráðstöfun hæstv. sjútvrh. sé hreint hneyksli og það hneyksli sem menn eigi ekki að sleppa út úr auðveldlega, því að það er vitanlega ekki hægt að afsaka það með neinu að láta undan á þennan hátt.

Ég vek sem sagt enn athygli á því að hæstv. ráðh. gat ekki gefið neina skýringu á því hvernig stóð á því að þessi breyting var gerð. Hafi það verið svo að hann hafi efast um að það hafi verið rétt að loka þessu svæði á sínum tíma eftir till. skipstjóranna og eftir till. fiskveiðilaganefndar og fyrri umsögn Hafrannsóknastofnunarinnar, þá átti hann vitanlega ekki að opna það aftur fyrr en fullnægjandi rannsókn hafði farið fram á svæðinu. En það liggur fyrir að hún hefur ekki farið fram. Hafrannsóknastofnunin hefur ekki breytt sinni umsögn. Opnunin er því algert hneyksli. Þarna hefði að sjálfsögðu átt að bíða eftir því að þessi athugun hefði farið fram. En það var eitthvað annað sem lá á. Það er einmitt þetta sem ég vil gjalda varhuga við, það er að við sýnum undanlátssemi á þennan hátt gagnvart ágangi útlendinga. Það er því miður búið að gera of mikið af því að láta undan kröfum þeirra og m.a. að gera samninga við vestur-þjóðverja, þótt við séum ekki að færa þeim enn meir með ráðstöfunum eins og þessari.

En ég skal nú ekki víkja að ýmsu fleiru sem kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh. og væri þó fyllilega ástæða til þess að víkja að. Það er ekki tími til þess úr því sem komið er. Ég læt það því bíða. En ég vil fara hér nokkrum orðum um ræðu hæstv. dómsmrh.

Það var alveg greinilegt að ræða hæstv. dómsmrh. var eins og hér kæmi fram ráðh. úr allt annarri ríkisstj. en þeirri sem hæstv. forsrh. og hæstv. sjútvrh. voru að tala fyrir. Það var engu líkara en þarna væri á ferðinni ráðh. úr allt annarri stjórn. Hann flutti bæði mér og hv. þm. Benedikt Gröndal þakkir fyrir það sem við höfðum sagt og þakkaði okkur mjög fyrir okkar yfirlýsingar. Það var eitthvað annað en að við ættum þakklæti að fagna frá hinum. Hann lagði ríka áherslu á það að hann vildi auka hinn pólitíska þrýsting, og hann sá ástæðu til þess að víkja sérstaklega að því að framámenn í stjórnmálum hér væru ekki að ástæðulausu að draga úr þessum pólitíska þrýstingi með ótímabærum yfirlýsingum. Það hefur verið sagt í þessum umr. að þessi orð hæstv. dómsmrh. hafi átt sérstaklega við Gylfa Þ. Gíslason og yfirlýsingar hans. Mér dettur ekki í hug að taka þessi orð hæstv. dómsmrh. sögð hér eingöngu til Gylfa Þ. Gíslasonar. Þessi orð hitta auðvitað engan fyrr en bæði hæstv. forsrh. og alla framámenn í líði Sjálfstfl., því að þeir hafa verið að gefa yfirlýsingar æ ofan í æ, bæði í blöðum sínum og viðtölum sem hafa farið í þessa sömu átt. Ég minnist þess að hv. þm. Sverrir Hermannsson sagði bæði erlendis og hér heima í sjónvarpi að þessi ríkisstj. mundi aldrei hóta neinu í sambandi við NATO, það kæmi ekki til mála, aldrei. Það eru fleiri en Gylfi Þ. Gíslason sem hafa sagt þetta og ber að víta fyrir það að þeir eru að gefa hér ótímabærar yfirlýsingar sem eiga að draga úr þeim pólitíska þrýstingi sem meiningin var að beita. Ég get ekki skilið þetta á annan veg en þann, að hæstv. dómsmrh. sé í þessum efnum sammála okkur sem höfum lagt áherslu á að þennan pólitíska þrýsting eigum við að nota, enda er það í fullu samræmi við það sem hann hefur gert áður í þessum málum. Hann stóð fyrir því í vinstri stjórninni að þar var gerð samþykkt, og eins í sínum eigin flokki, Framsfl., um að tilkynna NATO það, að ef ekki yrðu gerðar ráðstafanir til þess að herskipin þá færu út fyrir 50 mílna mörkin, þá mundum við taka til endurskoðunar afstöðu okkar til aðildar að NATO. Það er í fullu samræmi við það sem hæstv. dómsmrh. segir nú. Hann vill beita pólitískum þrýstingi, en samstarfsmenn hans í ríkisstj. eru greinilega á allt annarri skoðun. Þeir draga úr öllu því sem hann segir og gerir í þessum efnum. Þeir vilja halda í allt aðra átt.

Það hefur auðvitað ekki farið fram hjá neinum að Morgunblaðið hefur sagt æ ofan í æ að við ættum ekki að hóta neinu, það næði engri átt. Þeir sögðu líka í Morgunblaðinu að við ættum ekki að slita stjórnmálasambandi við breta, það væri verst fyrir okkur sjálfa. Þeir hafa verið á móti því að kalla sendiherrann hjá NATO heim, og þeir vilja vitanlega ekki ræða um neina hótun gagnvart lokun herstöðva NATO hér á landi eða láta þá skilja það að við munum taka til endurskoðunar afstöðu okkar til bandalagsins ef þessu heldur áfram.

Ég vil taka undir þau orð hæstv. dómsmrh. að það, sem máli skiptir auðvitað í þessari deilu nú, eru beinar aðgerðir. Það er það eina sem okkar andstæðingar munu taka eitthvert mið af. Og því er það að við í stjórnarandstöðunni erum að ganga eftir því að um meiri beinar athafnir verði að ræða í málinu af hálfu ríkisstj. en verið hefur fram til þessa. Ég hef lagt áherslu á það, að ég tel að þessar athafnir af okkar hálfu geti komið fram með tvennum hætti: Annars vegar með því að við sýnum bretum að það er ekki neinn uppgjafarhugur í okkur, heldur ætlum við að auka okkar landhelgisgæslu, efla hana, fjölga skipum og þá jafnvel miklu meira ógnvekjandi skip í okkar gæslulið heldur en við höfum nú, við ætlum að gera gæsluna enn þá virkari með skiptiáhöfnum og við ætlum að fara í það að afla hér fjár til landhelgisgæslunnar til þess að efla hana þannig. Og þá tel ég að það skipti máli að gera það með þeim hætti að það sé um leið gegn hagsmunum breta, m.a. í þá átt að við knýjum hér fram hækkandi verð á breskum vörum, þannig að við færum okkar viðskipti sem mest frá Bretlandi yfir til annarra landa. Það hittir bretana alveg örugglega. Hins vegar koma svo til greina af okkar hálfu sem beinar athafnir í málinu pólitískar aðgerðir, eins og að kalla sendiherrann hjá NATO heim, eins og að tilkynna NATO, á svipaðan hátt og gert hefur verið áður, að fari herskipin ekki út fyrir tiltekinn tíma, þá munum við grípa til tiltekinna ráða sem við tilgreinum. Ég hef bent á það margsinnis úður að á þessu eru til mörg stig. Það er ekki nauðsynlegt að grípa til þess hástigs sem ég tel auðvitað langsamlega affarasælast út af fyrir sig að grípa til, það er ekki nauðsynlegt að grípa til þess að segja sig beinlínis úr NATO. Það er hægt að gripa til annarra aðgerða gagnvart NATO áður sem þeir kynnu að skilja. Spurningin er aðeins þessi: hvort við viljum nota þau pólitísku vopn, sem við höfum, eða hvort við viljum heldur þola yfirganginn.

Ég skal ekki segja um það hvaða árangur verður af þessum umr. hér í dag um landhelgismálið. Ég vil þó vona að þær hafi það í för með sér að ríkisstj. taki málið á nýjan leik til athugunar út frá því, sem hér hefur komið fram. og hún sannfærist um að það er rétt að gera tilteknar ráðstafanir af okkar hálfu, — ráðstafanir sem bretar mundu skilja og ráðstafanir sem gætu vissulega komið okkur að gagni. Og þrátt fyrir þær aðfinnslur sem hér hafa komið fram frá okkur í stjórnarandstöðunni, þar sem við erum óánægðir með það sem gert er, þá vil ég enn undirstrika það að við erum reiðubúnir til samstarfs við ríkisstj. í þessu máli. Við getum vel sett okkur í þær aðstæður að við séum ekki sammála um allar þær till. sem fram koma. En það skiptir höfuðmáli að við reynum að finna sameiginlega leið sem geti orðið okkur að gagni. Við erum reiðubúnir til þess að taka þannig á málinu með ríkisstj. En hún getur ekki vænst þess að hún hafi neina samstöðu með okkur ef svipurinn á þessu öllu saman á að verða aðgerðarleysi, máttleysi og hik, eins og því miður hefur verið allt of einkennandi af hálfu ríkisstj. í málinu sem heild.